Alessandra skrifaði:
Grazie adesso mi é chiaro buona giornata seguo molto questo sito ed è grazie a voi che ho imparato ad usare i ferri sono ancora all inizio e mi scuso se ad ogni minima difficoltà vi contatto a presto
18.12.2013 - 14:45DROPS Design svaraði:
Buongiorno Alessandra, siamo qui apposta!! Ci scriva ogni volta che ha bisogno! Buon lavoro!
18.12.2013 - 14:52
Alessandra skrifaði:
Salve nn riesco a capire cosa significhi fare un aumento prima e dopo il segnapunto cioe devo fare due aumenti consecutivi pssia due gettati cpnsecutivi grazie
18.12.2013 - 12:01DROPS Design svaraði:
Buongiorno Alessandra, gli aumenti vengono fatti nello stesso modo sia prima che dopo il segnapunti, cioè con 1 gettato, ma deve seguire le istruzioni per lavorare. Deve aumentare 1 m dopo il 1° segno ogni 2 f, diminuire 1 m a ogni lato del 2° segno ogni 2 f, aumentare 1 m prima del 3° segno ogni 2 f, aumentare 1 m dopo il 3° segno ogni 4 f...e così via, continui a seguire le spiegazioni. Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!
18.12.2013 - 14:29
Alessandra skrifaði:
Salve non riescp a capire quando dice aumentare una maglia prima del segnapunto e dopo il segnapunto cioe devo fare due gettati cpnsecutivi o un gettato ppi lavoro una maglia e poi un altro gettato grazie
18.12.2013 - 11:58DROPS Design svaraði:
Buongiorno Alessandra, gli aumenti vengono fatti nello stesso modo sia prima che dopo il segnapunti, cioè con 1 gettato, ma deve seguire le istruzioni per lavorare. Deve aumentare 1 m dopo il 1° segno ogni 2 f, diminuire 1 m a ogni lato del 2° segno ogni 2 f, aumentare 1 m prima del 3° segno ogni 2 f, aumentare 1 m dopo il 3° segno ogni 4 f...e così via, continui a seguire le spiegazioni. Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!
18.12.2013 - 14:29
Tina Rosvold skrifaði:
Et tips- strikk snorene FØR lua, så får de samme farge som nederste del av lua. Slik som på bildet.
28.08.2013 - 21:29
Nicolina Hauke skrifaði:
Sehr geehrte Damen und Herren, in der Anleitung ist bei den Zu- und Abnahmen sowohl von jeder 2. als auch von jeder 4. Reihe die Rede. Ist dabei berücksichtigt, dass jede 4. Reihe auch eine 2. Reihe ist. Nehme ich also in jeder 4. Reihe sowohl vor als auch nach dem 3. Markierungsfaden eine Masche auf oder soll in jeder 4. Reihe zwar nach aber nicht vor dem 3. Markierungsfaden eine Masche aufgenommen werden? Mit freundlichen Grüßen Nicolina Hauke
12.07.2013 - 22:07DROPS Design svaraði:
Liebe Nicolina, doch das ist berücksichtigt. In der 4. R wird beides durchgeführt.
13.07.2013 - 06:54
Baby Blue Hat#babybluehat |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS Delight
DROPS Baby 20-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út 1 l á undan og 1 l á eftir prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkað er um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki. Setjið 1 l á hjálparprjón og setjið aftan við stykkið, takið 1 l óprjónaða (= l með prjónamerki), prjónið næstu l og l á hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka – prjónað er slétt í öllum umf (= garðaprjón). HÚFA: Fitjið upp 119-127-135 (139-145) l á prjóna nr 2,5 með Delight. Prjónið 6 umf garðaprjón (umf 1 = rétta). Setjið nú 7 prjónamerki í stykkið (frá réttu) þannig: 1. prjónamerki í 1. lykkju á prjóni. 2. prjónamerki í lykkju nr 22-24-26 (28-31). 3. prjónamerki í lykkju nr 43-47-51 (55-61). 4. prjónamerki í lykkju nr 60-64-68 (70-73). 5. prjónamerki í lykkju nr 77-81-85 (85-85). 6. prjónamerki í lykkju nr 98-104-110 (112-115). 7. prjónamerki í síðustu lykkju á prjóni. Prjónið áfram sléttprjón – JAFNFRAMT í umf 1 byrjar útaukning og úrtaka – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Aukið út um 1 l Á EFTIR 1. prjónamerki í annarri hverri umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umf. Aukið út um 1 l Á UNDAN 3. prjónamerki í annarri hverri umf. Aukið út um 1 l Á EFTIR 3. prjónamerki í 4. hverri umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umf. Aukið út um 1 l Á UNDAN 5. prjónamerki í 4. hverri umf. Aukið út um 1 l Á EFTIR 5. prjónamerki í annarri hverri umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umf. Aukið út um 1 l Á UNDAN 7. prjónamerki í annarri hverri umf. Þegar stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt neðst við odd við 2. eða 6. prjónamerki) prjónið næstu umf frá réttu þannig: * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT sem fellt er af. FRÁGANGUR: Bakstykki á húfu = affellingarkantur, þ.e.a.s. 2 heil horn og 2 hálf horn. Miðjan á 3 heilu hornunum í gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á ennið að framan. Saumið húfuna saman kant í kant með 1 spori í hverja l meðfram affellingarkanti þannig: Saumið fyrsta hálfa hornið saman við helminginn á fyrsta heila horninu. Saumið síðan hinn helminginn af fyrsta hálfa horninu saman við fyrri helming af öðru heila horninu. Saumið síðan annan helminginn af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – passið að sauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. SNÚRA: Fitjið upp 4 l á prjóna nr 2,5 með Delight. Prjónið þannig: * Prjónið 1 l sl, færið þráðinn að framhlið á stykki (að þér), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, færið þráðinn aftur að bakhlið (frá þér) *, endurtakið frá *-* umf út og í öllum umf. Þetta verður núna hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru á sama hátt. Saumið snúrurnar neðst í tveimur hornunum í hliðum. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babybluehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.