Lisa skrifaði:
Sorry, me again 😅 I still don’t understand what we have to do 1st row of A2. I cannot get to 18 rows of black (much less). I do not understand how I have to skip a st, but still incr as usual like A1. Thank you for explanation on the skipped stitch!
07.11.2023 - 11:28DROPS Design svaraði:
Dear Lisa, on last row in A.1 you increased 2 sts in each repeat so that you got 17 sts in each A.1, now you increase on 1st row in A.2 - see also written pattern as follows *1 st in each of the first/next 16 sts following the colours in diagram, then work 2 sts in the next stitch (= on first round you will work the first of these stitches in black and the 2nd one in blue/violet)* and repeat from *-*. Continue A.2 changing colours as in the pattern and working / increasing as explained in the written pattern. Happy crocheting!
07.11.2023 - 13:38
Lisa skrifaði:
Hi, in A2, there are places where there is no Stitch. However, in A2 description round 1, it says "16 sc & sc incr. How do we skip these stitches then? Thanks for clarification.
06.11.2023 - 21:39DROPS Design svaraði:
Dear Lisa, that's because you are continuing the increases as worked in A.1, ie work 2 sts in the last st in each A.2 to increase evenly as before. Happy crocheting!
07.11.2023 - 08:38
Beth skrifaði:
Aztec Moon
24.06.2016 - 19:31
Beth skrifaði:
Aztec Moon
24.06.2016 - 19:29
Beth skrifaði:
Aztec Moon
24.06.2016 - 19:29
Shannon Furnish skrifaði:
Would love to make this. Beautiful pattern. Stunning model.
20.06.2016 - 07:10Hava skrifaði:
Wonderful pattern. I would like to buy the pattern
13.06.2016 - 18:30
Lauren McRoberts skrifaði:
I haven't made anything like this, but it intrigues me. I might have to try it. Very pretty!
12.06.2016 - 01:45
Christa skrifaði:
Love this pouffe ;-)
08.06.2016 - 12:52
Elisabeth Pocklington skrifaði:
Very stylish. Shaping it properly might be a challenge, but the design is awesome.
07.06.2016 - 17:52
Inti#intipuff |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Heklaður púði úr DROPS Snow með litamynstri
DROPS 173-52 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir litina í mynstri. 1 rúða = 1 fl. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar skipt er um lit þá er best að hekla þannig: Heklið síðustu fl með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn með nýja litnum í gegn í lokin, heklið síðan næstu fl. Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn sem ekki er heklað með lagður yfir lykkjur frá fyrri umf, heklað er utan um þráðinn þannig að þráðurinn sjáist ekki og fylgi með hringinn. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í umf er skipt út fyrir 1 ll, endið umf með 1 kl í 1. ll. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PÚÐI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring með 1 þræði í hverjum lit. Heklað er í hring í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. BOTN: Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan í hring eftir mynstri A.1 (heklaðar eru 6 mynstureiningar með A.1 á breidd) – LESIÐ LITAMYNSTUR. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu/næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umf er hekluð 1 fl fleiri á milli útaukninga – (ATH! Í umf með ör er aukið út um 2 fl í hverri mynstureiningu, þ.e.a.s. aukið út um 1 fl mitt í mynstureiningunni og aukið út um 1 fl í lok mynstureiningar eins og áður. Í 9. og 10. umf, þ.e.a.s. A.X, skiptið þá um mynsturliti í hvert skipti sem mynstureiningin er endurtekin þannig að það verður önnur hver 2 fl í litnum bláfjólublár og 2 fl í litnum natur umf hringinn). Þegar A.1 er lokið eru 102 fl í síðustu umf. Heklið nú A.2 yfir A.1 – aukið út í umf 1-4 í A.2 þannig: UMFERÐ 1: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 16 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 126 fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Aukið síðan út frá og með umf 5 í A.2 þannig: UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 20 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 132 fl. UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 21 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 138 fl. UMFERÐ 7: Heklið * 1 fl í hverja af fyrstu/næstu 22 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 144 fl. Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umf er hekluð 1 fl fleiri á milli útaukninga = 180 fl í síðustu umf. Klippið frá og festið enda eftir að A.2 er lokið. TOPPUR/HLIÐ: Heklið toppinn alveg eins og botninn, en án þess að klippa þráðinn frá. Heklið hliðina á púðann þannig: Haldið áfram að hekla hringinn, en án útaukningar og heklið eftir A.3 (heklið 9 mynstureiningar af A.3 á breiddina). Haldið áfram þar til A.3 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Púðinn er fylltur þannig (það getur verið kostur að vera með aðstoð við þetta svo að þetta komi fallega út): Setjið 1 kodda (ca 1400 g) eða 2 kodda (ca 700 g) ofan á hvorn annan og dragið teygjuefni/lak yfir koddana. Troðið koddunum inn í púðann (passið uppá að teygjuefnið/lakið snúi út) Saumið saman opið, saumið yst í lykkjubogana með 2 þráðum í litnum svartur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #intipuff eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.