Lilly skrifaði:
Hvilken aldersstørrelse er dette slipset egnet for? Er det egnet for voksne? Hvordan skal jeg evt endre oppskriften slik at det kan passe til en voksen?
15.12.2024 - 08:31DROPS Design svaraði:
Hei Lilly. Slipset er 120 cm lang og kan fint brukes til en voksen. mvh DROPS Design
16.12.2024 - 13:00
Tina Depner skrifaði:
Mit slips vender kanterne ind på den lange led, så det bliver meget smalt. Hvordan får jeg rettet det ud? Med venlig hilsen Tina
05.11.2018 - 08:34DROPS Design svaraði:
Hej Tina, du kan evt dampe det let. Læg gerne et fugtigt klæde imellem og prøv dig frem så du ikke svider slipsen :)
07.11.2018 - 11:04
Ellen skrifaði:
Something is wrong with your name it section. All I did was enter my suggestion "My Nation's Tie and Ribbon" and the response was I was a spammer or a robot because I'd made too many entries ???
05.02.2018 - 15:22
Amanda skrifaði:
Goedendag, Wat wordt er bedoeld in dit patroon bij naald 8 en 20 met 20stk recht en keer het werk? Moet ik de gehele naald recht breien? wat betekent die 20?
12.05.2014 - 23:35DROPS Design svaraði:
Hoi Amanda. Je breit verkorte toeren. Dat betekent dat je in nld 8 en 20 alleen over de eerste 20 st breit, keert en breit terug. Kijk ook hier:
13.05.2014 - 16:07
Josep Ponce skrifaði:
Kleiner Rechtschreibfehler: "TIPP ZUM AUFNEHEM" da müsste stehen: "TIPP ZUM AUFNEHMEN"
25.04.2012 - 22:56
DROPS Deutsch skrifaði:
Ist angepasst. Vielen Dank!
12.05.2011 - 11:49
Maria skrifaði:
Kleiner Rechtschreibfehler :) "TIPP ZUM ABNEHMEN: Die R. bei denen abgenommen wird werden wie folgt gestrickt: 1 rett," da muss stehen: 1 re
12.05.2011 - 11:32
DROPS Extra 0-775 |
|
|
|
Prjónað bindi og barmskraut / rosett úr DROPS Safran.
DROPS Extra 0-775 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann) til að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR: Eftir hvert skipti sem snúið er við mitt í umferð er 1. lykkju lyft af prjóni. Herðið á þræði og prjónið áfram eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningum. RENDUR: Prjónið 6 umferðir garðaprjón með litnum rauður, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, 4 umferðir garðaprjón með litnum sjávarblár, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur og 6 umferðir garðaprjón með litnum rauður. ATH! Umferð prjónuð með snúningum er ekki talin með. ÚRTAKA: Í umferð sem lykkjum er fækkað er prjónað þannig: 1 lykkja slétt, lyftið 1. lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BINDI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. BINDI: Fitjið upp 300 lykkjur með litnum rauður DROPS Safran á hringprjón 2,5. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt – lesið GARÐAPRJÓN að ofan. UMFERÐ 2: Aukið út um 1 lykkju jafnframt því sem prjónað er slétt – lesið ÚTAUKNING að ofan (= 301 lykkjur). UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: Aukið út um 1 lykkju, prjónið 13 lykkjur, snúið (= 302 lykkjur). UMFERÐ 5: Prjónið slétt til baka. UMFERÐ 6: Prjónið eins og umferð 2 (= 303 lykkjur). UMFERÐ 7: Prjónið slétt. UMFERÐ 8: Aukið út um 1 lykkju, prjónið 20 lykkjur, snúið (= 304 lykkjur). UMFERÐ 9: Prjónið slétt til baka. UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn natur og prjónið eins og umferð 2 (= 305 lykkjur). UMFERÐ 11: Prjónið slétt. UMFERÐ 12: Skiptið yfir í litinn sjávarblár og prjónið eins og umferð 2 (= 306 lykkjur). UMFERÐ 13-15: Prjónið slétt. UMFERÐ 16: Skiptið yfir í litinn natur og fækkið um 1 lykkju jafnframt er prjónað slétt – lesið ÚRTAKA (= 305 lykkjur). UMFERÐ 17: Prjónið slétt. UMFERÐ 18: Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið slétt jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju (= 304 lykkjur). UMFERÐ 19: Prjónið slétt. UMFERÐ 20: Fækkið um 1 lykkju, prjónið 20 lykkjur og snúið (= 303 lykkjur). UMFERÐ 21: Prjónið til baka. UMFERÐ 22: Fækkið um 1 lykkju jafnframt því sem prjónað er slétt (= 302 lykkjur). UMFERÐ 23: Prjónið slétt. UMFERÐ 24: Fækkið um 1 lykkju, prjónið 13 lykkjur og snúið (= 301 lykkjur). UMFERÐ 25: Prjónið til baka. UMFERÐ 26: Prjónið eins og umferð 22 (= 300 lykkjur). UMFERÐ 27: Prjónið slétt. Fellið laust af. ------------------------------------------------------- BARMSKRAUT / ROSETT - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna. BARMSKRAUT / ROSETT: Fitjið upp 35 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum sjávarblár DROPS Safran. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – 2 umferðir garðaprjón með litnum natur og 2 umferðir garðaprjón með litnum rauður. Fellið af. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-775
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.