Solange skrifaði:
Hola, necesito consultar por los aumentos: dice aumentar 2 pts antes/después de A1. Lo mismo que para las mantas, pero antes dice que los aumentos son desiguales. Me podrían ayudar, estoy empezando a tratar de hacer algunas cosas con patrones y me ha costado mucho. Ojalá puedan. Desde ya gracias y Saludos, Solange
05.04.2015 - 23:28DROPS Design svaraði:
Hola Solange. Por lo visto no se guardó bien la respuesta. Los aumentos desiguales se refiere a que se repiten diferente número de veces para el cuerpo y la mangas (es decir, para el cuerpo un total de 2-6-7-12-15-21 vcs y para las mangas un total de 14-15-16-17-19-20 vcs). Te recomiendo leer con atención el patrón entero antes de comenzar el trabajo. Buen crochet!
14.04.2015 - 10:49
Daniela skrifaði:
I worked all the increases according pattern but ended out with almost 600 dc on row instead of 416. Another thing, should the inc be made on A1 or on dc before A1 dc?
12.01.2015 - 21:47DROPS Design svaraði:
Dear Daniela, the inc for raglan are done by crocheting 2 in the 2 dc before and after A.1 - and then 1 dc before and after A.1 - You inc for body 2 dc 7 times 2 dc every row (= 8 dc inc per inc row) then 1 dc 17 times every row (=4 dc inc per inc row) at the same time, you inc on sleeves you inc 2 tr 16 times (8 inc per inc row) every row and then 1 tr 8 times (4 inc per inc row) every row. Happy crocheting!
13.01.2015 - 09:37Daniela skrifaði:
The increases for front/back pieces and sleeves are to be made in every row or just WS?
10.01.2015 - 22:51DROPS Design svaraði:
Dear Daniela, inc for Raglan on front + back piece and on sleeve are done every row, ie from RS and from WS. Happy crocheting!
12.01.2015 - 09:47
Cristina skrifaði:
Buongiorno, ho appena iniziato questo modello favoloso, ma sono già alla prima difficoltà: gli aumenti corpo e maniche. Io mi trovo ad avere 4 diagrammi A? Nel primo A aumento 2 m a prima E dopo? E poi? Nel secondo, terzo e quarto A 1. Scusatemi ma non riesco proprio a capire. Dimenticavo: faró una taglia M. Grazie in anticipo
09.12.2014 - 11:10DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cristina. Gli aumenti sono i seguenti: prima del 1° diag, dopo il 2° diag, prima del 3° diag, dopo il 4° diag: deve aumentare 2 m.a ad ogni riga per 6 volte. Poi aumenta 1 m.a ad ogni riga per 17 volte (questi sono gli aumenti sui davanti e sul dietro). Dopo il 1° diag, prima del 2° diag, dopo il 3° diag, prima del 4° diag: aumenta 2 m.a ad ogni riga per 15 volte, poi 1 m.a ad ogni riga per 8 volte (sono gli aumenti sulle maniche). Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!
09.12.2014 - 12:02
Cristina skrifaði:
Buongiorno, ho appena iniziato questo modello favoloso, ma sono già alla prima difficoltà: gli aumenti corpo e maniche. Io mi trovo ad avere 4 diagrammi A? Nel primo A aumento 2 m a prima E dopo? E poi? Nel secondo, terzo e quarto A 1. Scusatemi ma non riesco proprio a capire. Dimenticavo: faró una taglia M. Grazie in anticipo
09.12.2014 - 10:40DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cristina. Gli aumenti sono i seguenti: prima del 1° diag, dopo il 2° diag, prima del 3° diag, dopo il 4° diag: deve aumentare 2 m.a ad ogni riga per 6 volte. Poi aumenta 1 m.a ad ogni riga per 17 volte (questi sono gli aumenti sui davanti e sul dietro). Dopo il 1° diag, prima del 2° diag, dopo il 3° diag, prima del 4° diag: aumenta 2 m.a ad ogni riga per 15 volte, poi 1 m.a ad ogni riga per 8 volte (sono gli aumenti sulle maniche). Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!
