Martina wrote:
Dobry den, na pintereste som k tejto suprave nasla svetrik a tu ho nemohu najit. byl by k dispozici? dekuji
04.01.2024 - 08:41DROPS Design answered:
Dobrý den, Martino, díky za upozornění - máte pravdu, že český návod na tento svetřík zatím není k dispozici. Anglický návod najdete tady, českou verzi doplníme během pár dnů. Pěkný den! Hana
07.01.2024 - 13:00Anne-May Bueide wrote:
Hei Holder på med første tøffel str. 12/18 mnd og la da opp 48 masker fra begynnelsen. Dvs tall nr 5 fra venstre. I oppskriften står det «Strikk 2 riller, se forklaring over, og fell (6) 8-6-6-6-(10-14) masker jevnt fordelt på siste pinne fra retten = (30)30-34-38-38 (42-42) masker. Jeg skal da felle 6 masker og vil stå igjen med 42 masker, men i oppskriften står det at jeg skal ha 38 masker igjen Det stemmer jo ikke.Hvor mange masker skal jeg egentlig felle og ha igjen? rette?
08.04.2023 - 21:38DROPS Design answered:
Hej Anne-May, tak for info, vi skal høre med design om man må felle 10 masker her, så kommer der en rettelse :)
13.04.2023 - 14:52Johanna wrote:
Hej, Vad menas med "på nästa varv ökas det 1 maska på var sida av markören i varje sida av arbetet, öka så på varje cm totalt 7 ggr. Innebär det då att på 7 cm ska jag ha ökat 4maskor gånger 7 dvs 28 maskor?
15.10.2021 - 10:32DROPS Design answered:
Hej Johanna. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design
15.10.2021 - 10:54Anna wrote:
Hallo, ich Stricke grade die Hose und bin kurz vor der Stelle wo A1 beginnt. Wird die Länge (zb 14cm bei Größe 56/62) vorne gemessen oder hinten? Es kommt mir vorne gemessen sehr groß vor. Danke und LG
16.03.2021 - 15:25DROPS Design answered:
Liebe Anna, messen Sie vorne (hinten wird es länger wegen den verkürzten Reihen für die Erhöhung). Viel Spaß beim stricken!
16.03.2021 - 15:54Edith wrote:
Pour le short, le diagramme A1, est-ce que le jeté ce fait avant le marqueur demi-dos ou après? Aussi, je ne vois pas comment faire les diminutions, ni à quel endroit exactement. Merci de votre aide.
11.02.2021 - 05:07DROPS Design answered:
Bonjour Edith, A.1 commence à partir du milieu dos, le jeté du 3ème rang de A.1 compense la diminution de la 1ère maille et se fait donc au début du tour. Les diminutions à intervalles réguliers se tricotent en faisant 2 mailles ensemble - calculez ici comment les répartir. Bon tricot!
11.02.2021 - 07:05Julie wrote:
I oppskriften står det : "Når arbeidet måler (15) 17-19-21-22 (24) cm, felles det av masker til bein slik: Fell av de første (41) 49-53-61-63 (71) maskene, strikk (14) 14-14-14-18 (18) masker, fell av de siste (41) 49-53-61-63 (71) maskene = (14) 14-14-14-18 (18) masker igjen til skrittet." 1. Hvis jeg feller de første maskene blir ikke skrittet på midten. 2. Maskeantallet stemmer ikke. Jeg har spurt om dette før, men forklaringen gav ikke mening.
06.02.2021 - 20:55DROPS Design answered:
Hei Julie. Nå skal du felle av, men du skal beholde 14 masker. Du starter midt bak og feller 41 masker, så strikker du 7 masker (nå er du midt foran), så strikker du 7 masker til, altså 14 masker og du har nå 7 masker på hver side av midt foran. Så feller du av 41 masker og er tilbake til midt bak. I ditt spørsmål fra 30.01.2021 skrev du: 41+14+41+14=110, men du har kun 41+14+41=96 masker. Om du ser på målskissen er det nå "tuppen" ned du nå skal strikke i riller. mvh DROPS design
12.02.2021 - 14:24Julie wrote:
Jeg strikker shortsen i prematur str. Jeg har nå 96 masker på pinnen og skal felle til bein. Men jeg får ikke fellingen til å stemme. 41+14+41+14=110
30.01.2021 - 21:42DROPS Design answered:
Hej Julie, det er de midterste 14 masker du skal fortsætte med. Det vil sige at du har 41 masker på hver side af de 14 = 96 masker. God fornøjelse!
03.02.2021 - 14:28Anna Budny wrote:
Hallo :) ich stricke grade die Hose und finde es mühsam die runden im Krausmuster zu Stricken. Auf dem Bild ist hinten am Po eine Naht zu sehen als sei auch hier die Arbeit mit hin und rück Reihen nur rechts gestrickt worden, ist das möglich? Falls ja wie bekommt man es so ordentlich zusammengenäht? VG
30.01.2021 - 12:06DROPS Design answered:
Liebe Frau Budny, diese "Naht" ist nur die Runden Anfang/Ende beim Krausrechts stricken. Diese Lektion erklärt, wie man in Reihen anstatt in Runden stricken kann und könnte Ihnen damit helfen. Viel Spaß beim stricken!
01.02.2021 - 08:35Margret wrote:
Hallo, liebe Dropsler,würde gern dieses Modell kpl. mit Den anderen Teilen Stricken in Baby Merino oliv,Mix.nr.38 Stricken ,doch leider ist die Farbe nicht erhältlich! Können Sie mir mitteilen,wann ich diese Farbe wieder bestellen kann??? Freundlichst Margret
29.09.2020 - 19:42DROPS Design answered:
Liebe Margret, bei uns ist diese Farbe zur Zeit nicht lieferbar aber schauen Sie mehr bei den unterschiedlichen Laden , die DROPS BabyMerino haben - siehe Farbkarte und/oder wenden Sie sich an Ihrem üblichen Laden, gerne wird man Ihnen sagen, wenn sie diese Farbe bekommen werden. Viel Spaß beim stricken!
