Camilla Velle skrifaði:
Skal diagrammene hekles rundt, og ikke frem og tilbake? Jeg får ikke siste rad på A3 til, da jeg skal ha en stavmaske i en bue som ikke finnes.. Eller skal hver runde avsluttes med kjedemaske?
28.02.2016 - 17:34DROPS Design svaraði:
Hej Camilla, Hele arbejdet hækles frem og tilbage. God fornøjelse!
29.02.2016 - 12:07
Lejeune skrifaði:
Bonjour ,j'essaie de faire le modèle Nepal ,et je ne comprend pas le point bride autour de la maille ?? Quelqu'un peux m'expliquer? Par avance merci.
25.02.2016 - 18:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lejeune, pour crocheter 1 B autour de la m, piquez dans l'arceau du rang précédent et pas dans 1 ml du rang précédent - voir aussi la vidéo ci-dessous (autre diagramme mais technique identique). Bon crochet!
26.02.2016 - 10:48
Uplands |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Heklaðar tátiljur úr DROPS Nepal með gatamynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS Extra 0-1169 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A-8. Mynsturteikning A.4 og A.7 sýnir hvernig umf byrjar og endar. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf með fl byrjar á 1 loftlykkju, 1 ll kemur EKKI í stað fyrstu fastalykkju í umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl með því að hekla 2 fl í fl. 2 FL HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp. TÁTILJA: Heklið 71-78-87 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með Nepal. Heklið 2 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll þar til 1 ll er eftir, 2 fl í síðustu ll = 72-79-88 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja fl, þar til stykkið mælist 5-6-7 cm. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 31-34-39 fl, * heklið 2 næstu fl saman (= ofan á fæti) – LESIÐ 2 FL HEKLAÐAR SAMAN *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af síðustu 31-35-39 fl = 67-74-83 fl. UMFERÐ 2: Heklið 2 fyrstu fl saman, 1 fl í hverja af næstu 28-32-36 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 29-32-37 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 62-69-78 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 26-29-34 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af síðustu 26-30-34 fl = 57-64-73 fl. UMFERÐ 4: Heklið 2 fyrstu fl saman, 1 fl í hverja af næstu 23-27-31 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 24-27-32 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 52-59-68 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 21-24-29 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af síðustu 21-25-29 fl = 47-54-63 fl. UMFERÐ 6: Heklið 2 fyrstu fl saman, 1 fl í hverja af næstu 18-22-26 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 19-22-27 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 42-49-58 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 16-19-24 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af síðustu 16-20-24 fl = 37-44-53 fl. UMFERÐ 8: Heklið 2 fyrstu fl saman, 1 fl í hverja af næstu 13-17-21 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 14-17-22 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 32-39-48 fl. Hér endar úrtaka í stærð 35/37. STÆRÐ 38/40 - 41/43: UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 14-19 fl, * heklið 2 síðustu fl saman *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af síðustu 15-19 fl = 34-43 fl. Hér endar úrtaka í stærð 38/40. STÆRÐ 41/43: UMFERÐ 10. Heklið 2 fyrstu fl saman, 1 fl í hverja af næstu 16 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af næstu 17 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 38 fl. ALLAR STÆRÐIR: = 32-34-38 fl. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið síðan 1 fl í hverja fl. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 5 fl jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 37-39-43 fl. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 5-4-5 fl jafnt yfir = 42-43-48 fl. Þegar stykkið mælist 8 cm, stillið af að næsta umf sé frá réttu, aukið út um 1-0-0 fl = 43-43-48 fl. Heklið síðan þannig: A.1 yfir fyrstu 4 fl, A.2 þar til 9 fl eru eftir (= 6-6-7 sinnum), endið á A.3. A.4 sýnir hvernig umf byrjar. Þegar A.1-A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 49-49-55 st í umf. Heklið síðan þannig: * Heklið A.6 1 sinni, síðan A.7 0-0-1 sinni *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið á A.8. A.5 sýnir hvernig umf byrjar. Klippið frá og festið enda þegar A.6-A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. FRÁGANGUR: Byrjið undir fæti framan á tá. Saumið saman kant í kant í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman mitt undir fæti, upp meðfram hæl fyrir miðju að aftan efst upp á stroffi. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1169
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.