Michèle Boulangier skrifaði:
Goede middag, Hebt u ook een video die toont hoe je platte bolletjes (alsof er confetti op de trui ligt) te mazen? Alvast hartelijk dank. Michèle
25.02.2025 - 11:45DROPS Design svaraði:
Dag Michèle,
Nee, zo'n video hebben we helaas niet.
02.03.2025 - 10:41
Ragnhild Madsen skrifaði:
Hvordan feste tråden når man broderer blomster?
09.02.2025 - 20:23DROPS Design svaraði:
Hej Ragnhild, det kan du gøre på bagsiden, se gerne videoer for hvordan man hæfter tråde :)
12.02.2025 - 11:39
Marisol skrifaði:
Gracias. Sus enseñsnzas son muy utiles. Saludos
17.01.2023 - 21:05
Bee Season#dropsbeeseason |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Útsaumað blóm og útsaumuð býfluga úr DROPS Air. Blómið er saumað út með keðjusaumi og leggsaumi. Býflugan er saumuð út með flatsaumi og vængirnir með keðjusaumi.
DROPS 222-44 |
||||||||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BLÓM OG BÝFLUGA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru 3 mismunandi útsaumuð blóm 1: Krónublaðið er saumað með tveimur þráðum og það eru 5 blöð. 2: Krónublaðið er saumað með einum þræði og það eru 7 blöð. 3: Krónublaðið er saumað með tveimur þráðum og það eru 4 blöð. Býflugan er saumuð með einum þræði og flatsaumi í röndum og á toppnum eru staðsettir 2 vængir með keðjusaumi. BLÓM 1: Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum bleikur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður út þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum natur og tveimur þráðum – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 5 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 2 – 2,5 cm langt. Klippið þræðina og festið. BLÓM 2: Byrjið með að sauma út leggsaum með litnum gulur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum natur og einum þræði – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 7 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 2 – 2,5 cm langt. Klippið þræðina og festið. BLÓM 3: Byrjið með að sauma út leggsaum með litnum gulur – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli og síðan er saumaður út enn einn hnúturinn beint ofan við þann fyrri. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan er saumaður keðjusaumur í kringum neðri hlið á miðju blómi með litnum natur og tveimur þráðum – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 4 spor meðfram neðri hlið á miðju á blómi og hvert spor er ca 2 – 2,5 cm langt og á að vísa niður. Klippið þræðina og festið. BÝFLUGA – SVARTUR BÚKUR: Byrjið með 1 þræði með litnum svartur – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu. Saumið út 2 spor með flatsaum þétt saman ca 0,5 að lengd, hoppaðu fram 0,5 cm, samhliða með fyrstu 2 sporunum og saumaðu 4 spor með flatsaum þétt saman sem eru ca 1 cm að lengd (= miðjan á býflugu), hoppaðu fram 0,5 cm samhliða með miðju spori og saumaðu 2 spor flatsaum þétt saman sem eru ca 0,5 cm löng. Nú á að sauma út fætur undir miðju á 4 miðju sporum, saumið 2 spor flatsaum fyrir fætur sem eru ca 0,5 langir. BÝFLUGA – GULUR BÚKUR: Skiptið yfir í 1 þráð með litinn gulur. Saumið nú með flatsaumi í bilið á milli miðju á býflugu og framhlið á býflugu – saumið 4 spor með flatsaum jafn löng spor og svarta sporið sem er næst. Saumið síðan flatsaum í bilið á milli miðju á býflugu og bakhluta á býflugu – saumið 4 spor með flatsaumi jafn löng og svarta sporið sem er næst. BÝFLUGA – VÆNGIR: Notið 1 þráð og litinn natur, vængirnir samanstanda af 2 sporum keðjusaum sem báðir byrja frá sömu átt. Byrjið á að sauma út þannig: SPOR 1: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins aftur á bak að bakhluta á býflugu – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu. SPOR 2: Saumið út spor með keðjusaum sem er ca 1 – 1,5 cm á lengd og látið sauminn snúa aðeins fram að framhlið á býflugu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsbeeseason eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.