DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19228.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Snowy Bee

Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með býkúpumynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 237-30
DROPS Design: Mynstur pu-063
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-175-175-200-200-225 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19228.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki (miðjulykkja). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fram og til baka hvor fyrir sig, þ.e.a.s. prjónað er yfir bakstykki/framstykki samtímis. Það eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmál. Stykkin eru sett saman og lykkjur eru auknar út á hvorri öxl. Síðan skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

VINSTRI ÖXL:
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkjuna. Lykkja með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni, aðrar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið fram og til baka yfir þessar lykkjur, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju – sjá ÚTAUKNING-1 og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (að miðju að aftan) = 6 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (við miðju að framan) = 9 lykkjur.
UMFERÐ 3: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju = 11 lykkjur.
UMFERÐ 4: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkju = 13 lykkjur.
Prjónið þessar 4 umferðir 4 sinnum til viðbótar. Í hvert skipti sem þessar 4 umferðir eru prjónaðar, er aukið út um 10 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið alls 20 umferðir eru 53 lykkjur í umferð í öllum stærðum.
UMFERÐ 21: Prjónið 26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið miðjulykkju, aukið út um 1 lykkju, prjónið 26 lykkjur slétt, fitjið síðan upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á bakstykki) = 59-60-61-62-63-64 lykkjur.
UMFERÐ 22: Prjónið 31-32-33-34-35-36 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið miðjulykkju brugðið, aukið út um 1 lykkju, prjónið 27 lykkjur slétt, fitjið upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á framstykki) = 65-67-69-71-73-75 lykkjur. Geymið stykkið.

HÆGRI ÖXL:
Fitjið upp eins og vinstri öxl og prjónið alveg eins þar til prjónaðar hafa verið 20 umferðir = 53 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 21: Prjónið 26 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið miðjulykkju, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið 26 lykkjur, fitjið upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á framstykki) = 59-60-61-62-63-64 lykkjur.
UMFERÐ 22: Prjónið 31-32-33-34-35-36 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið miðjulykkju brugðið, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið 27 lykkjur slétt, fitjið upp 4-5-6-7-8-9 nýjar lykkjur (hálsmál á bakstykki) = 65-67-69-71-73-75 lykkjur.

Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu og miðju að aftan:
Prjónið frá réttu yfir lykkjur frá hægri öxl, prjónið til baka lykkjur frá vinstri öxl á prjóninn, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við miðjulykkjur eins og áður = 134-138-142-146-150-154 lykkjur. Síðan er prjónað í hring yfir allar lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón yfir lykkjur með prjónamerki og GARÐAPRJÓN yfir þær lykkjur sem eftir eru – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvora miðjulykkju. Aukið út í 2. umferð alls 9-10-11-12-13-14 sinnum = 170-178-186-194-202-210 lykkjur. Nú eru 84-88-92-96-100-104 lykkjur á milli miðjulykkja á bakstykki og framstykki.

Í næstu umferð eru felldar af báðar miðjulykkjurnar. Klippið þráðinn. Hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 84-88-92-96-100-104 lykkjur.
Nú er prjónað mynstur, með byrjun frá réttu þannig: 6-8-4-6-8-4 lykkjur sléttprjón, A.1 er prjónað 12-12-14-14-14-16 sinnum, prjónið 6-8-4-6-8-4 lykkjur sléttprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 108-112-120-124-128-136 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 yfir hvert A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið, fækkið lykkjum með 3 cm millibili alls 3 sinnum, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 lykkju í hvorri hlið = 102-106-114-118-122-130 lykkjur. Prjónið svona þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá yst á öxl (þar sem miðjulykkja var felld af). Fitjið upp 2-3-4-6-9-12 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 106-112-122-130-140-154 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, mynstur heldur áfram eins og áður.

Prjónið þar til stykkið mælist 18-18-19-19-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp. Aukið út um 1-2-1-1-0-1 lykkjur jafnt yfir 5-8-5-9-14-13 lykkjur í hvorri hlið = 108-116-124-132-140-156 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er prjónað stroff yfir allar lykkjur frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá efsta punkti á öxl.

FRAMSTYKKI:
Prjónið alveg eins og bakstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Síðan er prjónað sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 5-5-4-3½-3-2½ cm millibil alls 7-7-8-9-9-10 sinnum = 58-58-64-66-70-72 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-45-44-43-40-38 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loknu máli.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 46-46-46-46-45-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-1-2-3-5-7 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er saumuð klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 8 cm eru eftir = klauf.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 80-100 lykkjur í kringum hálsmál á peysu á stuttan hringprjón 4,5 með einum þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsamáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt í lykkjuna af kaðlaprjóni (= 1 lykkja fleiri)
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju (= 1 lykkja fleiri), prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Claudia wrote:

Guten Tag, wenn ich diesen Pullover nur mit Alpaca Puno stricken möchte, wieviel Gramm mehr benötige ich da zusätzlich? Danke + MfG

14.12.2022 - 13:48

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, bei diesem Modell stricken Sie am Besten Puna und Kid-Silk zusammen, sonnst wird Ihre Maschenprobe nicht stimmen. Hier finden Sie alle Pullover, die, mit nur Puna stricken können (Garnumrechner benutzen, wenn nötig wird). Viel Spaß beim stricken!

14.12.2022 - 15:51

country flag Heidi wrote:

Hallo, kan ik deze trui ook in 1 soort garen breien? Welk garen kan ik dan kiezen en hoeveel heb ik dan nodig?

25.11.2022 - 15:41

country flag Minke wrote:

Hoe wordt de mouwkop gebreid? Ik vind dit niet terug in de beschrijving.

19.10.2022 - 18:02

DROPS Design answered:

Dag Minke,

Je breit geen ronding als mouwkop, het is alleen zo dat je een split breit midden onder de mouw. Deze split wordt in het armsgat genaaid. (Zie ook de maattekening onderaan het patroon.) Je breit dus nog een stukje heen en weer (in plaats van in de rondte) voor de 'mouwkop'

19.10.2022 - 19:50

country flag Pia wrote:

Älskar den här. Fint mönster, rolig att sticka då den varierar med olika tekniker.

07.08.2022 - 09:18