DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni í mars!

Þú gætir líka haft gaman af...

9:47
Hvernig á að prjóna eyra á mús í bókamerki í DROPS Extra 0-1576

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum eyra á músinni á bókamerkinu “Library Mouse“ í DROPS Extra 0-1576. Prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í sömu lykkju þar til það eru alls 15 lykkjur fyrir eyra. Nú eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka yfir eyrnalykkjurnar þannig: Snúið stykkinu, prjónið brugðið frá röngu þar til 1 lykkja er eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið slétt frá réttu þar til 1 lykkja er eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið brugðið frá röngu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið, herðið á þræði, prjónið slétt frá réttu þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 5 lykkjur eru eftir í hvorri hlið, snúið, prjónið út umferðina frá röngu, snúið stykki og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu með tvöföldum þræði, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir annarri hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) = 1 lykkja eftir. Prjónið 6 lykkjur slétt, í næstu lykkju er næsta eyra prjónað, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Þetta bókamerki er prjónað úr DROPS Alpaca, en í myndbandinu notum við grófara garn; DROPS Snow. Fylgja þarf uppskrift og mynsturteikningu til þess að geta fylgt myndbandinu eftir. Þú finnur mynstrið með því að smella á myndina að neðan.

10:39
Evrópskt berustykki með laskaútaukningu. Hluti 4 - Ermar, fram- og bakstykki, ásamt nýjum lykkjum

Í þessu DROPS myndbandi er sýnt hvernig við prjónum og evrópskt berustykki með laskaútaukningu, bæði fyrir ermar, framstykki og bakstykki, ásamt nýjum lykkjum sem við fitjum upp. Við aukum út báðum megin við laskalínu = 8 útaukningar í hverri umferð, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 að neðan og hvernig við fitjum upp nýjar lykkjur undir ermi. Við höfum nú þegar prjónað bakstykkið, axlarstykkin/framstykki og sett þau saman (sjá myndband að neðan). Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt (við sýnum aðeins byrjun og endi þessarar umferðar). UMFERÐ 2: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir lykkjur á ermi, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið slétt yfir lykkjur á ermi, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið slétt út umferðina (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- bakstykki og erma = alls 8 lykkjur fleiri). Endurtakið þessar 2 umferðir eins oft og fram kemur í uppskriftinni. Stykkið mælist nú X cm mælt miðja vegu niður á ermi þaðan sem lykkjur voru prjónaðar upp og þegar peysan er brotin saman tvöfalt á öxl mælist stykkið x cm yst meðfram handvegi. Prjónið þar að fyrsta merki (= skipting á milli framstykkis og vinstri öxl). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar og nýjar lykkjur fitjaðar upp undir ermi. Lestu í uppskriftinni hversu margar lykkjur á að setja á þráð, hversu margar lykkjur á að fitja upp undir erminni og hvernig á að halda áfram að prjóna. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI - frá réttu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn að framan og prjónaðu lykkjuna slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI - frá réttu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn aftan frá og prjónaðu lykkjuna slétt í fremri lykkjubogann. Garn sem við notum í myndbandinu: DROPS Andes Þú þarft líka að lesa uppskriftina sem þú ert að prjóna eftir fyrir réttan lykkjafjölda. Uppskriftir með þessari tækni og viðeigandi myndbönd, sjá hér að neðan.

15:23
Evrópskt berustykki með laskaútaukningu. Hluti 3 - Fram-/bakstykki prjónað saman

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig við prjónum evrópskt berustykki með laskaútaukningu þar sem fram- og bakstykki eru prjónað saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi á sama tíma og útaukning er gerð fyrir hálsmáli. Við höfum nú þegar prjónað bakstykki og axlir (sjá myndband hér að neðan). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjum frá vinstra framstykki/öxl: prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri (lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 að neðan), prjónið slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru á vinstra framstykki, setjið 1 merki á prjóninn, prjónið 11 lykkjur slétt meðfram hlið vinstra framstykki, setjið 1 merki, prjónið slétt yfir lykkjur frá bakstykki, setjið 1 merki á prjóninn, prjónið upp 11 lykkjur meðfram hlið hægra framstykki, setjið 1 merki á prjóninn, prjónið slétt yfir lykkjur frá hægra framstykki þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri (lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 að neðan), prjónið síðustu 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið allar lykkjur brugðið (sýnum aðeins byrjun og endi). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið að fyrsta merki (= vinstra framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 11 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið fram að næsta merki (= bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út til vinstri, prjónið 11 lykkjur slétt, aukið út til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt út umferðina (= hægra framstykki), síðan endar umferðin með að fitjaðar eru upp 13 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar. Stykkið er síðan prjónað í hring. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur (þessi umferð er ekki sýnd). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út um 2 lykkjur fyrir hvora ermi eins og áður, lykkjum fjölgar á hvorri ermi, lykkjufjöldi á fram- og bakstykki helst óbreyttur. Prjónið þessar 2 umferðir 8 sinnum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI - frá réttu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn að framan og prjónaðu lykkjuna slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI - frá réttu: Notaðu vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja af prjóni fyrir neðan, taktu upp þráðinn aftan frá og prjónaðu lykkjuna slétt í fremri lykkjubogann. Garn sem við notum í myndbandinu: DROPS Andes Þú þarft líka að lesa uppskriftina sem þú ert að prjóna eftir fyrir réttan lykkjafjölda. Uppskriftir með þessari tækni og viðeigandi myndbönd, sjá hér að neðan.