DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Odeta

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu án ermasauma og tátiljum fyrir börn í garðaprjóni. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.

DROPS Baby 31-3
DROPS Design: Mynstur bm-084-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Í ALLT SETTIÐ ÞARF:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)
Lengd á fæti: (8) 9-10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(150) 150-150-200-200 (200-250) g litur 43, ljós sægrænn

-----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio
(100) 150-150-150-150 (200-200) g litur 43, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir kanta og snúru.
----------------------------------------------------------

TÁTILJUR:
Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd á fæti: (8) 9-10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 43, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynstur fyrir þína stærð.
Tátiljur: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um peysu):
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju að framan þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju að framan þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fram- og bakstykki er prjónað fyrst, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir ermar, framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp (111) 125-145-157-173 (181-205) lykkjur á hringprjón 3 með BabyMerino. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið (3) 2-4-2-2 (2-2) lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 8 lykkjur) yfir næstu (104) 120-136-152-168 (176-200) lykkjur (= (13) 15-17-19-21 (22-25) sinnum á breidd), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með (3) 2-4-2-2 (2-2) lykkjum í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í mynsturteikningu A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til (112) 124-146-158-172 (182-204) lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í garðaprjóni til loka. Stykkið mælist ca (10) 12-16-16-16 (19-19) cm.
Setjið 1 prjónamerki (34) 37-44-48-52 (55-62) lykkjur inn frá hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þær sýna framstykki og bakstykki = (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur á bakstykki.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

LYKKJUM ER FÆKKAÐ FYRIR HÁLSMÁLI INNAN VIÐ 1 KANTLYKKJU AÐ FRAMAN Á HVORRI HLIÐ Á STYKKI JAFNFRAMT SEM STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI.

LYKKJUM ER FÆKKAÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN ÞANNIG:
Þegar stykkið mælist (10) 12-16-16-17 (20-23) cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykki (= 1 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls (18) 18-22-24-26 (28-32) sinnum, síðan eru lykkjum fækkað í 4. hverri umferð alls 2 sinnum.
STYKKIÐ SKIPTIST OG FITJAÐAR ERU UPP LYKKJUR FYRIR ERMI ÞANNIG:

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Þegar stykkið mælist (12) 15-19-20-21 (24-27) cm, skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. Stillið af að næsta umferð sé frá réttu.
Prjónið nú yfir lykkjur fram að fyrsta prjónamerki (= hægra framstykki). Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð.
Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu (= að hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og síðan (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni. Þegar allar lykkjurnar fyrir ermi hafa verið fitjaðar upp og úrtaka fyrir hálsmáli er lokið eru (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur í umferð fyrir öxl/ermi. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-32 (36-40) cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið yfir síðustu lykkjur sem settar voru á þráð, fram að prjónamerki í hlið.
Prjónið eins og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fitjaðar eru upp lykkjur fyrir öxl/ermi í lok hverrar umferðar frá röngu. Haldið áfram að fækka lykkjum innan við 1 kantlykkju að framan í lok umferðar frá réttu eins og áður (að hálsmáli).

BAKSTYKKI:
= (44) 50-58-62-68 (72-80) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið á stykki fyrir ermar þannig: Fitjið upp (3) 4-6-6-6 (6-6) lykkjur alls (4) 4-4-5-6 (7-8) sinnum og síðan (16) 19-19-18-19 (23-26) lykkjur 1 sinni = (100) 120-144-158-178 (202-228) lykkjur.
Þegar stykkið mælist (19) 23-27-29-31 (35-39) cm eru felldar af miðju (16) 16-18-18-20 (22-24) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig = (42) 52-63-70-79 (90-102) lykkjur eftir á hvorri ermi/öxl. Prjónið þar til stykkið mælist (20) 24-28-30-32 (36-40) cm, stillið af við framstykki. Fellið af.
Prjónið hina öxlina/ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori frá réttu. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 2,5 með BabyMerino í kringum allt opið á peysunni (þ.e.a.s. heklið frá hægra framstykki, upp meðfram opi á peysu, í kringum hálsmál og niður meðfram op á peysu að uppfitjunarkanti á vinstra framstykki) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju í uppfitjunarkanti á hægra framstykki, * 1 loftlykkja, hoppið yfir ca 2 lykkjur/umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju/umferð *, heklið frá *-* að horni þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjaði.
Heklið snúru þannig: 1 fastalykkja í horni, heklið síðan loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, síðan er hekluð 1 fastalykkja aftur í horni á framstykki, haldið áfram að hekla kant í kringum peysuna og hálsmál fram að horni á vinstra framstykki, heklið snúru eins og á hægra framstykki, heklið síðan meðfram vinstra framstykki og endið með 1 keðjulykkju í uppfitjunarkanti.
UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um fyrstu loftlykkja á fyrri umferð, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 4. loftlykkjur frá heklunálinni, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* (passið uppá að hekla yfir snúru þannig að snúran liggi neðst), endið með 1 keðjulykkju í síðustu lykkju.
Heklið umferð 1 og 2 alveg eins neðst í kringum báðar ermar (umferðin byrjar með 1 loftlykkju og endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju).
Heklið 2 lausar snúrur: Heklið loftlykkjur í ca 20-25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka. Klippið frá og heklið 1 til viðbótar alveg eins. Saumið niður eina snúru innan á hægri hlið og 1 snúru utan á vinstri hlið í hlið. Passið uppá að þær verði í sömu hæð og hinar snúrurnar.

----------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tátiljurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður, þ.e.a.s. fyrst er stroffið prjónað á tátiljuna, síðan fóturinn.

TÁTILJA:
Fitjið upp (36) 38-40-44-48 (52-56) lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino.
Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, A.3 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni.
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón, A.4 (= 8 lykkjur) alls (4) 4-5-5-6 (6-7) sinnum á breidd og endið með (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæð er prjónað A.3 þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.3 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (snúra er þrædd í gegnum þessa gataumferð í lokin). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæð, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um (6) 8-6-6-6 (10-14) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu = (30) 30-34-38-38 (42-42) lykkjur. Klippið frá.
Setjið nú fyrstu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur og síðustu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur á sitt hvorn þráðinn. Stykkið er nú prjónað í garðaprjóni til loka. Prjónið (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm, yfir miðju (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur (= mitt ofan á tátilju), klippið frá.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjóninn, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram hlið á miðju stykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (= fram), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram annarri hlið á miðju stykki og prjónið til baka lykkjur frá seinni þræði á hringprjóninn = (44) 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið alls (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið ca (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm, setjið 1 prjónamerki (22) 24-27-30-32 (37-42) lykkjur inn (= mitt á tátilju). Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umferð til loka þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 4 lykkjur 2 og 2 slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) lykkjur.
Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.

Prjónið hina tátiljuna á sama hátt.

SNÚRA:
Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í ca 30-40 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda.
Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferð á tátilju (byrjið og endið við miðju framan á tátilju).

---------------------------------------------------------
Sjá buxur DROPS Baby 31-04.
----------------------------------------------------------

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
Þegar mynstur A.3 er prjónað í tátilju, er fyrsta og síðasta lykkjan prjónuð í garðaprjóni.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Odeta

Cosyknitsandcoffee, Finland

Odeta

Joe5, France

Twin Sister

Martins, United Kingdom

Odeta

Sylvia, Germany

Odeta Jacket

Daisy, Estonia

Babyjäckchen

Sonngard, Germany

B31-3 a Odeta Jacket

Egita, Latvia

Odeta Jacket

Sofylo, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (165)

country flag Maeggy wrote:

Hallo Alle, ich habe eine Frage zum zusammen nähen der Schultern. Da es ja in Krausrippe gestrickt ist, muss man dann das Vorderteil und das Rückenteil einmal in der Hinreihe und einmal in der Rückreihe abketten ?

25.02.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Liebe Maggy, Sie können bei einer Rückeihe bei allen Schultern abketten, dann nähen Sie die Schluter zusammen (wie z.B. in diesem Video). Viel Spaß beim stricken!

