DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Enchanted Underwood Jacket

Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með köðlum og stuðlakrókum. Stærð XS - XXL.

DROPS 218-31
DROPS Design: Mynstur ai-293
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-450-500-550-600 g litur 02, hveiti

HEKLFESTA:
14 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina (með annarri hverri umferð með fastalykkjum og tvíbrugðnum stuðlum) = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

DROPS TALA, Marble NR 629: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum eru heklaðar 4 loftlykkjur, þessar 4 loftlykkjur koma ekki í stað 1. tvíbrugðna stuðul.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3, A.4, A.6, A.8 og A.9).

ÚTAUKNING (á við um handveg):
Aukið út um 2 lykkjur með því að hekla 3 lykkjur í ystu lykkjuna við handveg.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 fyrstu lykkjurnar í umferð og 2 síðustu lykkjurnar í umferð saman þannig:
Heklið 1 fastalykkju, en bíði með að síðasta uppsláttinn og að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, en eftir síðasta uppsláttinn, dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður og heklað er fram og til baka í stykkjum sem eru hekluð eða saumuð saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Vinstri öxl:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör) frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 1-1-3-1-3-5 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3 yfir næstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur (finndu þína stærð í mynsturteikningu). Þegar umferð með ör hefur verið hekluð til loka, klippið frá og geymið stykkið. Heklið hægri öxl.
Hægri öxl:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 og Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör) frá réttu þannig:
Heklið A.4 yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur (finndu þína stærð í mynsturteikningu), A.5 yfir næstu 4 lykkjur, A.1 yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur. Þegar umferð með ör hefur verið hekluð til loka, heklið næstu umferð í mynsturteikningu (= 1 lykkja fleiri við hálsmál), síðan eru heklaðar 20-20-20-24-24-24 lausar loftlykkjur (= hálsmál) og heklið síðan umferð eftir það með ör yfir vinstri öxl þannig: Heklið A.3 yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur (= 1 lykkja fleiri við hálsmál), A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.1 yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur = 52-52-56-60-64-68 lykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram með næstu 2 umferðir í mynstri og yfir nýjar loftlykkjur fyrir hálsmáli er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja lykkju frá réttu og 1 fastalykkju í hverja lykkju frá röngu.
Heklið nú mynstur þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 22-22-24-26-28-30 lykkjur, heklið A.2 yfir næstu 4 lykkjur og A.5 yfir næstu 4 lykkjur (stillið af að A.2 og A.5 byrji í sömu umferð eins og í mynsturteikningu í hvorri hlið á bakstykki), heklið mynstur eins og áður yfir síðustu 22-22-24-26-28-30 lykkjur. Þegar A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið mynstur þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 5-5-7-5-7-9 lykkjur, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið A.2 og A.5 eins og áður, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið eins og áður yfir síðustu 5-5-7-5-7-9 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Mynsturteikningin er endurtekin frá umferð með ör.
Þegar stykkið mælist 17-16-17-18-19-19 cm, aukið út 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 2-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 60-64-68-72-76-84 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 lausar loftlykkjur fyrir handveg í hvorri hlið = 66-72-78-84-90-98 lykkjur. Nýjar lykkjur í hvorri hlið eru heklaðar í mynstri A.1.
Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm mælt frá öxl og niður – stillið af að endað sé eftir umferð með ör í A.6 eða eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu.
Heklið nú kant þannig: Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1 lykkju í umferð með því að hekla 2 fastalykkjur í eina af lykkjum = 67-73-79-85-91-99 lykkjur. Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkju í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum-þríbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda. Bakstykki mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör) frá réttu þannig:
Heklið A.1 yfir fyrstu 1-1-3-1-3-5 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.8 yfir næstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur (finndu þína stærð í mynsturteikningu). Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar 3. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina (byrjið að telja frá umferð með ör), klippið frá. Heklið 9-9-9-11-11-11 lausar loftlykkjur (= hálsmál), heklið 4. umferð í A.8 og A.2 frá röngu eins og áður og heklið A.1 út umferðina eins og áður = 27-27-29-31-33-35 lykkjur.
Heklið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 5-5-7-5-7-9 lykkjurnar, haldið síðan áfram með A.8, heklið síðan 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 9-9-9-11-11-11 lykkjur. Heklið 1 umferð til baka frá röngu með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Haldið svona áfram fram og til baka, en þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð frá réttu er heklað A.2 (stillið af að byrjað sé í sömu umferð og A.2 í byrjun á umferð) og endið með A.1 yfir síðustu lykkju. Þegar A.8 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið mynstur þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 5-5-7-5-7-9 lykkjur, heklið A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur og heklið út umferð eins og áður.
Þegar stykkið mælist 17-16-17-18-19-19 cm frá öxl – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í hlið fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 2-3-3-3-3-4 sinnum = 31-33-35-37-39-43 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 lausar loftlykkjur fyrir handveg = 34-37-40-43-46-50 lykkjur. Heklið síðan til skiptis tvíbrugðna stuðla frá réttu og fastalykkjur frá röngu yfir nýjar lykkjur og mynstur er heklað eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 47-49-51-53-55-57 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með ör í A.6 eða á eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu.
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1-0-1-0-1-1 lykkju í umferð með því að hekla 2 fastalykkjur í eina af lykkjum = 35-37-41-43-47-51 lykkjur. Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkjuna í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðirnar í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum-þríbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda. Hægra framstykki mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 15-15-17-17-19-21 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið fyrstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR = 15-15-17-17-19-21 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið síðan 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju.
Heklið nú mynstur (byrjið á umferð með ör) frá réttu þannig:
Heklið A.9 yfir fyrstu 10-10-10-12-12-12 lykkjur, A.5 yfir næstu 4 lykkjur, A.1 yfir síðustu 1-1-3-1-3-5 lykkjur.Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka (byrjið að telja frá umferð með ör), heklið 9-9-9-11-11-11 lausar loftlykkjur í lok umferðar (= hálsmál) = 27-27-29-31-33-35 lykkjur.
Snúið og heklið fram og til baka eins og áður, en yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli er heklaður 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja loftlykkju. Heklið 1 umferð til baka frá röngu með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, A.5 yfir næstu 4 lykkjur, heklið mynstur eins og áður út umferðina.
Þegar A.9 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið mynstur þannig:
Heklið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjurnar, A.6 yfir næstu 17-17-17-21-21-21 lykkjur, heklið mynstur eins og áður yfir síðustu 5-5-7-5-7-9 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 17-16-17-18-19-19 cm frá öxl – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu, aukið út um 2 lykkjur í hlið fyrir handveg – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 2-3-3-3-3-4 sinnum = 31-33-35-37-39-43 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 lausar loftlykkjur fyrir handveg = 34-37-40-43-46-50 lykkjur. Heklið síðan til skiptis tvíbrugðna stuðla frá réttu og fastalykkjur frá röngu yfir nýjar lykkjur og mynstur er heklað eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 47-49-51-53-55-57 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með ör í A.6 eða á eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu.
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1-0-1-0-1-1 lykkju í umferð með því að hekla 2 fastalykkjur í eina af lykkjum = 35-37-41-43-47-51 lykkjur. Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkjuna í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum-þríbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda. Hægra framstykki mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í lykkjurnar eina og eina, en passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Heklið hliðarsaumana saman í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í hlið undir ermi, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, 1 fastalykkju *, heklið frá *-* meðfram öllum hliðarsaumnum, endið með 1 fastalykkju. Endurtakið í hinni hliðinni.

