Nú er tími fyrir nýtt DROPS-Along! Okkur hlakkar virkilega til að hekla þetta nýja fallega sjal með ykkur!
Eins og áður þá getur þú séð kennslumyndbönd neðst í hverri vísbendingu. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, þá getur skrifað þær í dálkinn neðst á síðunni.
Ertu með allt til að geta byrjað?
Hér er listi með allt efnið sem þú þarf til að hekla sjalið>>
SJAL:
Mynsturteikning A.1
Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður. Byrjið með púður nr 28 (litur a) og heklunál 4 og heklið eftir mynsturteikningu A.1.
![]() |
= | Heklið 5 loftlykkjur og tengið þær í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Svartur punktur sýnir byrjun á umferðinni |
![]() |
= | 1 loftlykkja |
![]() |
= | 1 fastalykkja um loftlykkjuhring/loftlykkjuboga |
![]() |
= | 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga |
![]() |
= | um þennan loftlykkjuboga er aukið út um 1 loftlykkjuboga með að hekla 2 loftlykkjuboga eins og sýnt er í mynsturteikningu |
![]() |
= | byrjið hér |
Hér er nákvæmari útskýring á hvernig þú byrjar á vísbendingu #1. Við höfum merkt hvar við vinnum með rauðum í mynsturteikningu.
BYRJUN: Heklið 5 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
UMFERÐ 1: Heklið eftir mynsturteikningu A.1. Byrjið umferðina við stjörnu sem er merkt með rauðum. Heklið 7 loftlykkjur, 1 fastalykkju um loftlykkjuhringinn, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuhring, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um sama loftlykkjuhring, 3 loftlykkjur og endið umferð með 1 tvíbrugðnum stuðli í sama loftlykkjuhring, snúið stykkinu.
Umferð 2: Heklið eftir mynsturteikningu A.1.
Umferð 3: Heklið eftir mynsturteikningu A.1 (í þessari umferð er aukið út um 1 loftlykkjuboga í loftlykkjubogann sem er merktur með litlum hring).
Umferð 4: Heklið eftir mynsturteikningu A.1.
Nú ertu tilbúin með fyrstu vísbendinguna. Ekki gleyma að deila myndunum þínum með okkur í dropsalong gallery!
Hola, voy a empezar hoy el chal, espero ponerme pronto al día, no se me da mal y tengo unos días de relax, espero que me cunda bastante, ya os iré contando y mandando fotos. Un saludo a todas.
06.06.2018 - 20:37