Prjónfesta sýnir fjölda lykkja á breidd og fjölda lykkja á hæð á 10 cm.
Prjónfestan fer eftir lykkjum, garni, grófleika prjóna/heklunála og einnig spennu (þ.e.a.s. hversu mikið garn fer í á milli lykkja).
Þéttleikann er hægt að jafna út til að hann henti tilgreindri festu í mynstri með því að skipta um grófleika á prjónum. Grófari prjónar gefa lausari prjónfestu (færri lykkjur á hvern cm og fínni prjónar gefa fastari prjónfestu (fleiri lykkjur á hvern cm).
Stroff og kaðlar dragast saman, sem gefa fleiri lykkjur á breiddina en sléttprjón, garðaprjón eða perluprjón.
Grófara garn gefur stærri lykkjur (þ.e.a.s. lykkjufjöldinn fækkar á breiddina og á hæðina).
Prjónfestan þín getur líka verið breytileg í sama stykkinu (sérstaklega hjá byrjendum) og þegar þú ert farin að þekkja mynstrið, þá verður þú afslappaðri og lykkjurnar verða öðruvísi, sem gefur aðra prjónfestu.
Mikilvægt er að prjónfestan sé rétt ef flíkin á að ná tilteknum málum og verða eins og til er ætlast. Prjónið sýnishorn af mynstrinu, ferning með prjónaðferðinni sem gefin er upp og garni. Kantar á sýnishorninu hafa áhrif á mælinguna, þannig að það er gott að gera ferning minnst 15 x 15 cm.
Að prjóna sýnishorn aðlagar þig að prjónaðferðinni þannig að þú færð jafnari áferð og prjónfestu áður en þú byrjar á stykkinu.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Audrey skrifaði:
Je n'ai jamais vraiment pris le temps de faire des échantillons. Je suis toujours impatiente de commencer un nouveau modèle, alors je ne voulais pas m'embêter à faire un échantillon. Je crois finalement que je vais m'en préoccuper d'avantage, ne serait-ce que pour avoir les bonnes dimentions! ;)
16.07.2011 - 04:52