Forget-Me-Not |
||||||||||
|
||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með laskalínu og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL
DROPS 149-19 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á öllum umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l. ÚRTAKA-1: Heklið 1 fl/st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. ÚRTAKA-2: Heklið 1 fl, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næstu fl, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næstu fl, en dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið nú fram og til baka frá miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 166-166-176-176-187-187 ll með heklunál nr 3,5 með Baby Alpaca Silk. Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-0-2-2-1-1 ll og endið á 1 fl í hverja og eina af 0-0-2-2-1-1 síðustu ll = 124-124-132-132-140-140 fl (meðtaldar 4 fl í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hverja af næstu 8-18-20-20-22-22 fl, heklið A.1 yfir næstu 5 l (þ.e.a.s. 1 st í fyrstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll og 1 st í næstu fl), heklið 1 st í hverja af næstu 18 fl (= ermi), A.1 yfir næstu 5 fl, 1 st í hverja af næstu 30-30-34-34-38-38 fl (= bakstykki), A.1 yfir næstu 5 fl, 1 st í hverja af næstu 18 fl (= ermi), A.1 yfir næstu 5 l og 1 st í hverja af síðustu 19-19-21-21-23-23 fl, snúið við. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka með st og A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. JAFNFRAMT í næstu umf (= ranga) byrjar útaukning fyrir laskalínu og aukið er út þannig – ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum: LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út 2 st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki með því að hekla 2 st í hvorn af síðustu 2 st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 2 st í hverri umf, 1-5-6-11-14-20 sinnum til viðbótar (= alls 2-6-7-12-15-21 sinnum). Aukið nú út um 1 st á undan/eftir A.1 með því að hekla 2 st í síðasta st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 st í hverri umf, 19-16-16-12-10-5 sinnum til viðbótar (= alls 20-17-17-13-11-6 sinnum). LASKALÍNA Á ERMUM: Aukið út um 2 st á undan/eftir A.1 í hvorri hlið á ermum með því að hekla 2 st í hvorn af síðustu 2 st á undan/eftir A.1 á ermum. Endurtakið útaukningu með 2 st í hverri umf 13-14-15-16-18-19 sinnum til viðbótar (= alls 14-15-16-17-19-20 sinnum). Aukið síðan út um 1 st á undan/eftir A.1 með því að hekla 2 st í síðasta st á undan/eftir A.1 á ermum. Endurtakið útaukningu með 1 st í hverri umf 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 8-8-8-8-7-7 sinnum). SKIPTING FRÁ A.1 TIL ST: JAFNFRAMT í síðustu umf með útaukningu eru heklaðir nú 5 st yfir A.1 í stað fyrir A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Eftir síðustu útaukningu eru 364-392-416-448-484-520 st í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig (ef næsta umf er hekluð frá röngu er þráðurinn klipptur frá og byrjað er frá réttu): Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 46-51-55-61-67-74 st (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 94-98-102-106-112-116 st (= ermi), heklið 12 ll, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 84-94-102-114-126-140 st (= bakstykki), hoppið yfir næstu 94-98-102-106-112-116 st (= ermi), heklið 12 ll og heklið 1 st í hvern og einn af síðustu 46-51-55-61-67-74 st = 200-220-236-260-284-312 l í umf. Heklið nú fram- og bakstykki og ermar áfram hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt! Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), heklið 1 st í hvern af næstu 3 st (= kantur að framan), heklið 1 st í hvern st og 12 st um ll-boga undir ermi þar til 4 st eru eftir í umf JAFNFRAMT er aukið út um 49-49-63-69-75-77 st jafnt yfir þessar l, endið á 1 st í hvern og einn af 4 síðustu st (= kantur að framan)= 249-269-299-329-359-389 st í umf. Í næstu umf frá réttu er heklað mynstur eftir mynsturteikningu A.2 með 4 st í hvorri hlið fyrir kant að framan, þ.e.a.s. 1. umf er hekluð þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern og einn af 3 fyrstu st (= kantur að framan), 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 4 st, 7 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 4 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 24-26-29-32-35-38 sinnum og endið á 1 st í hvern af síðustu 4 st í umf. Haldið svona áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (endurtakið umf 2-5 í mynstri). Þegar stykkið mælist ca 28-29-30-31-32-33 cm frá prjónamerki – endið eftir 3. eða 5. umf í mynstri, klippið frá (stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður). ERMI: = 94-98-102-106-112-116 st. Stykkið er heklað fram og til baka. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt! Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 6 lausar ll, heklið 1 st í hvern st á ermi og endið umf með 8 ll, snúið við. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið 1 st í hverja af næstu 4 ll, 1 st í hvern st frá fyrri umf og 1 st í hverja af 6 ll frá byrjun fyrri umf = 106-110-114-118-124-128 st í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern af næstu 6-8-5-7-5-7 st, setjið 1 prjónamerki, heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 91-91-101-101-111-111 l, setjið 1 prjónamerki og endið á 1 st í hvern og einn af síðustu 8-10-7-9-7-9 st (umf 1 í A.2 hefur nú verið heklað). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Haldið svona áfram með mynstur fram- og til baka JAFNFRAMT er mynstrið á milli 2 prjónamerkja í næstu umf heklað eins og útskýrt er í A.3 (byrjið á umf 2 í mynstri), þ.e.a.s. að 1 mynstureining með A.2 í hvorri hlið á milli prjónamerkja er skipt út fyrir st (þessir st koma framfyrir st í ytri hlið á prjónamerkjum og prjónamerkin eru notuð sem aðstoð fyrir réttan lykkjufjölda). JAFNFRAMT í umf 2 í A.2/A.3 er fækkað um 2 st í hvorri hlið með því að hekla 4 fyrstu st í umf saman 2 og 2 og 4 síðustu st í umf saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku með 2 st í hvorri hlið í hverri umf, 3-5-3-6-4-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-6-4-7-5-7 sinnum). Fækkið nú um 1 st í hvorri hlið í 2.-2.- 3.- 5.- 4.- 6.- hverri umf alls 8-6-7-3-5-3 sinnum. Eftir síðustu úrtöku er 1 st öðru megin við A.2 og 2 st hinum megin við A.2 (A.2 er fyrir miðju 71-71-81-81-91-91 l. Haldið áfram með A.2 fram og til baka með 1 og 2 st í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 39-39-38-38-37-37 cm frá prjónamerki (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og víðari handvegs). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið nú peysuna til þess að fá rétta sídd á ermum. Heklið nú st fram og til baka yfir allar l – ATH: yfir l í A.2 á að vera 53-53-61-61-67-67 st = 56-56-64-64-70-70 st í umf. Þegar kanturinn með st mælist 5 cm og ermin mælist ca 44-44-43-43-42-42 frá handveg, klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í (tölum er hneppt á milli st í kanti að framan). UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA: Til þess að hálsmálið verði aðeins hærra aftan við hnakka er hægt að hekla upphækkun þannig: Setjið 1 prjónamerki í l í hvert horn á hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu. Heklið með heklunál nr 3,5 þannig: Byrjið með 1. l frá miðju að framan lengst út á kanti að framan og heklið 1 fl í hverja fl í kringum hálsmál þar til 10 fl eru eftir í umf, en 1 l á undan hverju prjónamerki er heklað þannig: Heklið 1 hst í næstu l, 1 st í næstu l (færið prjónmerki í þessa l) og 1 hst í næstu l. Snúið við, heklið 1 fl í hverja l þar til 10 l eru eftir á annarri hliðinni, en yfir 3 l í hverju horni (þ.e.a.s. l með prjónamerki í + 1 l hvoru megin við hana), heklið 3 fl saman – LESIÐ ÚRTAKA-2. Snúið við og heklið þar til 18 fl eru eftir í umf, snúið við og heklið þar til 18 fl er eftir í umf í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka með fl og úrtöku í hverju horni þar til kanturinn mælist ca 2 cm þar sem hann er breiðastur fyrir miðju að aftan, heklið nú 1 umf yfir allar l með 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (63)
Sheba Mercy wrote:
Hi Can you please tell me when the Trasition has to be made. Is it after the inc on body and sleeves. I am confused please help :( "TRANSITION FROM A.1 TO DC: AT THE SAME TIME on last row with inc work 5 dc over A.1 instead of A.1 in every transition between body and sleeves."
19.09.2013 - 19:34DROPS Design answered:
Dear Mrs Mercy, transition has to be made on last row with inc, you crochet 5 dc over the sts of A.1 instead of working A.1 at each raglan line. Happy crocheting!
20.09.2013 - 09:28Kein schönes Muster, sondern ein Super-Schönes-Mega-Muster. Wird sofort in Angriff genommen!
06.07.2013 - 18:47Heel mooi en waarschijnlijk niet zo moeilijk
29.06.2013 - 22:35Läcker kofta för alla årstider!
20.06.2013 - 18:01Beau modèle, dommage qu'il n'y en est pas plus au crochet. Merci à DROPS
19.06.2013 - 09:40Eva wrote:
More crochet please
14.06.2013 - 14:20Pat wrote:
More crochet. Fantastic. Love this - will work in many colours.
13.06.2013 - 15:29I was looking for just a blu jacket and i like it very much ida
11.06.2013 - 17:00Söt!
10.06.2013 - 21:34Sehr schönes Modell. Freue mich auf die Anleitung.
10.06.2013 - 10:30