30.09.2020 - 08:11Maja wrote:
Hei, jeg har et annet spørsmål. Det står "Når arbeidet måler (10) 12-14-16-17 (19) cm (...) strikkes mønster A.1 over alle maskene". Skal det måles midt foran eller midt bak? Jeg antar det er foran, men vil bare dobbeltsjekke.
12.09.2020 - 23:45DROPS Design answered:
Hei Maja. Midt foran ja. God Fornøyelse!
14.09.2020 - 11:53
Odeta Pants |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðum stuttbuxum og tátiljum fyrir börn með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 31-4 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Buxur: Sjá mynsturteikningu A.1. Tátiljur: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um buxur): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. STUTTBUXUR: Fitjið upp (80) 96-96-112-112 (128) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyMerino. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan). Prjónið stroff frá miðju að aftan þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 3 lykkjur, endið með 2 lykkjum brugðið og 1 lykkju slétt. Þegar stroffið mælist (2) 2-2-3-3 (3) cm prjónið gataumferð fyrir snúru í næstu umferð þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið 1 umferð stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið síðan upphækkun í stroff, að aftan þannig: Prjónið (7) 9-9-9-9 (9) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (14) 18-18-18-18 (18) lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (20) 24-24-24-26 (26) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (26) 30-30-30-34 (34) lykkjur til baka, snúið, herðið á þræði, prjónið (32) 36-36-36-42 (42) lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (38) 42-42-42-50 (50) lykkjur til baka. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið (6) 6-6-6-8 (8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (62) 66-66-66-82 (82) lykkjur. Snúið, herðið á þræði, prjónið síðan stroff hringinn aftur yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist (4) 4-5-5-5 (5) cm við miðju að framan er skipt yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um (10) 14-10-22-14 (26) lykkjur jafnt yfir = (70) 82-86-90-98 (102) lykkjur. Í næstu umferð er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Prjónið (17) 20-21-22-24 (25) lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið 1 prjónamerki (= hálft bakstykki), prjónið (35) 41-43-45-49 (51) lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), prjónið (18) 21-22-23-25 (26) lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki). Stykkið er nú prjónað áfram í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið á stykki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum cm alls (6) 7-8-11-11 (14) sinnum, síðan eru auknar út 2 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = (96) 112-120-136-144 (160) lykkjur. Þegar stykkið mælist (10) 12-14-16-17 (19) cm, stillið af að síðasta umferð er prjónuð brugðið, prjónið mynstur A.1 yfir allar lykkjur (= alls (12) 14-15-17-18 (20) sinnum á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið til loka í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist (15) 17-19-21-22 (24) cm, fellið af lykkjur fyrir skálmar þannig: Fellið af fyrstu (41) 49-53-61-63 (71) lykkjur, prjónið (14) 14-14-14-18 (18) lykkjur, fellið af síðustu (41) 49-53-61-63 (71) lykkjur = (14) 14-14-14-18 (18) lykkjur eftir. Klippið frá. Nú er stykkið prjónað áfram fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í ca (2) 2-2-3-4 (5) cm yfir lykkjur á prjóni. Fellið af. Saumið garðaprjón við affellingarkant á bakstykki, mitt í ystu lykkjubogana. SNÚRA: Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í 75-80-85-90-95 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferðina (byrjið og endið við miðju að framan). ---------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljurnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður, þ.e.a.s. fyrst er stroffið prjónað á tátiljuna, síðan fóturinn. TÁTILJA: Fitjið upp (36) 38-40-44-48 (52-56) lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - lesið útskýringu að ofan, A.2 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Prjónið (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón, A.3 (= 8 lykkjur) alls (4) 4-5-5-6 (6-7) sinnum á breidd og endið með (2) 3-0-2-0 (2-0) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.2 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni (snúra er þrædd í gegnum þessa gataumferð í lokin). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fækkið um (6) 8-6-6-6- (10-14) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá réttu = (30) 30-34-38-38 (42-42) lykkjur. Klippið frá. Setjið nú fyrstu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjur og síðustu (11) 11-12-13-13 (15-15) lykkjurnar á sitt hvorn þráðinn. Stykkið er nú prjónað í garðaprjóni til loka. Prjónið (3) 3½-4-4½-5½ (6½-8) cm, yfir miðju (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjurnar (= mitt ofan á tátilju), klippið frá. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á hringprjóninn, prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram hlið á miðju stykki, prjónið (8) 8-10-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni (= fram), prjónið upp (7) 9-10-11-13 (16-21) lykkjur í ystu lykkjubogana meðfram annarri hlið á miðju stykki og prjónið til baka lykkjur frá seinni þræði á hringprjóninn = (44) 48-54-60-64 (74-84) lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið alls (2½) 3-3-4-5 (5-5) cm garðaprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið ca (1) 1½-1½-2-3 (3-3) cm, setjið 1 prjónamerki (22) 24-27-30-32 (37-42) lykkjur inn (= mitt á tátilju). Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umferð til loka þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 4 lykkjurnar 2 og 2 slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36-42-48-52 (62-72) lykkjur. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. SNÚRA: Heklið snúru þannig: Heklið loftlykkjur með heklunál 2,5 með BabyMerino í ca 30-40 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju til baka í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna út og inn í gegnum gataumferð á tátilju (byrjið og endið við miðju framan á tátilju). ---------------------------------------------------------- Sjá peysu DROPS Baby 31-3 ---------------------------------------------------------- |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |