Við systurnar, Lilja Dögg og Marta ákváðum að deila áhugamáli okkar með öðrum. Í mörg ár höfum við prjónað úr ýmsum tegundum garns en þegar við kynntumst DROPS garninu þá kollféllum við fyrir því. Nýttum svo tækifærið þegar hannyrðaverslunin í Grindavík lokaði og fórum að flytja inn garnið sjálfar og settum af stað vefsíðu.
Húsið Bakki í Grindavík hýsir verslun okkar og þar höldum við prjónakvöld 2x í mánuði.