Johanneke skrifaði:
Muts is erg klein. Ik zou hem een extra vierkantje geven als hij door een volwassene gedragen moet worden.
12.12.2018 - 13:24
Strickliesel skrifaði:
Hier hat sich der Fehlerteufel eingeschlichen. In der zweiten Runde mit Dominovierecken werden beim zweiten Viereck nur 1 mal 2 Maschen abgenommen, denn Die M des 1. Vierecks auf der Nadel behalten, 12 M nach unten an der linken Seite des ersten Vierecks aufnehmen und die 12. M markieren (dies ist die mittlere Masche), dann 14 M an der Oberkante des 2. Vierecks der 1. Runde aufnehmen. Ein Viereck stricken, dabei aber in der 1. R wieder 4 M abnehmen = 23 M. Wir brauchen aber 25
04.09.2018 - 12:00DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Strickliesel, Danke für den Hinweis, die deutsche Anleitung wird korrigiert. Viel Spaß beim stricken!
06.09.2018 - 09:17
Isabel Riesco skrifaði:
Quería hacer este gorro pero no tengo claras las instrucciones. Existe algún video donde se vea cómo se hace este punto? Gracias
20.01.2013 - 22:56DROPS Design svaraði:
Querida Isabel, como referencia puedes ver nuestro video “Tejido Dominó o Modular”. Para una explicación más detallada, gentilmente te solicitamos contactar la tienda donde has comprado tus lanas. Saludos afectuosos!
21.01.2013 - 04:11
DROPS Extra 0-882 |
|
|
|
Prjónuð húfa úr DROPS Delight með dominoferningum.
DROPS Extra 0-882 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- DOMINOFERNINGUR: Allir ferningarnir eru prjónaðir fram og til baka á 2 sokkaprjóna, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). Setjið 1 merki í miðjulykkju, látið merkið fylgja með í stykkinu. UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið slétt út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. það fækkar um 2 lykkjur í miðju á ferningi í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= lykkja með merki). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er stroffið prjónað neðst niðri, síðan eru prjónaðar 3 raðir með dominoferningum áður en endað er á húfunni í garðaprjóni efst uppi. Í lokin er húfan saumuð mitt að aftan nema við stroffið sem prjónað var í hring. STROFF: Fitjið upp 122 lykkjur með DROPS Delight á hringprjóna 2,5. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið hringinn í 3 cm. Síðan er prjónuð 1 umferð slétt jafnframt því sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir = 112 lykkjur, prjónið síðan 1 umferð brugðið. Haldið áfram með DOMINOFERNINGUR. DOMINOFERNINGUR: Allir ferningarnir eru prjónaðir fram og til baka á 2 sokkaprjóna nr 3 með DROPS Delight. UMFERÐ 1: 1. FERNINGUR: Fitjið upp 15 lykkjur á 1 sokkaprjón nr 3 og prjónið síðan fyrstu 14 lykkjur frá hringprjóni yfir stroff (prjónið inn í lykkju í garðaprjóni) = 29 lykkjur. Prjónið DOMINOFERNINGUR – lesið útskýringu að ofan. 2. FERNINGUR: Þegar 1 lykkja er eftir á 1. ferningi, haldið áfram þannig: Haldið lykkjum sem eru eftir á prjóni, prjónið upp 14 lykkjur frá réttu niður yfir vinstri hlið á dominoferningnum (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja rönd í garðaprjóni), síðan eru prjónaðar næstu 14 lykkjur frá hringprjóni yfir stroffi á prjóninn = alls 29 lykkjur, setjið 1 merki í miðjulykkjuna og prjónið annan dominoferning til viðbótar á sama hátt. Prjónið á sama hátt og 2. ferningur þar til 8 dominoferningar eru í umferð (allar lykkjur frá hringprjóni hafa nú verið prjónaðar inn), klippið þráðinn. UMFERÐ 2: 1. FERNINGUR: Fitjið upp 15 lykkjur, prjónið síðan upp 14 lykkjur meðfram toppi á 1. ferningi í 1. umferð (þ.e.a.s. 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni) = 29 lykkjur. Prjónið DOMINOFERNINGUR – en jafnframt í 1. umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við merki) = 25 lykkjur. 2. FERNINGUR: Haldið eftir lykkjunni frá 1. ferningi á prjóni, prjónið upp 12 lykkjur niður yfir vinstri hlið á 1. ferningi (setjið 1 merki í síðustu af 12 lykkjum = miðjulykkja) og prjónið síðan upp 14 lykkjur efst meðfram 2. ferningi í 1. umferð. Prjónið DOMINOFERNINGUR – en í 1. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir á undan merki = 25 lykkjur. Prjónið á sama hátt og 2. ferningur þar til 8 dominoferningar eru í umferð, klippið þráðinn. UMFERÐ 3: 1. FERNINGUR: Fitjið upp 11 lykkjur (setjið 1 merki í síðustu af 11 lykkjum = miðjulykkja), prjónið síðan upp 12 lykkjur meðfram toppi á 1. ferningi í 2. umferð (þ.e.a.s. 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni) = 23 lykkjur. Prjónið DOMINOFERNINGUR – en jafnframt í 1. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir á undan merki = 21 lykkjur. 2. FERNINGUR: Haldið eftir lykkju frá 1. ferningi á prjóni, prjónið upp 10 lykkjur niður yfir vinstri hlið á 1. ferningi (setjið 1 meri í síðustu af 10 lykkjum = miðjulykkja) og prjónið síðan upp 12 lykkjur efst meðfram 2. ferningi í 2. umferð. Prjónið DOMINOFERNINGUR – en í 1. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir á undan merki = 21 lykkjur. Prjónið á sama hátt og 2. ferningur þar til 8 dominoferningar eru í umferð, klippið þráðinn. Stykkið mælist nú ca 18 cm á hæðina. Prjónið síðan upp (frá réttu) 80 lykkjur á hringprjón 3 efst meðfram síðustu umferð með dominoferningum sem voru prjónaðir (þ.e.a.s. 10 lykkjur yfir hvern ferning). Setjið 1 merki í byrjun umferðar og síðan 1 merki á milli allra ferninga (= 8 merki). Prjónið slétt fram og til baka í öllum umferðum (= garðaprjón). JAFNFRAMT í 4. umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir öllum merkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð 2 sinnum og síðan í 2. hverri umferð 4 sinnum = 24 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð þar sem allar lykkjur eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman mitt að aftan í ystu lykkjubogana, svo saumurinn verði ekki þykkur. Öll húfan mælist ca 22-23 cm á hæðina. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-882
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.