Gabriele skrifaði:
Liebes drops-team, vielen Dank für die schnelle Beantwortung meiner Frage - so habe ich es natürlich nicht gerechnet! Aber jetzt kann ich mir die Wolle bestellen,denn ich finde das Tuch sehr,sehr schön. Vielen Dank für die wunderbaren Modelle, Gabriele
29.01.2015 - 20:21
Gabriele skrifaði:
Anschlag:375Maschen 11M. rechts stricken -3Maschen Überzug -11M. rechts stricken,15xwiederholen =375 Maschen,aber nicht 345 Maschen. Oder habe ich etwas nicht richtig verstanden? Liebe Grüße, Gabriele
25.01.2015 - 02:20DROPS Design svaraði:
Sie nehmen ja 15 x 2 M ab, indem Sie jeweils 3 M überzogen zusammenstricken (= 2 M abgenommen). Sie stricken 11 M, dann 3 M überzogen zusammen, dann wieder 11 M stricken. Das machen Sie 15 x, also 15 x 2 M abgenommen = 30 M abgenommen, bleiben 345 M übrig.
27.01.2015 - 21:32
Gabriele skrifaði:
Es gibt wieder so schöne Anleitungen und diese gehört für mich auf alle Fälle dazu!!!
12.01.2015 - 19:35
Anita skrifaði:
Zeer mooie omslagdoek, mooie kleuren
03.01.2015 - 10:49
Mara skrifaði:
Ich liebe Patchwork.
02.01.2015 - 08:26
Marlene Brams skrifaði:
Originele versie van de granny squares!,dit wordt een project!
22.12.2014 - 08:23
Marlene Brams skrifaði:
Originele versie van de granny squares!,dit wordt een project!
22.12.2014 - 08:22
Ingrid skrifaði:
Wauw, prachtig!
17.12.2014 - 13:19
Yvonne skrifaði:
Esprit patchwork très réussi.
14.12.2014 - 18:28
José skrifaði:
Geweldig!!! Ik kan niet wachten.
12.12.2014 - 20:14
Piece by Piece#piecebypieceshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal úr DROPS Fabel með dominoferningum
DROPS 160-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. DOMINOFERNINGUR: Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju (= 11 l hvoru megin við miðjulykkju). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 3 og 4, þ.e.a.s. fækkið um 2 l fyrir miðju á ferningi í annarri hverri umf þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkju. LEIÐBEININGAR: Lykkjur eru alltaf prjónaðar upp frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. SJAL: Fitjið upp l fyrir allan kantinn efst á sjalinu, prjónið síðan ferninga einn og einn, fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 375 l á hringprjóna nr 4 með Fabel. Prjónið sl yfir allar l (= frá röngu). Prjónið síðan þannig: * 11 l sl, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 11 l sl *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum = 345 l. Prjónið síðan DOMINOFERNINGUR – sjá skýringu að ofan – yfir fyrstu 23 l. Prjónið síðan Dominoferninga yfir næstu 23 l. Haldið svona áfram yfir allar l í umf (= 15 Dominoferningar í umf) Prjónið nú upp frá réttu – LESIÐ LEIÐBEININGAR – á milli hverra ferninga frá fyrstu um með domino þannig: 11 l meðfram kanti á síðasta ferning frá fyrri umf, prjónið upp 1 l á milli þessa og næsta fernings og prjónið upp 11 l meðfram kanti á næsta ferningi = 23 l. Prjónið dominoferning eins og áður. Prjónið upp l alveg eins á milli alla ferninga og prjónið Dominoferninga = 14 dominofernignar í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Haldið svona áfram, þ.e.a.s. það verður 1 dominoferningur færri í hverri umf, þar til prjónaðar hafa verið alls 15 umf með Dominoferningum og síðasta umf er 1 dominoferningur. Klippið frá og festið enda. KANTUR Í GARÐAPRJÓNI: Kanturinn er prjónaður fram og til baka meðfram hliðum á sjali í garðaprjóni á hringprjóna nr 4 með Fabel. Takið upp frá réttu yst í lykkjubogann, með byrjun frá uppfitjunarkanti þannig: Takið upp 11 l í 1. dominoferningi, * 1 l á milli dominoferninga, 11 l í næsta dominoferning *, endurtakið frá *-* niður meðfram öllum kantinum á sjali, takið upp 1 l í horninu á síðasta dominoferningi *, setjið 1 prjónamerki í þessa l (= miðjulykkja), 11 l í dominoferningi í hinum kantinum á síðasta dominoferningi, * 1 l á milli dominoferninga, 11 l í næsta dominoferningi *, endurtakið frá *-* upp að uppfitjunarkanti. Aukið síðan út í hverri umf frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, prjónið sl að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, svo ekki myndist gat. Haldið áfram með þessa útaukningu þar til kanturinn í garðaprjóni mælist ca 16 cm. Fellið laust af. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #piecebypieceshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.