Þá erum við komin að vísbendingu #6. Við ætlum að hekla 8 nýjar umferðir og sjalið kemur til með að fá enn fleiri liti!
Eins og áður þá getur þú séð kennslumyndbönd neðst í hverri vísbendingu. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, þá getur skrifað þær í dálkinn neðst á síðunni.
RENDUR:
Þræðirnir eru klipptir frá eftir hverja umferð, ef næsta umferð er ekki hekluð með sama lit. Endar eru festir í hlið í lokin.
33.UMFERÐ: vínrauður (litur j)
34.UMFERÐ: ísblár (litur h)
35.UMFERÐ: kórall (litur c)
36.UMFERÐ: ísblár (litur h)
37.-39.UMFERÐ: púður (litur a)
40.UMFERÐ: sinnep (litur b)
MYNSTUR:
Í vísbendingu #6 heklum við eftir mynsturteikningu A.5a, A.5b, A.6a og A.6b. A.5a og A.6a sýnir hvernig umferðin byrjar. ATH: Byrjun á umferð er teiknuð yfir hverja aðra í sömu mynsturteikningu sem við heklum til skiptis frá hægri og vinstri hlið á sjali en ekki yfir hverja aðra.
LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðustu lykkjuna í umferð með fyrsta lit, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið bandið í gegnum síðustu lykkju með nýja litnum, eftir þetta er næsta umferð hekluð.
Ef þú ert vön/vanur þá getur þú lesið stuttu útskýringuna og fylgt eftir mynsturteikningu sem samanstendur af A.4a og A.4b sem þú sérð að neðan. Vantar þig frekari aðstoð við að byrja, þá getur þú lesið það sem stendur fyrir neðan í þessari vísbendingu.
Í 37. umferð eru sett prjónamerki inn í stykkið uppá nýtt, án þess að hekla. Setjið fyrsta prjónamerki eftir 15 lykkjur, setjið næstu 11 prjónamerki með 30 lykkja millibili, það eru þá 15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Á eftir 39. umferð er þráðurinn klipptur frá og 40. umferð er hekluð frá réttu. Byrjið 40. umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð.
![]() |
= | 1 loftlykkja |
![]() |
= | 3 loftlykkjur |
![]() |
= | 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/loftlykkju. ATH: Í 36. umferð er heklað um hálfa stuðlana frá 34. umferð |
![]() |
= | 1 hálfur stuðull um loftlykkjuboga |
![]() |
= | 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga |
![]() |
= | 4 loftlykkjur |
![]() |
= | 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga |
![]() |
= | Í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja |
![]() |
= | Í byrjun á umferð eru heklaðar 2 loftlykkjur |
![]() |
= | Í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur |
![]() |
= | Í byrjun á umferð eru heklaðar 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðustu lykkju í umferð |
![]() |
= | byrjið hér |
Hér er nánari útskýring á því hvernig þú byrjar á vísbendingu #6. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu.
Nú er hekluð 33.-35. umferð í A.5a og A.5b með röndum og mynstri, munið eftir LITASKIPTI!
Nú hefur öll 35. umferð verið hekluð á hæðina og stykkið mælist ca 55 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Nú eru 60 sólfjaðrir (= 30 mynstureiningar A.5b) í umferð.
Nú er heklað A.6b (A.6a sýnir hvernig umferðin byrjar og er hekluð sem viðbót við A.6b).
36. UMFERÐ er hekluð frá röngu: Leggið 35. umferð (umferð með kórall, sólfjöðrum – litur c) niður þannig að rétta liggi að réttu og heklið um 34. umferð (umferð með ísbláum – litur h) frá bakhlið á sjali þannig:
4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta hálfa stuðul, (4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta hálfa stuðul) heklið svona meðfram öllu sjalinu og endið með 1 fastalykkju um síðasta hálfa stuðul í umferð = 120 loftlykkjubogar.
Heklið 37. umferð.
Eftir þetta eru prjónamerkin sett á ný í stykkið, án þess að hekla þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 15 lykkjur, setjið næstu 11 prjónamerki með 30 lykkju millibili, það eru þá 15 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Haldið áfram með 38. og 39. umferð. Klippið frá.
Heklið 40. umferð frá réttu, þannig að bæði 39. umferð og 40. umferð verði heklaðar frá réttu. Byrjið 40. umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá fyrri umferð.
Nú ertu tilbúin með vísbendingu #6 og þegar allar 40 umferðirnar hafa verið heklaðar mælist stykkið ca 61 cm frá byrjun og niður mitt í sjali. Á mynd að neðan getur þú séð hvernig stykkið lítur út núna!
Marisa wrote:
I'm sorry I've re-read! Shouldn't crochet so late!! Sorry x
26.05.2018 - 23:37