09.12.2014 - 12:03
Marjolein De Koning skrifaði:
Inmiddels begrijp ik het al, ik zag niet goed hoe de raglan voor mouw en achterpand zat.. Nu begrijp ik dat de buitenste twee patroon a1 voor de mouwen zijn en de middelste A 1 voor het achterpand.. Bedankt in elk geval
24.10.2014 - 09:14
Marjolein De Koning skrifaði:
Ben nu bezig met maat M. Nu ga ik met de meerderingen twijfelen. Is het na de 6e herhaling van 2 steken meerderen als volgt: Stokjes, 2 st meerderen, A1, stokjes, 1 steek meerderen, A1, stokjes, 1 steek meerderen, A1, stokjes, 2 st meerderen? Of juist 1 st meerderen voor eerste A1, 2 steken meerderen voor volgende A1, 2 steken meerderen voor derde a1, 1 st meerderen voor laatste A1? graag uitleg
19.10.2014 - 22:03DROPS Design svaraði:
U vraag is ons niet helemaal duidelijk, de manier van meerderen staat omschreven voor de raglan; het is ons niet duidelijk waarom er in toer 6 iets anders zou zijn.
21.10.2014 - 11:27
Marjolein De Koning skrifaði:
Welke maat moet ik gebruiken voor maat 40-42, als ik haak met katoen op nld 3 of 3,5?
17.10.2014 - 10:40DROPS Design svaraði:
Onderaan het patroon staan de maten van het vest als het af is - u kunt deze maten vergelijken met een vest of trui die u goed past.
17.10.2014 - 16:09
Denise skrifaði:
Thanks for your reply but i am stuck again, i have the yoke done and trying to start on the body and sleeves, not really sure about the first row, do you put 1dc in to band of three so i am decreasing? (Work first row as follows from WS: 3 ch (= 1 tr), work 1 tr in each of the next 3 tr (= band), work 1 tr in every tr and 12 tr in ch-space under each sleeve until 4 tr remain on row AT THE SAME TIME inc 49-49-63-69-75-77 tr evenly over these sts)thanks very much
12.06.2014 - 10:40DROPS Design svaraði:
Dear Denise, remember crochet terminology is different in US or UK English, you continue then in dc (US)/tr (UK) as before with ch 3 for 1st dc(tr) and 1 dc(tr) in next 3 st, and finish with 4 dc(tr) in each of the last 4 st on row - do not decrease on the 4 front band st each side. Happy crocheting!
12.06.2014 - 10:57
Denise skrifaði:
Hi i just started this lovely cardigan, but i am not sure about the increasing, do i increase 2 x 2dc before AND after A1 or do i increase once 2 x 2dc before and in next row after??? can you help pls thanks
09.06.2014 - 16:32DROPS Design svaraði:
Dear Denise, increase are different for body & sleeves, you will inc first 2 dc before/after each A.1 on body 2-21 times in total (see size) and then only 1 dc before/after A.1 (20-6 times in total). And on sleeve, you will inc before/after A.1 on sleeves 14-20 times 2 dc , then 8-7 times 1 dc. Happy crocheting!
