DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Ice Hat

Prjónaður og þæfður hattur úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp í sléttprjóni og með barði.

DROPS 234-11
DROPS Design: Mynstur ee-743
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál ca: 54/56 - 58/59 - 60 cm
Hæð eftir þæfingu ca: 24 - 25 - 26 cm
Hæð fyrir þæfingu ca: 47 - 50 - 52 cm

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
200-250-250 g litur 87, þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
Fyrir þæfingu: 10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Eftir þæfingu: 13,5 lykkjur á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA-1:
Hægt er að fækka lykkjum bæði frá réttu og frá röngu, lykkjur eru prjónaðar slétt saman frá réttu eða brugðið saman frá röngu.

ÚRTAKA-2:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 75 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 7,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna til skiptis 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp fram og til baka á hringprjóna, saumað saman mitt að aftan og þæft í þvottavél.

HATTUR:
Fitjið upp 115-122-122 lykkjur á hringprjón 9 með DROPS Snow.
Allt stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni (fyrsta umferð er frá röngu). Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Sjá ÚRTAKA-1!
Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Prjónið 9 lykkjur, * prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 14-15-15 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum, prjónið 2 lykkjur saman og prjónið 8-9-9 lykkjur = 108-115-115 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 6-7-7 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Í næstu umferð er lykkjum fækkað mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S/M:
Prjónið 8. og 9. hverja lykkju saman = 96 lykkjur.
Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig:
* Prjónið 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 3 lykkjur, prjónið 2 lykkjur saman *, prjónið frá *-* alls 10 sinnum, prjónið 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur saman og prjónið 2 lykkjur = 75 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 10 cm.

STÆRÐ M/L:
Prjónið 8 lykkjur, * prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 6 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum, prjónið 2 lykkjur saman og prjónið 9 lykkjur = 102 lykkjur.
Fækkið lykkjum í næstu umferð þannig:
Prjónið 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur saman, * prjónið 1 lykkju, prjónið 2 lykkjur saman *, prjónið frá *-* 3 sinnum, *** prjónið 3 lykkjur, prjónið 2 lykkjur saman **, prjónið frá **-** alls 15 sinnum, prjónið frá *-* alls 4 sinnum og prjónið 2 lykkjur = 79 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 11 cm.

STÆRÐ L/XL:
Prjónið 8 lykkjur, * prjónið 2 lykkjur saman, prjónið 6 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 12 sinnum, prjónið 2 lykkjur saman og prjónið 9 lykkjur = 102 lykkjur.
Fækkið lykkjum í næstu umferð þannig:
* Prjónið 3 lykkjur, prjónið 2 lykkjur saman *, prjónið frá *-* alls 20 sinnum og prjónið 2 lykkjur = 82 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 11 cm.

ALLAR STÆRÐIR:
= 75-79-82 lykkjur. Stykkið mælist ca 10-11-11 cm. Prjónið þar til stykkið mælist 36-39-41 cm frá uppfitjun.
Nú er lykkjum fækkað þannig:
Fækkið um 10-11-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2! = 65-68-71 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Fækkið um 10-11-11 lykkjur jafnt yfir = 55-57-60 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Fækkið um 11-11-12 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Fækkið um 11-11-12 lykkjur jafnt yfir = 33-35-36 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Fækkið um 11-11-12 lykkjur jafnt yfir = 22-24-24 lykkjur.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2 = 11-12-12 lykkjur.
Stykkið mælist alls ca 47-50-52 cm. Klippið þráðinn. Þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.

FRÁGANGUR:
Saumið hattinn saman mitt að aftan, saumið í ystu lykkjubogana.

ÞÆFING:
Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm.
Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi.
Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott.

EFTIR ÞÆFINGU:
Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott.
Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst.
Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.11.2022
HATTUR og ALLAR STÆRÐIR = 75-79-82 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-39-41 cm.
Yfirfarið á vefsvæði: 30.11.2022
Uppskriftin hefur verið uppfærð til að auðvelda hana.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 234-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Kate wrote:

Добрий вечір. На початку вказано що є 3 розміри S/M – M/L – L/XL , а в поясненнях до скорочень є тільки S/M – L/XL. Де побачити M/L?

