Fáðu þessa dásamlegu og mjúku, mosagrænu samsetningu með því að sameina DROPS Kid-Silk 66, dökk ólífugrænn, og DROPS Nord 32, dökkt skógargrænn.
Útkoman er með prjónfestu um 20 lykkjur = 10 cm með 4 mm prjóni, sem hentar vel fyrir mynstur með prjónfestu uppá 22 - 20 lykkjur.
Hafðu þó í huga að prjón-/heklfestan er mismunandi eftir einstaklingum og að ráðlögð prjóna-/heklunálarstærð er aðeins leiðbeinandi. Þú getur aðlagað stærðina til að fá aðra prjónfestu - eða notað uppgefna prjónfestu sem mælt er með í uppskriftinni sem þú ert að vinna með. Gerðu bara prufu!
Ertu að leita að mynstrum sem þú getur notað fyrir þessa garnsamsetningu? Farðu þá í mynsturleitina á síðunni okkar, veldu Dömur > Peysur (eða hvaða flokk að eigin vali) og notaðu síðan síurnar til að velja 22 - 20 lykkjur (3.5 - 4mm) og þá finnur þú fjölda mynstra til að velja úr!
Sameinaðir litir: DROPS Kid-Silk 66, dökk ólífa + DROPS Nord 32, dimmur skógur
Prjónfestuhópur: 22 - 20 lykkjur (3.5 - 4mm)
Þvottaleiðbeiningar: Ertu að hugsa um hvernig á að meðhöndla / þvo verkefni í þessari garnsamsetningu? Almennt viðmið er að fylgja þvottaleiðbeiningunum fyrir það viðkvæmasta af báðum garntegundunum, en þú getur lesið nánari upplýsingar um hvernig á að þvo algengustu garnsamsetningarnar hér