Pilar skrifaði:
Significado cierre i-cord
10.04.2020 - 19:53DROPS Design svaraði:
Hola Pilar. Aquí tienes un vídeo explicativo sobre cómo trabajar el remate i-cord:
12.04.2020 - 18:34
Annie PERRIN skrifaði:
Peut on avoir en vidéo l explication pour faire une vrille
22.12.2019 - 23:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Perrin, posez votre bandeau bien à plat, prenez le côté des mailles rabattues et tournez-les une fois (= l'endroit est maintenant sur l'envers de l'autre côté du bandeau) = vous avez fait une vrille. Il suffit maintenant juste d'assembler les mailles entre elles, en gardant bien cette vrille; faites quelques petits points pour maintenir les mailles bien au milieu. Bon tricot!
02.01.2020 - 10:15
Pauline skrifaði:
Canada francais. Concernant les aiguilles: c\'est écrit trop de mailles pour 10cm essayer des aiguilles plus grosses et pas assez de mailles essayer des aiguilles plus fines. J\'aurais pensé le contraire!
27.09.2019 - 16:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Pauline, c'est bien dans ce sens que cela fonctionne: si vous avez par ex. 20 m au lieu de 17 (bandeau), il vous faudra des aiguilles plus grosses pour obtenir les 17 m = 10 cm. Et si vous n'avez par ex. que 15 m au lieu de 17, il vous faudra essayer avec des aiguilles plus fines pour arriver à avoir les 17 m = 10 cm. Bon tricot!
30.09.2019 - 12:58
Tove Vikse skrifaði:
Hei, det står strikk til arbeidet måler ca 43cm fra midtmasken. Det er vanskelig å måle på rundpinnen, og jeg har prøvd å telle huller på bildet i stedet. Kan dere oppgi antall masker ved felling - eller ev antall hull nedover langs midten i stedet? Takk.
04.12.2018 - 14:45DROPS Design svaraði:
Hei Tove. Det er ca 32 hull langs midten av sjalet. God fornøyelse
05.12.2018 - 08:58
Laura skrifaði:
Mikä o i cord nauha?
09.11.2018 - 17:13DROPS Design svaraði:
Hei, i-cord -nauha on nyöriä muistuttava reunus.
19.11.2018 - 17:10
Sweet Moments#sweetmomentsset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal og eyrnaband úr DROPS Air. Sjalið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni. Eyrnabandið er prjónað frá hlið að hlið í garðaprjóni.
DROPS 192-57 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. EYRNABAND: Fitjið upp 20-21-22 lykkjur á prjón 5 með Air. Prjónið GARÐAPRJÓN þar til stykkið mælist ca 47-49-51 cm eða að óskaðri lengd. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af allar lykkjur slétt. FRÁGANGUR: Uppfitjunarkanturinn er saumaður saman með affellingarkantinn með smáu spori, en til þess að gera snúning framan á eyrnabandinu verður að snúa stykkinu einu sinni í miðju áður en það er saumað saman (hálft stykkið með réttuna út og hálft stykkið með rönguna út). Til að snúningurinn að framan haldist á réttum stað eru saumuð nokkur spor í gegnum öll lögin við miðju að framan. Passið uppá að snúningurinn liggi við miðju að framan og að saumurinn sé fyrir miðju að aftan. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjón í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Uppslátturinn er prjónaður slétt svo það myndist gat þegar aukið er út. SJAL: Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 9 með Air. Prjónið GARÐAPRJÓN og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna, prjónamerki á að fylgja áfram með í stykkinu (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið síðan umferð 2 og 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 43 cm mælt meðfram miðju lykkju. AFFELLING: Í næstu umferð er fellt af með i-cord affellingu. Mikilvægt er að kanturinn sé felldur laust af svo að hann verði ekki stífur. Notaðu, ef þú vilt, grófari prjóna til að fella af og passið uppá að prjóna lykkjurnar laust. Prjónið og fellið af þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, næstu 2 lykkjur eru prjónaðar slétt saman. Færið til baka 3 lykkjur frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón (í sömu röð og þær eru í) *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur á vinstri prjón hafa verið felldar af og eftir eru 3 lykkjur á hægri prjón. Færið lykkjur yfir á vinstri prjón og fellið síðan þessar 3 lykkjur af slétt. Klippið frá og saumið inn endann. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetmomentsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-57
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.