Nú ertu búin með bakstykki og þá er komið að því að prjóna framstykkið. Hér sérðu uppskriftirnar fyrir barnapeysuna og fullorðins peysuna, passaðu þig á að fylgja réttri uppskrift!
Hér að neðan er uppskriftin á framstykki bæði fyrir barnapeysuna og fullorðins peysuna og neðst á síðunni finnur þú kennslumyndbönd sem aðstoða þig.
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð (hæð í cm): 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2.
Mynsturteikning A.2 (snjókall): Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Prjónið með 3 dokkur þannig sleppur maður við löng hopp með þráðinn á bakhlið. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku í litnum milligrár Air/grár Nepal hvoru megin á peysu og 1 dokku mynsturlit mitt í peysu. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina utan um hvorn annan. Sjá kennslumyndband: Hvernig prjóna á með 3 dokkum samtímis
FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-54-58-60-64-68 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum milligrár Air eða litnum grár Nepal. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og síðan er prjónað sléttprjón. Þegar stykkið mælist ca 6-7-8-9-10-11 cm prjónið frá réttu þannig: 13-14-16-17-19-21 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 26 lykkjur) – lesið MYNSTUR og skoðið myndband, 13-14-16-17-19-21 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 23-25-27-30-33-35 cm. Fellið af 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2, þegar A.2 er lokið er haldið áfram í sléttprjóni og með litnum milligrár Air/grár Nepal þar til stykkið mælist 31-34-37-40-43-47 cm. Setjið nú miðju 10-12-14-16-16-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 16-16-17-17-19-20 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 34-37-40-44-48-52 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan LAUST af. Stykkið mælist ca 35-38-41-45-49-53 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt.
![]() | = | natur DROPS Air / natur DROPS Nepal |
![]() | = | milligrár DROPS Air / grár DROPS Nepal |
![]() | = | svartur DROPS Air / svartur DROPS Nepal |
Tilbúið? Byrjaðu á næstu vísbendingu >>
Viltu sjá alla uppskriftina? Þú finnur hanahér!
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:
MYNSTUR:
Mynsturteikning A.2 (snjókall): Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Prjónið með 3 dokkur þannig sleppur þú við löng hopp á röngunni. Þ.e.a.s. prjónið með 1 dokku með litnum milligrár hvoru megin á peysu og 1 dokku með mynsturlit mitt í peysu. ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í litaskiptum verður að vefja þræðina um hvern annan. Sjá kennslumyndband: Hvernig prjóna á með 3 dokkum samtímis
FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu í hliðum.
Fitjið upp 22-24-24-28-30-34 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 8 með litnum milligrár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð byrjar útaukning eins og á bakstykki. Haldið síðan áfram með útaukningu eins og á bakstykki – JAFNFRAMT þegar það eru 40-40-44-44-50-56 lykkjur í umferð byrjar mynstur. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig (meðtalin útaukning í hvorri hlið): Lesið MYNSTUR að ofan! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, MYNSTUR A.2 (= 26 lykkjur), prjónið 5-5-7-7-10-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= útaukning), 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 42-42-46-46-52-58 lykkjur. Haldið áfram með mynstur, útaukning heldur áfram í hvorri hlið eins og á bakstykki = 48-52-54-60-64-72 lykkjur.
Prjónið 4-4-4-2-2-2 umferðir án útaukninga. Stykkið mælist ca 20-21-23-23-24-27 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp nýjar lykkjur fyrir handveg eins og á bakstykki = 52-56-60-66-72-80 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 er lokið á hæðina mælist stykkið ca 29-27-27-27-26-25 cm. Prjónið síðan með litnum milligrár. Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 30-29-30-31-32-30 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 2-2-2-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-74-82 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 4 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til A.1 er lokið á hæðina. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
![]() | = | slétt frá réttu, brugðið frá röngu |
![]() | = | brugðið frá réttu, slétt frá röngu |
![]() | = | natur |
![]() | = | milligrár |
![]() | = | svartur |
Tilbúið? Byrjaðu á næstu vísbendingu >>
Viltu sjá alla uppskriftina? Þú finnur hanahér!
Hér er listi yfir hjálpargögn sem geta leitt þig áfram þegar þú prjónar bakstykki á barnapeysuna eða fullorðins peysuna: