Stella skrifaði:
You make the most confusing patterns. It is to bad because they are beautiful.
17.11.2024 - 03:31
Sonia skrifaði:
Hello, please help! Just started so is the crochet tip just for the first row or every row? How do I go from the 4 chain stitches to 6 single crochets in round 1? Increase? What does work around the ring mean? It is not 6 single crochets in the ring like usual? Thank you!
28.04.2024 - 22:47DROPS Design svaraði:
Dear Sonia, yes, unless otherwise stated in the pattern, the crochet tip is applied to every round/row. In round 1 you work a ring of chain stitches; you can see a video here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=70&lang=en. Now work the single crochets in the ring as normal; the right term is "around" since you work the stitches by surrounding the edge of the ring. So it doesn't matter how many chain stitches you initially had; what matters is the single crochets worked around the ring. The ring is smaller so as to avoid having a big hole. Happy crochetting!
29.04.2024 - 00:41
Nigar skrifaði:
Love the colour and shape
04.08.2021 - 06:23
Blue Suede Shoes#bluesuedeshoes |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar tátiljur með fastalykkjum úr DROPS Lima. Stærð 35 – 43.
DROPS 227-56 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er í hring er fyrstu fastalykkju skipt út í umferð með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Þegar heklað er fram og til baka er fyrstu fastalykkju í umferð skipt út fyrir 1 loftlykkkju. Umferðin endar með 1 fastalykkju í loftlykkju frá byrjun frá fyrri umferð. ÚRTAKA: Heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá tá og upp að rist, síðan er stykkið heklað fram og til baka að miðju aftan á hæl. Tátiljan er hekluð saman mitt að aftan. FRAMAN Á TÁTILJU: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3 með DROPS Lima og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu/næstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja af 3 fyrstu/næstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 10: * 1 fastalykkju í hverja af 4 fyrstu/næstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 11: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 12: * 1 fastalykkja í hverja af 5 fyrstu/næstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 13-14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið jafnframt út 2-6-6 fastalykkjur jafnt yfir í umferð (aukið út 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju) = 44-48-48 fastalykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í stærð 35/37 og 38/40. Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan. Stærð 41/43: UMFERÐ 16-17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 18: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið jafnframt út 0-0-4 fastalykkjur jafnt yfir í umferð = 52 fastalykkjur. Útaukning hefur nú verið gerð til loka í öllum stærðum. ALLAR STÆRÐIR: = 44-48-52 fastalykkjur. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist 13-13-14 cm frá uppfitjunarkanti. Mátið e.t.v. tátiljuna og heklið að óskaðri lengd. Klippið þræðina frá og festið. Nú skiptist stykkið og afgangur af tátilju er heklaður fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. AFTAN Á TÁTILJU: Það eru 44-48-52 fastalykkjur í umferð. Byrjun á umferð = mitt undir fæti. Heklið fastalykkjur fram og til baka yfir síðustu 16-17-18 fastalykkjur og fyrstu 16-17-18 fastalykkjur í umferð – þ.e.a.s. heklað er fram og til baka yfir alls 32-34-36 fastalykkjur og ekki er heklað yfir miðju 12-14-16 fastalykkjur á fæti – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar tátiljan mælist 20-22-25 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – mitt í 32-34-36 lykkjur. Nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. tátiljuna og heklið að óskaðri lengd. Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju hvoru megin við prjónamerki, þ.e.a.s. byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og heklið 4 næstu fastalykkjur saman 2 og 2 – sjá ÚRTAKA (= 2 fastalykkjur færri). Heklið 1 umferð án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umferð (= 2 fastalykkjur færri) = 28-30-32 fastalykkjur í umferð. Heklið 1 umferð án úrtöku. Leggið tátiljuna saman með réttuna inn og heklið stykkið saman mitt að aftan með einni umferð keðjulykkja í gegnum bæði lögin. Tátiljan mælist ca 22-24-27 cm frá tá að hæl. Klippið þræðina frá og festið. Heklið kant í kringum opið á tátiljunni eins og útskýrt er að neðan. KANTUR: Byrjið frá réttu mitt aftan á tátilju og heklið 1 fastalykkju með heklunál 3 með DROPS Lima. Heklið síðan þannig: * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca ½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið umferð með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá og festið. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluesuedeshoes eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.