Berlinda skrifaði:
Prachtig, ook de kleur spreekt mij aan. Wacht vol ongeduld op het patroon
16.01.2014 - 00:08
Allie skrifaði:
A pretty design for summer that looks very easy to make!
06.01.2014 - 19:35Cheryl skrifaði:
The pattern looks like it would be equally pretty on all sizes and age. I like it.
05.01.2014 - 19:33
Ali skrifaði:
Muy bonito chaleco y el color ideal para la primavera.
03.01.2014 - 04:30
Riitta Rouvinne skrifaði:
Ideal for leisure and work. I hope there are many sizes for this
30.12.2013 - 09:23
Gisa skrifaði:
Super. Gefällt mir sehr gut.
22.12.2013 - 12:05
Karin skrifaði:
Ein schönes Muster man kann diese Weste sicher gut zu allem kombinieren
12.12.2013 - 08:16
Rita Klevjer skrifaði:
Denne har jeg heklet i jakke. lekkert mønster. Ble kjemestilig
10.12.2013 - 20:25
Kirsten skrifaði:
Sød - men skal helt klar være hvid
10.12.2013 - 17:29
Christine Knaepen skrifaði:
Zou er zo aan willen beginnen,mooie kleur ook!
10.12.2013 - 15:39
Delphine#delphinevest |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Muskat með sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-27 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Í A.1 er byrjað á umferð merktri með 1 í mynsturteikningu. Síðan eru umferðir 2 til 5 endurteknar. Í A.2 er byrjað að hekla frá umferð merktri með 2 í mynsturteikningu. HLIÐ: Í hlið eru heklaðir stuðlar / fastalykkjur eins og útskýrt er í A.1A og A.1D. Þ.e.a.s. í umferð 1 og 5 í mynstri eru heklaðar fl, í umf 2,3 og 4 eru heklaðir st. Prjónamerki er staðsett mitt á milli lykkja í hvorri hlið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. VESTI: Heklið 155-167-183-199-227-247 LAUSAR loftlykkjur með heklunál nr 4 með Muskat. Snúið við. Hoppið yfir 1. ll, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 154-166-182-198-226-246 fl. Setjið 1 prjónamerki eftir 39-42-46-50-57-62 fl inn frá hvorri hlið (bakstykki = 76-82-90-98-112-122 fl). Heklið nú þannig (byrjið í umf 1 í mynstri): A.1A, A.1B er endurtekið 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1C, 4-10-18-26-16-26 fl/st í HLIÐ – sjá útskýringu að ofan -, A.1B er endurtekið 5-5-5-5-7-7 sinnum, A.1C, 4-10-18-26-16-26 fl/st í HLIÐ – sjá útskýringu að ofan, A.1B er endurtekið 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1C og A.1D. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 15-15-16-16-17-17 cm. Aukið nú um 1 fl/st í hvorri hlið hvoru megin við hvort prjónamerki einu sinni. Nú er aukið út með því að hekla 2 fl/st í 1 fl/st hvoru megin við hvort prjónamerki (= alls 4 útauknar fl/st). Haldið nú áfram eins og áður með 2 fl/st fleiri í hvorri hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 35-36-37-38-39-40 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina). Klippið frá. Nú er stykkinu skipt upp og hvor hluti er heklaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 3-6-10-14-9-14 fl/st í hvorri hlið. Byrjið á að hekla innan við 2-3-7-11-6-11 fl/st. Heklið 1-3-3-3-3-3 fl/st, A.1B er endurtekið 5-5-5-5-7-7 sinnum, A.1C og 1-3-3-3-3-3 fl/st (nú eru eftir 2-3-7-11-6-11 fl/st), snúið við. Heklið með mynstur eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st, snúið við. Heklið með mynstri eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st, snúið við. Heklið með mynstri eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st, snúið við. Heklið með mynstri eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st. Nú er 1 fl/st í hvorri hlið. Haldið nú áfram fram og til baka með mynstri eins og áður og 1 fl/st í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina) skiptið stykkinu upp fyrir hálsmál og hvor öxl er nú hekluð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Byrjið frá hlið. Heklið yfir 1 fl/st á hlið, A.1B 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1C og 1 fl/st. Haldið áfram þar til mynstureiningin hefur verið hekluð til loka á hæðina. Stykkið mælist nú ca 54-56-58-60-62-64 cm. VINSTRI ÖXL: Heklið á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd, (þ.e.a.s. 2 mynstureiningar við miðju að aftan = hálsmál). HÆGRA FRAMSTYKKI: = 3-6-10-14-9-14 fl/st á hlið. Byrjið við miðju að framan og heklið þannig: A.1A, A.1B er endurtekið 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1C og 1-3-3-3-3-3 fl/st (nú eru eftir 2-3-7-11-6-11 fl/st í hlið). Snúið við. Heklið mynstur eins og áður til baka. Snúið við. Heklið mynstur eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st í hlið, snúið við. Heklið til baka með mynstri eins og áður, snúið við. Heklið mynstur eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st í hlið, snúið við. Heklið til baka með mynstri eins og áður. Nú eru 1 fl/st í hlið. Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstri eins og áður. JAFNFRAMT þegar hekluð hefur verið 1 mynstureining á hæðina eftir að stykki hefur verið skipt niður er fellt af fyrir hálsmáli. Heklið frá réttu þannig: A.2 A, A.2 B, A.1B 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1C, A.1D. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og hálsmáli er lokið er heklað frá miðju að framan – þannig: A.1A, A.1B 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1C og A.1D. Haldið svona áfram þar til stykkið mæist ca 54-56-58-60-62-64 cm (stillið af eftir bakstykki, þannig að heklaðar eru jafn margar mynstureiningar á hæðina eins og á bakstykki). Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið kant í kant með smáu spori svo að kanturinn verði ekki of þykkur. KANTUR VIÐ HANDVEG: Heklið nú kant í kringum handveg þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju undir ermi. Heklið 1 ll, heklið nú fl í kringum handveg, endið á 1 kl í ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, heklið nú 1 st í hverja fl umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn. KANTUR Í KRINGUM FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið nú kant í kringum fram- og bakstykki. Byrjið neðst niðri á hægra framstykki, heklið upp meðfram framstykki, í kringum hálsmál, niður meðfram vinstra framstykki og meðfram kanti að neðan. Þetta er heklað þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, heklið nú fl í kringum fram- og bakstykki, endið á 1 kl í ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja fl, endið á 1 kl í ll frá byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í fyrstu fl, * 3 ll, heklið nú 1 st í fyrstu af 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið 2 tölur í vinstri kant að framan, efsta talan er saumið beint fyrir neðan úrtöku fyrir hálsmál og sú seinni með ca 6 cm millibili. Tölurm er hneppt á milli st í kanti í hægra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #delphinevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.