Ef þú ert aðdáandi DROPS Air muntu elska þessa fallega líflegu og skýmjúku samsetningu sem er búin til með því að sameina DROPS Air magenta (39) og rósarblað (52).
Útkoman er með prjónfestu um 11 lykkjur = 10 cm með 9 mm prjóni, sem hentar vel fyrir mynstur með prjónfestu uppá 11 - 9 lykkjur.
Hafðu þó í huga að prjón-/heklfestan er mismunandi eftir einstaklingum og að ráðlögð prjóna-/heklunálarstærð er aðeins leiðbeinandi. Þú getur aðlagað stærðina til að fá aðra prjónfestu - eða notað uppgefna prjónfestu sem mælt er með í uppskriftinni sem þú ert að vinna með. Gerðu bara prufu!
Ertu að leita að mynstrum sem þú getur notað fyrir þessa garnsamsetningu? Farðu þá í mynsturleitina á síðunni okkar, veldu Dömur > Peysur (eða hvaða flokk sem þú vilt) og notaðu síðan síurnar til að velja 11 - 9 lykkjur (8 - 10mm) þú finnur margar útfærslur að velja úr!
Sameinaðir litir: DROPS Air 39, magenta + DROPS Air 52, rósarblað
Prjónfestuhópur: 11 - 9 lykkjur (8 - 10mm)
Þvottaleiðbeiningar: Ertu að hugsa um hvernig á að meðhöndla / þvo verkefni í þessari garnsamsetningu? Almennt viðmið er að fylgja þvottaleiðbeiningunum fyrir það viðkvæmasta af báðum garntegundunum, en þú getur lesið nánari upplýsingar um hvernig á að þvo algengustu garnsamsetningarnar hér