Caroline Spooner-Kenyon skrifaði:
Love this pattern. I do not understand the instruction re puff stitch should CROSS OVER THE TREBLE CROCHET so that treble crochet is on the wrong side. Do I turn the work around to cross over that treble crochet and get it on the wrong side? Is there a video for this?
30.11.2019 - 23:02
Mirka skrifaði:
È bellissimo... spero di vedere presto il pattern per realizzarlo. Grazie
22.08.2019 - 17:27
Kim Nelson skrifaði:
Please include this cardigan/jacket. It's something that my customers would definitely purchase. It's beautiful and different than many of the crocheted sweaters you use.
21.08.2019 - 23:01
Autumn Gold Jacket#autumngoldjacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað með hringlaga berustykki, ofan frá og niður með pufflykkjum á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-20 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðll/tvíbrugðinn stuðull. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 5,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í til skiptis 5. og 6. hverja lykkju frá fyrri umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. 1 PUFFLYKKJA: Heklið í sömu lykkju þannig (það er mikilvægt að hekla í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði of smáar og saman pakkaðar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 11 lykkjur á heklunálinni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig: Heklið fram þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju, heklið 6 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), aukið út um 1 lykkju í næstu lykkju (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). ÚRTAKA (á við um hvora hlið á ermi): Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum með því að hekla 2 ystu lykkjur í umferð saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum næst ystu lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum á ný um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er heklað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist í fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður (ermar eru heklaðar fram og til baka til að fá sömu áferð og fram- og bakstykki). BERUSTYKKI: Heklið 68-70-74-76-78-80 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 66-68-72-74-76-78 fastalykkjur í umferð. Heklið 1 umferð fastalykkjur frá réttu með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið jafnframt út um 12 fastalykkjur jafnt yfir í þessari umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 78-80-84-86-88-90 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 3 lykkjur, heklið A.2 yfir næstu 2 lykkjur, heklið A.3 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (= 35-36-38-39-40-41 mynstureiningar með 2 lykkjum) og endið með A.4 yfir síðustu 3 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.4 eru auknar út fastalykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1: Ör-1: Aukið út 36-36-38-40-40-42 fastalykkjur jafnt yfir = 114-116-122-126-128-132 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-54-57-59-60-62 mynstureiningar A.2 á breidd). Ör-2: Aukið út 16-20-24-24-26-30 fastalykkjur jafnt yfir = 130-136-146-150-154-162 lykkjur (nú er pláss fyrir 61-64-69-71-73-77 mynstureiningar A.2 á breidd). Ör-3: Aukið út 16-20-24-24-26-30 fastalykkjur jafnt yfir = 146-156-170-174-180-192 lykkjur (nú er pláss fyrir 69-74-81-83-86-92 mynstureiningar A.2 á breidd). Ör-4: Aukið út 16-20-24-22-24-30 fastalykkjur jafnt yfir = 162-176-194-196-204-222 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-84-93-94-98-107 mynstureiningar A.2 á breidd). Heklið A.1 til A.4 til og með umferð merktri með þinni stærð, þ.e.a.s. stærð S-M-L er nú lokið. Haldið áfram í stærð XL-XXL-XXXL og aukið út í síðustu umferð þannig: Ör-5: ATH: Ekki snúa stykkinu í þessari umferð, en klippið þráðinn frá og heklið þessa umferð frá réttu þannig að næsta umferð sé hekluð frá röngu - aukið út 12-24-28 fastalykkjur jafnt yfir = 208-228-250 lykkjur. Þegar A.1 til A.4 hefur verið heklað til loka í þinni stærð, mælist stykkið ca 14-14-14-17-17-17 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.5 yfir fyrstu lykkju, endurtakið A.6 (= 1 lykkja) þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.7 yfir síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur, A.5 til A.7 er endurtekið núna á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist ca 17-18-20-21-22-24 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan – stillið af þannig að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum, aukið út 4-10-12-6-14-12 fastalykkjur jafnt yfir = 166-186-206-214-242-262 lykkjur. Heklið áfram þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan – stillið af að næsta umferð sé umferð með fastalykkjum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 26-29-31-33-37-41 lykkjum (= framstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 46-52-56-60-68-76 lykkjum (= bakstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= í hlið undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi) og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 26-29-31-33-37-41 lykkjum (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-122-130-142-158-174 lykkjur (meðtaldar 6-6-6-8-8-8 loftlykkjur undir hvorri ermi). Setjið 1 prjónamerki 29-32-34-37-41-45 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 52-58-62-68-76-84 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út lykkjum í hliðum. Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.5 til A.7 eins og áður. Þegar fram- og bakstykki mælist 8 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 122-134-142-154-170-186 lykkjur. Heklið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 35 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með fastalykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka frá miðju mitt undir ermi (til að áferðin verði eins á fram- og bakstykki og ermum). Byrjið frá röngu mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjum undir ermi og heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af 3-3-3-4-4-4 lykkjum frá miðju og út, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af 34-38-44-44-50-52 lykkjum sem hoppað var yfir og endið með 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern og einn af síðustu 3-3-3-4-4-4 lykkjum mitt undir ermi = 40-44-50-52-58-60 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram fram og til baka með mynstri A.5 til A.7 eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 3-4-6-6-8-8 sinnum i hvorri hlið = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 lykkjur í næst ystu lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 9-9-8-8-6-5½ cm millibili alls 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 40-42-44-46-50-52 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 45-44-42-41-39-38 cm frá skiptingu, en endið eftir 1 umferð með fastalykkjum (mátið e.t.v. peysuna og heklið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum – saumið í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Fyrsta talan er saumuð í ca 1½-2 cm niður frá hálsmáli, síðan eru 6-6-6-7-7-7 næstu saumaðar ca 6½-7-7½-6½-7-7 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2. og 3. stuðuls/tvíbrugðinn stuðull í hægri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumngoldjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.