ERMI:
Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður.
Heklið 24-24-24-25-25-27 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR UM LOFTLYKKJUR, með heklunál 5 með Air. Snúið og heklið frá umferð með ör í A.1 – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, JAFNFRAMT er aukið út fyrir ermakúpu í hvorri hlið á ermi þannig: Aukið út 2 lykkjur 3-1-2-1-0-0 sinnum og 1 lykkju 3-7-6-8-10-11 sinnum = 42-42-44-45-45-49 lykkjur. Í lok næstu 2 umferða eru heklaðar 3-4-5-6-7-7 nýjar loftlykkjur fyrir handveg = 48-50-54-57-59-63 lykkjur. Nýjar lykkjur í hvorri hlið eru heklaðar í mynstri A.1.
Setjið 1 prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram fram og til baka með A.1. Þegar stykkið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum, fækkið lykkjum í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með fastalykkjum alls 6-6-8-8-9-10 sinnum = 36-38-38-41-41-43 lykkjur. Haldið áfram þar til ermin mælist 39-38-38-37-35-34 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum. Heklið nú kant þannig:
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju og aukið út 1-1-1-0-0-0 lykkjur í umferð = 37-39-39-41-41-43 lykkjur.
Heklið frá umferð með ör í A.7 þar til 1 lykkja er eftir, heklið fyrstu lykkjuna í A.7.
Endurtakið síðustu 2 umferðirnar í mynsturteikningu þar til kanturinn mælist 6 cm – stillið af að endað sé eftir umferð með stuðlum/stuðlakrókum- þríbrugðnum stuðlum.
Heklið nú ermasauma undir ermi í gegnum bæði lögin frá röngu þannig: * Heklið 1 fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* upp þar sem lykkjur voru fitjaðar upp 3-4-5-6-7-7 loftlykkjur undir ermi í hvorri hlið, endið með 1 fastalykkju.
Heklið hina ermina alveg eins. Saumið ermar í við fram- og bakstykki.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Hægri kantur að framan:
UMFERÐ 1: Byrjið efst í hálsmáli og heklið frá röngu með heklunál 5 og Air þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 3 fastalykkjur um næsta tvíbrugðna stuðul, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 3 fastalykkjur um næsta tvíbrugðna stuðul, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni við miðju að framan = ca 64 til 78 lykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 umferð með 1 stuðli í hverja lykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda.
Vinstri kantur að framan:
Heklið alveg eins og hægri kantur að framan, en byrjið frá röngu neðst í vinstra framstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
UMFERÐ 1: Byrjið í ystu lykkju í vinstri kanti að framan í hálsi og heklið frá röngu þannig: Festið þráðinn með 1 fastalykkju, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum allan kant í hálsi = ca 35 til 39 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 stuðli í síðustu fastalykkju í umferð.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kanti að framan. Saumið fyrstu tölu í skiptinguna á milli kant í hálsmáli og kant að framan, síðan eru næstu 5-5-5-6-6-6 tölur saumaðar í með ca 8½-9-9-8-8-8½ cm millibili. Tölur eru hnepptar á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2020
Ný mynsturteikning A.6 (það vantaði 1 stuðul í miðju, í sömu röð og örin).

