Nú erum við komin í vísbendingu 10 í Mystery Blanket CAL teppinu okkar og erum á góðri leið með kantinn!
Kantur 2 samanstendur af 4 umferðum með mismunandi litum og aðferðum sem ramma inn fallegu blómaferningana okkar!
Kantur 2 - stuðlar:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn turkos (nr 19) – Lesið LITASKIPTI og heklið 3 ll (= 1 st).
LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Þegar draga á þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni, skiptið um lit, dragið þráðinn í gegnum síðustu l á heklunálinni með nýja litum.
Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st um ll-boga á hlið umf hringinn, EN heklið 2 st í eina ll-bogann á hvorri skammhlið (= aukið út um 1 st á hvorri skammhlið).
Í hornið er heklað í ll-bogann þannig: 2 st, 3 ll, 2 st.
Útskýring á allri umferð 1:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn turkos (nr. 19) og heklið 3 ll (= 1 st). Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st um ll-bogann á hlið umf hringinn, EN heklið 2 st í eina ll-bogann á hvorri skammhlið (= aukið út um 1 st á hvorri skammhlið), í hornin er heklað í ll-boga þannig: 2 st, 3 ll, 2 st. Endið umf með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 516 st, 4 3-ll-bogar í hverju horni, - Lesið LITASKIPTI. Ekki klippa frá. Festið enda með litnum ópalgrænn (nr. 17), frá síðustu umf í 1. kant.
Lítið brot af mynstri, umferð 1, í rauðu.
= ll | |
= st | |
= kl |
UMFERÐ 2: Blómhnappar.
1. Langhlið:
Skiptið yfir í litinn bleikur (nr. 15) og heklið 2 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 BLÓMHNAPPUR (= sjá skýringu að neðan) í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, * endurtakið frá *-*.
1 BLÓMHNAPPUR:
Heklið 3 st saman í sömu l þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 2 st til viðbótar í sömu l en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 4 l á heklunálinni) og dragið nú síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni.
Í hornin er heklað þannig:
Heklið í ll-boga þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl.
Útskýring á allri umferð 2:
UMFERÐ 2: Blómhnappar.
1.Langhlið:
Skiptið yfir í litinn bleikur (nr. 15) og heklið 2 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 blómhnappur (= sjá skýringu að ofan) í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, * endurtakið frá *-* 38 sinnum alls. Endið með 1 fl í síðustu fl.
1.Horn:
Heklið í ll-boga þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl.
1. Skammhlið:
Heklið * 1 fl í næstu st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 blómhnappur í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, *, endurtakið frá *-* 25 sinnum alls. Endið með 1 fl í síðustu fl.
2. Horn:
Alveg eins og 1. Horn
2. Langhlið:
Heklið * 1 fl í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 blómhnappur í næstu st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 39 sinnum alls. Endið með 1 fl í síðasta fl.
3. Horn:
Alveg eins og 1. Horn.
2. Skammhlið:
Heklið * 1 fl í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 blómhnappur í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st, * endurtakið frá *-* 25 sinnum alls. Endið með 1 fl í síðustu fl.
4. Horn + endir:
Heklið í ll-boga þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl. Heklið 1 fl í næstu l (= í 1. Langhlið), 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 blómhnappur í næsta st og endið með 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 140 fl, 128 blómhnappar og 268 l. – Lesið LITASKIPTI.
Lítið brot af mynstri, umferð 2, í rauðu.
= fl | |
= ll | |
= kl | |
= blómhnappur |
UMFERÐ 3: - stuðlar:
Skiptið yfir í litinn ljós turkos (nr. 19) og heklið 3 ll (= 1 st). Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st í toppinn á blómhnöppum umf hringinn.
Í hornin er heklað í ll-boga þannig: 2 st, 3 ll, 2 st.
Útskýring á allri umferð 3:
UMFERÐ 3: - stuðlar:
Skiptið yfir í litinn ljós turkos (nr. 19) og heklið 3 ll (= 1. st). Heklið 1 st í hverja fl, 1 st um hverja ll og 1 st í toppinn á blómhnöppum umf hringinn, í hornin er heklað í ll-boga þannig: 2 st, 3 ll, 2 st. Endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 540 st, 12 ll – Lesið LITASKIPTI.
= ll | |
= st | |
= kl |
UMFERÐ 4 – fl og ll:
Skiptið yfir í litinn ópalgrænn (nr. 17) og heklið 1 ll (= 1. fl), * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* alla umf. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1.
HEKLLEIÐBEININGAR-1: Ekki hekla of fast í umf með fl + 1 ll.
.Heklið í 1. Horn þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl.
Útskýring á allri umferð 4:
UMFERÐ 4 – fl og ll:
Skiptið yfir í litinn ópalgrænn (nr. 17) og heklið 1 ll (= 1 fl), * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* alla umf. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1.
Heklið í ll-boga í horni þannig: 1 fl, 3 ll, 1 fl og 1 fl í næsta st.
Endið eftir síðasta horn þannig: * 1 fl í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið með 1 kl í 1. l í umf = 280 fl, 276 ll. Ekki klippa frá ópalgræna þráðinn (nr. 17, en klippið frá og festið aðra enda.
= fl | |
= ll | |
= kl |
ATHUGIÐ: Myndirnar og kennslumyndbandið sýnir bara dæmi hvernig við heklum kantinn í kringum bara 1 blómaferning. Þú verður að hekla kant 2 í kringum allt teppið þitt (40 ferningar).
Susanne wrote:
Kan man få at vide hvor mange stm der skal være på lang side og kort side imellem hjørnerne på kant omg 2? Jeg har hæklet omg et par gange, men har problemer med plads på omg 3.
06.07.2016 - 16:09