30.11.2023 - 17:32

country flag Jenny Seaborn wrote:

Thank you for your reply, while I was waiting to hear from you I knitted the hat in the round and it came out beautifully, thank you. I would like to send you a photo. I love the Drops yarns, never use anything else. Thanks, Jenny

27.02.2023 - 10:05

country flag Jenny Seaborn wrote:

Is there any reason why this hat can't be knitted in the round?

22.02.2023 - 11:52

DROPS Design answered:

Dear Jenny, working back and forth and then sewing in the mid-back will let us obtain a better shape for the bucket hat than working in the round. Happy knitting!

26.02.2023 - 22:33

country flag Agathe wrote:

"NOTE! Ne pas oublier que la taille des aiguilles n’est qu’une suggestion. Si vous avez trop de mailles pour 10 cm, essayez avec des aiguilles plus grosses. Si vous avez trop de mailles pour 10 cm, essayez avec des aiguilles plus fines. ". There is an error here

16.01.2023 - 03:39

DROPS Design answered:

Bonjour Agathe, correction faite, merci pour votre retour, bon tricot!

16.01.2023 - 10:54

country flag Alexandra wrote:

Hei. Det står i oppskriften (str S) at jeg skal strikke videre etter felling til arbeidet måler 10 cm. Deretter står det at jeg skal strikke videre til arbeidet måler 36 cm. Hvordor står det ikke bare at du skal strikke videre til arbeidet måler 46 cm? Er det noe jeg ikke forstår her?

12.12.2022 - 23:08

country flag Diana wrote:

Er is een groot verschil tussen maat S/M en de andere maten. De 3e mindering moet in maat S/M volgens de beschrijving meteen na de 2e en bij de andere maten na 10-11 cm. Klopt dat wel?

03.12.2022 - 11:08

DROPS Design answered:

Dag Diana,

De minderingen waren voor maat M/L niet goed omschreven. Het is nu aangepast. Je breit volgens de instructies voor jouw maat, d.w.z. dat je de paragraaf voor jouw maat breit en de paragrafen in de andere maten overslaat en dan verder breit zoals beschreven onder 'alle maten'.

04.12.2022 - 16:12

country flag Anna wrote:

I agree with all other comments regarding the excessive length of the finished product. I made the size S and reducing the 36 cm to 31 cm after the last decrease still gave me a rather long hat. The width is perfect though.

19.11.2022 - 15:10

country flag Olga Zaiser wrote:

Ich habe den Hut in Größe M gestrickt, nach dem Filzen kam ich aber auf 29cm gesamt Länge. In Anleitung sind 50% vorgesehen was leider falsch ist. Leider habe ich mich auf die Anleitung und nicht nach meine Kenntnisse verlasen. Nach dem Filzen gehen Sachen nicht um 50% ,sondern nur um 40%. So ist auch passiert. ich habe schöne Form und sehr feste Filzqualität, nur leider ist Hut mindestens 5-6cm zu lang. Sehr schade um Zeit und Geld. Außerdem sieht Naht hinten sehr auffällig aus.

12.11.2022 - 11:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Zaiser, hier lesen Sie mehr um Filzen - am besten stricken Sie und filzen Sie Ihre Maschenprobe, so kann es Ihnen am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2022 - 10:47

country flag Rigmor wrote:

Ska göra de sista minskningarna för ”kullen”. 39 cm sen sista minskningen + brättet 12 cm, dvs min hatt mäter redan mer än 50 cm totalt, och om jag räknar rätt så är det 17 v kvar med minskningar. Hur får ni det att gå ihop? Vänliga hälsningar Rigmor

08.11.2022 - 10:25

DROPS Design answered:

Hei Rigmor. Her ser det ut som at det ikke skulle ha vært mål fra siste felling, men fra oppleggskanten under ALLE STØRRELSER. Takk for at du gjorde oss oppmeksom på dette, vi legger ut en rettelse. mvh DROPS Design

14.11.2022 - 12:41

country flag Babsi wrote:

Moin, ich würde den Hut oben lieber in Runden, ggf mit Nadelspiel, Stricken. Ist das auch möglich und wenn ja wie?

03.11.2022 - 07:01

DROPS Design answered:

Liebe Babsi, dann brauchen Sie wahrscheinlich 2 Maschen weniger (die Randmaschen) und sollen die Anleitung so anpassen. Viel Spaß beim stricken!

03.11.2022 - 10:30