Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hægt er að hekla einfalt blóm. Þetta blóm er heklað með mismunandi fjölda lykkja, en grunnhugmyndin er sú sama. Í myndbandinu heklum við 4 loftlykkjur og tengjum í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: * Heklið 1 fastalykkju í hringinn, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar = 3 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið nú í hvern loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 5 stuðlar og 1 keðjulykkja 3 blöð. Snúið við – næsta umferð er hekluð frá bakhlið á blómi.
UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu fastalykkju frá 1. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja neðst fyrir miðju í fyrsta blaðið frá 2. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja í kringum næstu fastalykkju frá 1. umferð, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja neðst fyrir miðju í síðasta blaðið frá 2. umferð, endið á 4 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem hekluð var í byrjun umferðar = 6 loftlykkjubogar. Snúið við – næsta umferð er hekluð frá framhlið á blómi.
UMFERÐ 4: Heklið í hvern loftlykkjuboga þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 6 stuðla og 1 keðjulykkju = 6 blöð, klippið frá.
Fylgja þarf uppskrift til þess að geta fylgt myndbandinu eftir.
Þú finnur mynstur þar sem þessi aðferð er notuð með því að smella á myndirnar að neðan.
Det går så syykt fort. Vanskelig å følge med for en nybegynner..
09.04.2020 - 20:03Heihei eg kan igrunnen ikke hekle men dette var til stor nytte når eg skulle lage min første blomst. tusen takk :)
30.09.2014 - 03:15Denne blomst er rigtig sød,jeg bruger den på mange ting. Inden jeg jeg så denne video kunne jeg ikke hækle, men jeg vågede mig ud i videoen, og den var faktisk meget nem at lave, bare man følger videoen. tak til drops for denne hjælp og blomst. hilsen jeanette
05.11.2013 - 13:00