Mynstur

symbols = byrjið hér
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklaður í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 lykkju frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfa lykkjuna). Hringur í enda á stuðlakrók-fjórbrugðnum stuðli sýnir í hvaða lykkju á að hekla utan um frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull byrjar. Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul þannig: Bregðið þræðinum 4 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 5 sinnum = 1 lykkja.
symbols = STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklað í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul alveg eins og útskýrt er að ofan, en heklið þannig að þessir fjórbrugðnu stuðlar liggi aftan við fjórbrugðna stuðla með svörtum hring.
symbols = STUÐLAKRÓKUR-FIMMBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklaður í umferð með tvíbrugðnum stuðlum): Heklið 1 fimmbrugðinn stuðul um 1 lykkju frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfa lykkjuna). Hringur í enda á stuðlakrók-fimmbrugðnum stuðli sýnir í hvaða lykkju á að hekla utan um frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fimmbrugðinn stuðull byrjar. Heklið 1 fimmbrugðinn stuðul þannig: Bregðið þræðinum 5 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 6 sinnum = 1 lykkja.
ATH: Fimmbrugðnu stuðlarnir eiga að fléttast þannig að þeir liggi aftan við hinar lykkjurnar.

symbols = heklið 2 fastalykkjur í lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = heklið 2 tvíbrugðna stuðla í lykkju (= 1 lykkja fleiri)
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = STUÐLAKRÓKUR-ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklaður í umferð með stuðlum): Heklið 1 þríbrugðinn stuðul um 1 stuðul/stuðlakróf-þríbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum/stuðlakrók-þríbrugðnum stuðlum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan stuðuðl/stuðlakróf-þríbrugðinn stuðul).
Bregðið þræðinum 3 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni um lykkjuna, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 1 lykkja.
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Heike Sabine Zeiß wrote:

Vielleicht habe ich meine Feage nicht richtig gestellt: wie setzen sich die 28 Maschen zusammen? Zuvor hebe ich A1 mit 3, dann A2 mit 4 und dann A3 mit 15 Maschen gehäkelt. Zusammen sind das aber nur 22. Und dann?

09.10.2023 - 05:56

DROPS Design answered:

Liebe Heike, die Anleitung wurde etwas anders formuliert und ist nun hoffentlich besser verständlich: "Im Muster und mit Doppelstäbchen/festen Maschen wie zuvor über die ersten 22-22-24-26-28-30 Maschen"..., d.h. Sie häkeln A.1, A.2 und A.3 wie gehabt und die restlichen 6 Maschen als Doppelstäbchen bzw. feste Maschen. Gutes Gelingen nun!

09.10.2023 - 21:22

country flag Heike Sabine Zeiß wrote:

Hallo, ich habe jetzt die 2 Reihen nach Luftmaschenanschlag für den Hals gehäkelt und die 2 Reihen danach. Nun verstehe ich, welches Muster ich über 28 Maschen häkeln soll.

03.10.2023 - 21:34

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zeiß, die ersten und letzten 28 Maschen werden genauso wiezuvor gehäkelt, bis die Diagramme fertig in der Höhe sind. Viel Spaß beim häkeln!

04.10.2023 - 08:00

country flag Colleen wrote:

I had some trouble with the large size. my arm holes were much larger than my sleeve holes so when I sewed them on the body has too much material for the arm attachment.