10.06.2014 - 09:43
Forget-Me-Not#forgetmenotcardigan |
||||||||||
|
||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með laskalínu og gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL
DROPS 149-19 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á öllum umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l. ÚRTAKA-1: Heklið 1 fl/st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. ÚRTAKA-2: Heklið 1 fl, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næstu fl, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næstu fl, en dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklið nú fram og til baka frá miðju að framan. BERUSTYKKI: Heklið 166-166-176-176-187-187 ll með heklunál nr 3,5 með Baby Alpaca Silk. Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-0-2-2-1-1 ll og endið á 1 fl í hverja og eina af 0-0-2-2-1-1 síðustu ll = 124-124-132-132-140-140 fl (meðtaldar 4 fl í hvorri hlið við miðju að framan fyrir kant að framan). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hverja af næstu 8-18-20-20-22-22 fl, heklið A.1 yfir næstu 5 l (þ.e.a.s. 1 st í fyrstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll, 5 st í næstu fl, hoppið yfir 1 fl, 1 ll og 1 st í næstu fl), heklið 1 st í hverja af næstu 18 fl (= ermi), A.1 yfir næstu 5 fl, 1 st í hverja af næstu 30-30-34-34-38-38 fl (= bakstykki), A.1 yfir næstu 5 fl, 1 st í hverja af næstu 18 fl (= ermi), A.1 yfir næstu 5 l og 1 st í hverja af síðustu 19-19-21-21-23-23 fl, snúið við. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM OG ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka með st og A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. JAFNFRAMT í næstu umf (= ranga) byrjar útaukning fyrir laskalínu og aukið er út þannig – ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum: LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út 2 st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki með því að hekla 2 st í hvorn af síðustu 2 st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 2 st í hverri umf, 1-5-6-11-14-20 sinnum til viðbótar (= alls 2-6-7-12-15-21 sinnum). Aukið nú út um 1 st á undan/eftir A.1 með því að hekla 2 st í síðasta st á undan/eftir A.1 á fram- og bakstykki. Endurtakið útaukningu með 1 st í hverri umf, 19-16-16-12-10-5 sinnum til viðbótar (= alls 20-17-17-13-11-6 sinnum). LASKALÍNA Á ERMUM: Aukið út um 2 st á undan/eftir A.1 í hvorri hlið á ermum með því að hekla 2 st í hvorn af síðustu 2 st á undan/eftir A.1 á ermum. Endurtakið útaukningu með 2 st í hverri umf 13-14-15-16-18-19 sinnum til viðbótar (= alls 14-15-16-17-19-20 sinnum). Aukið síðan út um 1 st á undan/eftir A.1 með því að hekla 2 st í síðasta st á undan/eftir A.1 á ermum. Endurtakið útaukningu með 1 st í hverri umf 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 8-8-8-8-7-7 sinnum). SKIPTING FRÁ A.1 TIL ST: JAFNFRAMT í síðustu umf með útaukningu eru heklaðir nú 5 st yfir A.1 í stað fyrir A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Eftir síðustu útaukningu eru 364-392-416-448-484-520 st í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig (ef næsta umf er hekluð frá röngu er þráðurinn klipptur frá og byrjað er frá réttu): Heklið 1 st í hvern og einn af fyrstu 46-51-55-61-67-74 st (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 94-98-102-106-112-116 st (= ermi), heklið 12 ll, heklið 1 st í hvern og einn af næstu 84-94-102-114-126-140 st (= bakstykki), hoppið yfir næstu 94-98-102-106-112-116 st (= ermi), heklið 12 ll og heklið 1 st í hvern og einn af síðustu 46-51-55-61-67-74 st = 200-220-236-260-284-312 l í umf. Heklið nú fram- og bakstykki og ermar áfram hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt! Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), heklið 1 st í hvern af næstu 3 st (= kantur að framan), heklið 1 st í hvern st og 12 st um ll-boga undir ermi þar til 4 st eru eftir í umf JAFNFRAMT er aukið út um 49-49-63-69-75-77 st jafnt yfir þessar l, endið á 1 st í hvern og einn af 4 síðustu st (= kantur að framan)= 249-269-299-329-359-389 st í umf. Í næstu umf frá réttu er heklað mynstur eftir mynsturteikningu A.2 með 4 st í hvorri hlið fyrir kant að framan, þ.e.a.s. 1. umf er hekluð þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern og einn af 3 fyrstu st (= kantur að framan), 1 st í næsta st, * 1 ll, hoppið yfir 4 st, 7 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 4 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 24-26-29-32-35-38 sinnum og endið á 1 st í hvern af síðustu 4 st í umf. Haldið svona áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (endurtakið umf 2-5 í mynstri). Þegar stykkið mælist ca 28-29-30-31-32-33 cm frá prjónamerki – endið eftir 3. eða 5. umf í mynstri, klippið frá (stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður). ERMI: = 94-98-102-106-112-116 st. Stykkið er heklað fram og til baka. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt! Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: Heklið 6 lausar ll, heklið 1 st í hvern st á ermi og endið umf með 8 ll, snúið við. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið 1 st í hverja af næstu 4 ll, 1 st í hvern st frá fyrri umf og 1 st í hverja af 6 ll frá byrjun fyrri umf = 106-110-114-118-124-128 st í umf. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvern af næstu 6-8-5-7-5-7 st, setjið 1 prjónamerki, heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 91-91-101-101-111-111 l, setjið 1 prjónamerki og endið á 1 st í hvern og einn af síðustu 8-10-7-9-7-9 st (umf 1 í A.2 hefur nú verið heklað). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Haldið svona áfram með mynstur fram- og til baka JAFNFRAMT er mynstrið á milli 2 prjónamerkja í næstu umf heklað eins og útskýrt er í A.3 (byrjið á umf 2 í mynstri), þ.e.a.s. að 1 mynstureining með A.2 í hvorri hlið á milli prjónamerkja er skipt út fyrir st (þessir st koma framfyrir st í ytri hlið á prjónamerkjum og prjónamerkin eru notuð sem aðstoð fyrir réttan lykkjufjölda). JAFNFRAMT í umf 2 í A.2/A.3 er fækkað um 2 st í hvorri hlið með því að hekla 4 fyrstu st í umf saman 2 og 2 og 4 síðustu st í umf saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku með 2 st í hvorri hlið í hverri umf, 3-5-3-6-4-6 sinnum til viðbótar (= alls 4-6-4-7-5-7 sinnum). Fækkið nú um 1 st í hvorri hlið í 2.-2.-3.-5.-4.-6. hverri umf alls 8-6-7-3-5-3 sinnum. Eftir síðustu úrtöku er 1 st öðru megin við A.2 og 2 st hinum megin við A.2 (A.2 er fyrir miðju 71-71-81-81-91-91 l. Haldið áfram með A.2 fram og til baka með 1 og 2 st í hvorri hlið þar til ermin mælist ca 39-39-38-38-37-37 cm frá prjónamerki (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og víðari handvegs). Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið nú peysuna til þess að fá rétta sídd á ermum. Heklið nú st fram og til baka yfir allar l – ATH: yfir l í A.2 á að vera 53-53-61-61-67-67 st = 56-56-64-64-70-70 st í umf. Þegar kanturinn með st mælist 5 cm og ermin mælist ca 44-44-43-43-42-42 frá handveg, klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í (tölum er hneppt á milli st í kanti að framan). UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA: Til þess að hálsmálið verði aðeins hærra aftan við hnakka er hægt að hekla upphækkun þannig: Setjið 1 prjónamerki í l í hvert horn á hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu. Heklið með heklunál nr 3,5 þannig: Byrjið með 1. l frá miðju að framan lengst út á kanti að framan og heklið 1 fl í hverja fl í kringum hálsmál þar til 10 fl eru eftir í umf, en 1 l á undan hverju prjónamerki er heklað þannig: Heklið 1 hst í næstu l, 1 st í næstu l (færið prjónmerki í þessa l) og 1 hst í næstu l. Snúið við, heklið 1 fl í hverja l þar til 10 l eru eftir á annarri hliðinni, en yfir 3 l í hverju horni (þ.e.a.s. l með prjónamerki í + 1 l hvoru megin við hana), heklið 3 fl saman – LESIÐ ÚRTAKA-2. Snúið við og heklið þar til 18 fl eru eftir í umf, snúið við og heklið þar til 18 fl er eftir í umf í hinni hliðinni. Haldið svona áfram fram og til baka með fl og úrtöku í hverju horni þar til kanturinn mælist ca 2 cm þar sem hann er breiðastur fyrir miðju að aftan, heklið nú 1 umf yfir allar l með 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forgetmenotcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.