Kirsti skrifaði:
Veldig kul jakke! Vil ha den!
05.06.2013 - 20:46
Marita skrifaði:
Sind genau meine Farben und auch der Schnitt gefällt!
04.06.2013 - 15:50
Marijke skrifaði:
Prachtig model, met supermooie kleuren. Welke kleur van big delight is dit? Kan hem niet vinden in het kleurenoverzicht.
04.06.2013 - 12:16
Jonna Simonsen skrifaði:
Super lækker
03.06.2013 - 16:10
Adelheid skrifaði:
Sieht Super aus, gefällt mir sehr gut !!!
02.06.2013 - 11:11
Margit skrifaði:
Super
30.05.2013 - 21:53
Jette Johansen skrifaði:
Absolutely beautiful
30.05.2013 - 17:36
Aynie skrifaði:
Très beau modele
30.05.2013 - 15:43
Forest Princess#forestprincesscardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Big Delight í garðaprjóni og domino-ferningum. Stærð S - XXXL
DROPS 149-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 1: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 fyrstu l í Domino-ferningnum slétt saman, síðan er prjónað sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2 þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á Domino-ferningnum, prjónið 2 l slétt saman. Endurtakið umf 1 og 2 þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar l. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: A.1 sýnir hægra framstykki – örvar sýna prjónstefnu. Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 43-47-49-55-61-67 l eru eftir á prjóni. Í lok síðustu umf frá röngu eru fitjaðar upp 22 nýjar l á prjóninn = 65-69-71-77-83-89 l. Prjónið nú garðaprjón yfir fyrstu 22 l (= ermi) og HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 1 yfir síðustu 43-47-49-55-61-67 l séð frá réttu – sjá útskýringu að ofan, byrjið á 2. umf á Domino-ferningi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-24-26-29-32 cm (mælt beint upp á ermi) fellið af fyrstu 22 l, haldið áfram með HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 1. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram vinstri hlið frá fyrsta ferningi, prjónið HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2 – sjá útskýringu að ofan. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram hægri hlið á fyrri ferningi. Prjónið nú garðaprjón, JAFNFRAMT eru prjónaðar síðustu 2 l í öllum umf slétt saman þar til 1 l er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. VINSTRA FRAMSTYKKI: A.2 sýnir vinstra framstykki – örvar sýna prjónstefnu. Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið garðaprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 43-47-49-55-61-67 l á prjóni. Í lok síðustu umf frá réttu eru fitjaðar upp 22 nýjar l á prjóninn = 65-69-71-77-83-89 l. Prjónið nú garðaprjón yfir fyrstu 22 l (= ermi) og HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2 yfir síðustu 43-47-49-55-61-67 l – frá röngu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20-22-24-26-29-32 cm – í einni umf frá röngu (mælt beint upp á ermi) fellið af fyrstu 22 l, haldið áfram með HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR 2. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram hægri hlið á fyrsta ferningi, prjónið HÁLFUR DOMINO-FERNINGUR-1. Prjónið upp 43-47-49-55-61-67 l meðfram vinstri hlið á fyrri ferningi. Prjónið nú garðaprjón, JAFNFRAMT eru síðustu 2 l í öllum umf prjónaðar slétt saman þar til 1 l er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l. BAKSTYKKI: Fitjið upp 78-84-90-98-106-116 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 40-44-47-52-57-63 cm eru fitjaðar upp 22 nýjar l í lok 2 næstu umf = 122-128-134-142-150-160 l. Þegar stykkið mælist 58-64-69-76-84-93 cm eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 l fyrir hálsmáli = 52-55-57-61-64-69 l eftir á hvorri öxl. Prjónið hvora hlið til loka fyrir sig. Fellið af þegar stykkið mælist 60-66-71-78-86-95 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 198-216-232-254-280-306 l á hringprjóna nr 6 með Big Delight, upp meðfram hægra framstykki, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið garðaprjón. Þegar kantur að framan mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af fyrir 5-5-6-6-7-7 hnappagötum janft yfir hægri kant að framan, síðasta hnappagatið mælist ca 18 cm frá neðri brún, efsta hnappagatið er ca 30 cm frá öxl. Fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 l saman, sláið síðan uppá prjóninn. Haldið áfram í garðaprjóni þar til kantur að framan mælist 6-6-7-7-8-8 cm, fellið af. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestprincesscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.