22.02.2023 - 05:40

DROPS Design answered:

Dear Colleen, the sleeve should match the armhole, ie you will work the part before the marker along the whole armhole (the first chain stitches cast on then the new chain stitches increased on each side ) - using pins to place the sleeve before sewing it to the armhole can help. Happy assembly!

22.02.2023 - 08:59

country flag Monica wrote:

Is het mogelijk om bij de vragen en opmerkingen in andere talen een vertaaloptieknopje toe te passen? Het is dat ik Duits kan lezen anders had ik waarschijnlijk dezelfde vraag moeten stellen over waar precies te meten op het achterpand op 17 cm (vanaf de hals of schouder). Nu weet ik dat het vanaf de schouder is, maar als het er in het Zweeds had gestaan had ik het niet geweten. Alvast bedankt!

30.07.2021 - 08:41

DROPS Design answered:

Dag Monica,

Helaas is er geen (automatische) vertaalmogelijkheid, aangezien brei- en haaktermen vaak niet goed vertaald worden met google translate, maar het is geen enkel probleem om dezelfde vraag nogmaals in een andere taal te stellen. Fijn dat je er nu zelf uit bent gekomen.

02.08.2021 - 21:14

country flag Sarah Hoss wrote:

Hallo liebes Drops-Team. Ich habe eine schnelle Frage zur Anleitung. Und zwar, ob beim Rückenteil die 17 cm Arbeitslänge (Beginn der Zunahmen der Armausschnitte) ab dem Halsausschnitt oder ab der Schulternaht gemessen werden soll? Lieben Dank im Voraus, Sarah

15.04.2021 - 16:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hoss, diese 17 cm werden vom Schulter gemessen. Viel Spaß beim häkeln!

16.04.2021 - 14:02

country flag Loes Vd Cruysen wrote:

Vraag: Wanneer komen die mooie Lente/zomer collectie online?

17.02.2021 - 19:19

DROPS Design answered:

Dag Loes,

We zijn druk bezig met vertalen en controleren en in de loop van de komende maanden komen alle patronen online. hier vind je een overzicht van alle patronen van de DROPS Lente & Zomer collectie, waarvan je kunt zien dat er ook al een aantal gepubliceerd zijn.

21.02.2021 - 10:56

country flag Gerda Leber wrote:

Ik mis de schematische tekening van A7. Graag uw reactie. Mvg Gerda

03.02.2021 - 11:29

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

A.7 staat een beetje verstopt :), namelijk onder de mouw bij de matentekening onderaan het patroon.

06.02.2021 - 11:28

country flag Isabella Baarman wrote:

Hej, jag får inte ihop maskornas antal på bakstycket men hoppas att min syster kan hjälpa mig med det. Min egentliga fråga gäller ärmen. Jag hittar inte mönster A7?

09.01.2021 - 16:57

DROPS Design answered:

Hej Isabella. Diagram A.7 hittar du längst ner, till höger om måttskissen. Mvh DROPS Design

12.01.2021 - 13:34

country flag Malene wrote:

Har I et billede af, hvordan ryggen ser ud? Jeg er kommet der til hvor jeg har sat Venstre skulder på, hæklet mønster den ene vej og fastmasker den anden vej, men forstå ikke hvordan jeg skal hækle mønster over 26 masker? (Str L)

03.01.2021 - 14:19

DROPS Design answered:

Hej Malene, du har 60 masker i L Nu hækles der mønster således: Hækl mønster som før over de første 26 masker, hækl A.2 over de næste 4 masker og A.5 over de næste 4 masker (sørg for at A.2 og A.5 starter på samme række som i diagrammerne i hver side af bagstykket), hækl mønster som før over de sidste 26 masker. Du fortsætter altså med samme mønster som du har hæklet på skulderstykkerne tidligere. God fornøjelse!

14.01.2021 - 13:38

country flag Kirstine wrote:

Jeg forstår desværre ikke om hvornår det er at jeg skal sætte venstre skulder på igen? Er det efter man har lavet de 20 løse luftmasker? Hvis jeg gør det, og laver fastmasker i de 18 masker på den venstre skulder, så kommer diagrammet ikke til at passe, når jeg hækler den næste række.

22.12.2020 - 23:32

DROPS Design answered:

Hej Kirstine, jo sørg for at du er kommet lige så langt som på venstre skulder fra retsiden. Du starter nu fra vrangen, hækler 2.række i diagrammet på højre skulder, hækler luftmaskerne imellem stykkerne og hækler videre med 2.række (rækken efter den med pil) på venstre skulder. God fornøjesle!

07.01.2021 - 11:20