Ef þú elskar fjólublátt, þá gæti þessi skemmtilega og mjúka samsetning verið akkúrat rétt fyrir þig! Prófaðu að sameina DROPS Air 15, fjólublá þoka og DROPS Fabel 924, confettíkaka.
Útkoman er með prjónfestu um 14 lykkjur = 10 cm með 7 mm prjóni, sem hentar vel fyrir mynstur með prjónfestu uppá 15 - 14 lykkjur.
Hafðu þó í huga að prjón-/heklfestan er mismunandi eftir einstaklingum og að ráðlögð prjóna-/heklunálarstærð er aðeins leiðbeinandi. Þú getur aðlagað stærðina til að fá aðra prjónfestu - eða notað uppgefna prjónfestu sem mælt er með í uppskriftinni sem þú ert að vinna með. Gerðu bara prufu!
Ertu að leita að mynstrum sem þú getur notað fyrir þessa garnsamsetningu? Farðu þá í mynsturleitina á síðunni okkar, veldu Dömur > Peysur (eða hvaða flokk að eigin vali) og notaðu síðan síurnar til að velja 15 - 14 lykkjur (6mm) og þá finnur þú fjölda mynstra til að velja úr!
Sameinaðir litir: DROPS Air 15, fjólublá þoka + DROPS Fabel 924, confetti kaka
Prjónfestuhópur: 15 - 14 lykkjur (6mm)
Þvottaleiðbeiningar: Ertu að hugsa um hvernig á að meðhöndla / þvo verkefni í þessari garnsamsetningu? Almennt viðmið er að fylgja þvottaleiðbeiningunum fyrir það viðkvæmasta af báðum garntegundunum, en þú getur lesið nánari upplýsingar um hvernig á að þvo algengustu garnsamsetningarnar hér