Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig prjóna á blómamynstrið - Baldursbrá.
Fitjið upp þann fjölda lykkja sem er deilanlegur með 4+1 (+ e.t.v. kantlykkjur). Í myndbandinu höfum við nú þegar fitjað upp 16 + 1 lykkjur og byrjum á umferð 1. Fyrst sýnum við umferð 1-4 einungis með grænum lit, síðan sýnum við umferð 1-2 með bláfjólubláum lit og umferð 3-4 með grænum lit. Að lokum sýnum við 6 mynstureiningar af umferð 1-4.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt * hafðu þráðinn að þér, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, látið lykkjurnar vera á vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, stingið hægri prjóni í gegnum 3 sömu lykkjurnar, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar, setjið lykkjurnar yfir á vinstri prjón, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3 (skiptið um lit): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, * 1 lykkja slétt, hafðu þráðinn að þér, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, látið lykkjurnar vera á vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, stingið hægri prjóni í gegnum 3 sömu lykkjurnar, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar, setjið lykkjurnar yfir á vinstri prjón *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin og 1 lykkja slétt.
Í myndbandinu notum við garnið DROPS Snow, en prufan með hvítum og bleikum lit er prjónað úr DROPS Safran.
Merci, enfin un tuto qui explique le point fleur avec ma façon de tricoter :-)
04.10.2019 - 11:05Bonjour Comment tricoter ce point avec des aiguilles circulaires? En vous remerciant d'avance. Bien cordialement
26.02.2018 - 22:51DROPS Design :
Bonjour Claire, vous pouvez essayer d'ajuster le motif en tricotant les rangs comme ils doivent se voir sur l'endroit. Bon tricot!
09.03.2018 - 09:42Comment faire pour avoir des patrons en français?
25.07.2017 - 23:43DROPS Design :
Bonjour Mme Nadeau, changez de langue en choisissant français sous la vidéo (en bas à droite, "available in:". Bon tricot!
26.07.2017 - 09:05