Hefur þú prófað að prjóna 3 þræði af DROPS Baby Merino saman? Samsetningin sem myndast er ofurmjúk og gefur fallegar skilgreindar lykkjur. Svo hvers vegna ekki að prófa að sameina DROPS Baby Merino 36, rafmagnsappelsínugulur með 08, kirsuber og 14, fjólublár.
Útkoman er með prjónfestu um 16 lykkjur = 10 cm með 5.5 mm prjóni, sem hentar vel fyrir mynstur með prjónfestu uppá 17 - 16 lykkjur.
Hafðu þó í huga að prjón-/heklfestan er mismunandi eftir einstaklingum og að ráðlögð prjóna-/heklunálarstærð er aðeins leiðbeinandi. Þú getur aðlagað stærðina til að fá aðra prjónfestu - eða notað uppgefna prjónfestu sem mælt er með í uppskriftinni sem þú ert að vinna með. Gerðu bara prufu!
Ertu að leita að mynstrum sem þú getur notað fyrir þessa garnsamsetningu? Farðu þá í mynsturleitina á síðunni okkar, veldu Dömur > Peysur (eða hvaða flokk sem þú vilt) og notaðu síðan síurnar til að velja 17 - 16 lykkjur (5 - 5.5mm) þú finnur margar útfærslur að velja úr!
Sameinaðir litir: DROPS Baby Merino 36, rafmagns appelsínugulur + DROPS Baby Merino 08, kirsuber + DROPS Baby Merino 14, fjólublár
Prjónfestuhópur: 17 - 16 lykkjur (5 - 5.5mm)
Þvottaleiðbeiningar: Ertu að hugsa um hvernig á að meðhöndla / þvo verkefni í þessari garnsamsetningu? Almennt viðmið er að fylgja þvottaleiðbeiningunum fyrir það viðkvæmasta af báðum garntegundunum, en þú getur lesið nánari upplýsingar um hvernig á að þvo algengustu garnsamsetningarnar hér