Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hægt er að hekla fallegt blóm með 3D áhrifum.
Heklið 10 loftlykkjur og tengið í hring með 1 keðjulykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 23 fastalykkjur í kringum hringinn, 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
UMFERÐ 2: Heklið 4 loftlykkjur, * 9 loftlykkjur (= loftlykkjubogi), hoppið yfir 2 fastalykkjur og heklið einn tvíbrugðinn stuðul í 3 fastalykkju *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar. Heklið 9 loftlykkjur, endið á 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar = 8 loftlykkjubogar. Heklið nú fram og til baka í kringum hvern loftlykkjuboga og tvíbrugðinn stuðul.
RÖÐ 1: Heklið 12 fastalykkjur í kringum fyrsta loftlykkjuboga, 6 fastalykkjur niður í kringum tvíbrugðinn stuðul og endið á 1 fastalykkju í tvíbrugðinn stuðul, snúið við.
RÖÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 1 hálfur stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar í næstu fastalykkju, 1 stuðull og 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu fastalykkju. Heklið nú aftan í lykkjubogann eftirfarandi: * 2 tvíbrugðna stuðla í næstu fastalykkju, 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* tvisvar sinnum til viðbótar. Heklið 2 tvíbrugðna stuðla í sömu fastalykkju, 1 tvíbrugðinn stuðul og 1 stuðul í næstu fastalykkju, 2 stuðla í næstu flastalykkju, 1 hálfan stuðul í næstu fastalykkju, 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 1 keðjulykkju í síðustu lykkju, snúið við.
RÖÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir fyrstu lykkju og heklið fastalykkju í næstu 25 lykkjur. Brjótið saman stykkið til hægri og snúið upp og niður (blaðið að þér) og heklið 1 fastalykkju í 2 fastalykkjur sem eftir eru í umferð 2. Snúið við.
RÖÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, * 1 loftlykkju, 1 keðjulykkju *, endurtakið frá *-* út röðina, snúið við.
RÖÐ 5: Heklið keðjulykkju í alla fremstu lykkjubogana frá RÖÐ 2 (nú er eitt blað heklað til loka). Endurtakið röð 1-5 7 sinnum til viðbótar, en endið á síðasta blómablaðinu með einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá RÖÐ 1.
Skreytið gjarna blómið með perlu í miðjunni.
Win Vaughn skrifaði:
Why is the video instruction different than written instructions EX, Row 1
11.06.2016 - 17:52DROPS Design :
Dear Mrs Vaughn, remember that crochet terms can be different depending on language, ie UK-English and US-English use different terms - check the language of the video you are looking and read more here. Happy crocheting!
13.06.2016 - 10:04Do you have a pattern posted for this flower? The video is sped up so I am not sure how many stitches to use. Can you clarify the first set of single crochet in the circle
23.04.2015 - 17:30DROPS Design :
Dear Mrs Schmoll, you will find the written pattern for the flower just above the video - on 1st round work 23 sc (US-English crochet terminology) in ch-ring. Happy crocheting!
24.04.2015 - 10:41