Hvernig á að prjóna á áferðamynstur

Keywords: peysa, áferð,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum áferðamynstur eftir mynsturteikningu A.1 í DROPS 197-8. Við sýnum einungis byrjun á umferð 10 og 11. Umferð 10: sláið 1 sinni uppá prjóninn, * stingið inn hægri prjón í miðju á lykkju sem er merkt með hring 4 umferðum áður en þessi umferð var gerð. Takið upp þráðinn og dragið lykkjuna út 3 cm *, prjónið 1 lykkju slétt, endurtakið frá *-* 1 sinni ( = 3 lykkjur). Þetta sýnum við 2 sinnum. Umferð 11: uppslátturinn er prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat, 3 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur snúnar slétt saman og 1 lykkja brugðin. Þetta sýnum við einnig 2 sinnum. Munið að lykkjurnar sem dregnar hafa verið út eiga að hafa rétta lengd svo að þetta verði ekki of stíft. Í þessu myndbandi notum við DROPS Snow.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú getur séð þetta mynstur með því að smella á myndina að neðan.

Myndbandið að ofan er hægt að nota í eftirfarandi mynstrum

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.