27.02.2023 - 10:19

country flag Charlotte wrote:

Bonjour, à la fin des devants/dos vous dites de rabattre les mailles puis pour l’assemblage vous dites de les assembler en grafting. Ceci n’est pas cohérent puisque pour le grafting les mailles ne sont pas rabattues.

02.02.2023 - 17:10

DROPS Design answered:

Bonjour Charlotte, les épaules/manches vont être assemblées en suivant la technique utilisée dans cette vidéo. Bon tricot!

03.02.2023 - 08:22

country flag Loraine wrote:

I'm knitting the Odeta cardigan (6-9 MTHS) and tension is correct at 48 rows per 10cm. Pattern says when work measures 16cm start decreasing on next row then following 23 rs rows then on 4th row twice. This is going to measure mcore than then the 4cm you've allowed? Can you assist please. Am I reading the pattern correctly.

01.02.2023 - 11:52

DROPS Design answered:

Dear Loraine, these decreases start when piece measures 16 cm but continue on each front piece when you work them separately - they start at 16 cm, all decrease are ca 10 cm - and piece is 28 cm from shoulder down. Decreases will be finished on time. Happy knitting!

01.02.2023 - 14:25

country flag MARSAUDON Sylvie wrote:

Je ne vois pas les explications pour le bonnet ; je suis passée trop vite ? Merci

15.01.2023 - 19:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marsaudon, vous trouverez les explications du bonnet ici. Bon tricot!

16.01.2023 - 09:39

country flag Charlotte wrote:

Bonjour, à la fin des devants/dos vous dites de rabattre les mailles puis pour l’assemblage vous dites de les assembler en grafting. Ceci n’est pas cohérent puisque pour le grafting les mailles ne sont pas rabattues.

10.01.2023 - 10:34

country flag Valentine wrote:

Bonjour, je souhaite adapter ce modèle avec ma laine mais je ne trouve pas les mesures du dos ou du demi devant, pourriez-vous me les donner ? Si l'échantillon fait 10cm=26m, alors les 58m du dos en taille 1/3 mois feraient 22.30cm et non 24 comme dans les mesures ? J'ai du faire une erreur ? Merci d'avance.

09.12.2022 - 22:44

DROPS Design answered:

Bonjour Valentine, vous pouvez recalculer entièrement les explications en suivant votre tension; avec un échantillon de 24 m = 10 cm, les 58 m du dos vont mesurer 24 cm (règle de 3 = (58x10)/24=24.1). Bon tricot!

12.12.2022 - 08:53

country flag Sophia wrote:

Hello, pattern for slippers say “insert a marker at 1,5cm , and work a total for 3cm.when I begin the dec.?after 1,5cm or after 3cm?thank you

15.11.2022 - 08:29

DROPS Design answered:

Dear Sophia, you work a total of 3 cm in garter stitch, but after 1,5 cm you will decrease on every other row. Happy knitting!

15.11.2022 - 09:49

country flag Sofie Dahlqvist wrote:

Hej! Jag har precis börjat sticka och lagt upp alla maskor för storlek 0/1 men förstår inte vilket av de flera A1 mönster jag ska sticka. Tacksam för hjälp!

06.10.2022 - 07:47

country flag Ira Sinha wrote:

What do you mean by 1 band stitch?

04.10.2022 - 23:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sinha, this is here the edge stitch towards the front pieces (= first + last stitches). Happy knitting!

05.10.2022 - 08:17

country flag Brigitte Nachtschatt Nachtschatt wrote:

Hallo wenn ich für den Halsausschnitt in jeder zweiten Reihe zwei Maschen abnehme, so mache ich das in jeder Hinreihe. Wird es dann nicht zu lange? Oder nimmt man in jeder Hin und Rückreise ab?

13.09.2022 - 20:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nachtschatt, die Abnahmen für den Halsausschnitt werden zuerst in jeder Hinreihe (= in jeder 2. Reihe) dann in jeder 2. Hinreihe (= in jeder 4. Reihe) gestrickt - sollte Ihre Maschenprobe in der Höhe stimmen, dann sollte es ganz richtig passen. Viel Spaß beim stricken!

14.09.2022 - 09:07