Nú höldum við áfram með sjalið! Eins og áður þá getur þú séð kennslumyndbönd neðst í hverri vísbendingu. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, þá getur skrifað þær í dálkinn neðst á síðunni.
Í þessari vísbendingu þá heklum við frá umferð 5 til umferð 8.
Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 17 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 10 cm frá fyrsta loftlykkjuhring og niður mitt á sjalinu.
![]() |
= | 1 loftlykkja |
![]() |
= | 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/loftlykkju |
![]() |
= | 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga |
![]() |
= | um þennan loftlykkjuboga er aukið út um 1 loftlykkjuboga með því að hekla 2 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í mynsturteikningu |
![]() |
= | byrjið hér |
Hér er nákvæmari útskýring á hvernig þú byrjar á vísbendingu #2. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu.
UMFERÐ 1:
Heklið eftir mynsturteikningu A.2a þannig: 7 loftlykkjur, 1 fastalykkja um 1. loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga – sem er merktur með litlum hring.
Eftir þetta er heklað eftir mynsturteikningu A.2b þannig: 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur.
Að lokum er heklað eftir mynsturteikningu A.2c þannig: 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur og 1 tvíbrugðinn stuðull um síðasta loftlykkjuboga, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið eftir mynsturteikningu A.2c, A.2b og A.2a.
UMFERÐ 3: Heklið eftir mynsturteikningu A.2a, A.2b og A.2c.
UMFERÐ 4: Heklið eftir mynsturteikningu A.2c, A.2b og A.2a.
Nú ertu tilbúin með vísbendingu #2! Ekki gleyma að deila myndunum þínum með okkur í dropsalong gallery!
Excellent video! This has helped me complete the clue and also understand how to read the diagram. Thank you for this helpful video.
11.05.2018 - 19:09