DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 182-12
DROPS Design: Mynstur fl-015
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

EYRNABAND:
Stærð: S/M - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 03, ljós grár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M - L/XL
Öll lengdin: ca 25 - 26 cm

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 g litur 03, ljós grár

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um eyrnaband):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 6 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 4. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur.

ÚTAUKNING-1 (á við um op fyrir þumal á handstúkum):
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.
Aukið síðan út hvoru megin við útauknar lykkjur þannig að það myndist op.

ÚTAUKNING-2 (á við um handstúkur):
Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur), mínus lykkjur sem ekki á að auka út yfir (t.d. 22 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 2. Í þessu dæmi þá er aukið út á eftir annarri hverri lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

EYRNABAND:
Fitjið upp 42 lykkjur á prjón 2,5 með Flora.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 sléttar kantlykkjur, * 3 sléttar lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 sléttum kantlykkjum = 54 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat). Prjónið síðan A.1 (= 54 lykkjur) þar til stykkið mælist ca 48-54 cm – endið eftir 6. umferð í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi eins. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið JAFNFRAMT um 12 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 42 lykkjur. Prjónið 5 umferðir slétt og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

BAND:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 14 lykkjur á prjón 2,5 með Flora.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 4 lykkjum), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Klippið frá, setjið bandið saman í hring og saumið affellingarkantinn saman við uppfitjunarkantinn með einu spori í hverja lykkju.

Dragið eyrnabandið sjálft í gegnum hringinn. Saumið eyrnabandið saman við miðju að framan – saumið affellingarkantinn við uppfitjunarkantinn með einu spori í hverja lykkju. Staðsetjið bandið við miðju að framan þannig að saumurinn sjáist ekki.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 67-72 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Flora.
Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan A.2 hringinn (= 16-18 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar stykkið mælist 5-6 cm eru lykkjurnar í hverjum kaðli prjónaðar slétt saman 2 og 2 umferðina hringinn (aðrar lykkjur eru prjónaðar brugðnar) = 48-54 lykkjur. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 10-11 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð er prjónuð þannig:
S/M: Prjónið 2 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt framan og aftan í hvora af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 9 lykkjur brugðið og 26 lykkjur slétt = 50 lykkjur.
L/XL: Prjónið 3 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt framan og aftan í hvora af 2 næstu lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), 9 lykkjur brugðið, prjónið 31 lykkju slétt og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir þessar 31 lykkjur = 54 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð í báðum stærðum þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 22 lykkjur) og prjónið 26-29 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 14-15 cm byrjar útaukning fyrir op fyrir þumal. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við síðustu lykkju í umferð (þ.e.a.s. innan í hönd) – lesið ÚTAUKNING-1.
Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 13-15 þumallykkjur og alls 62-68 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 19-21 cm eru 13-15 þumallykkjur + 1 lykkja hvoru megin við þær settar á þráð (= 15-17 lykkjur á þræði). Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 50-54 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni og A.3 eins og áður þar til stykkið mælist 21-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 14 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út um 22 lykkjur í A.3) = 64-68 lykkjur.
Prjónið síðan A.2 hringinn – ATH: A.4 sýnir hvernig A.2 passar yfir A.3, það eiga að vera 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur kaðlar alla umferðina hringinn.
Þegar prjónaðar hafa verið 10 umferðir með A.2 mælist öll handstúkan ca 24-25 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ÞUMALL:
Setjið til baka 15-17 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 2,5 og prjónið að auki upp 9-7 lykkjur í kanti á bakhlið á þumallykkjum (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja af þeim 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp + 3-2 lykkjur hvoru megin við þessar 3 lykkjur) = 24-24 lykkjur. Prjónið 3-5 umferðir sléttprjón hringinn. Prjónið síðan 6 umferðir með A.2 áður en fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 64-72 lykkjur á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 16-18 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar stykkið mælist 5-6 cm prjónið lykkjur í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 umferðina hringinn (aðrar lykkjur eru prjónaðar brugðið) = 48-54 lykkjur. Prjónið síðan sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 10-11 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
S/M: Prjónið 26 lykkjur slétt, 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt fram og til baka í hvora af 2 næstu lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 9 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt = 50 lykkjur.
L/XL: Prjónið 31 lykkju slétt og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir þessar 31 lykkjur, prjónið 9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju framan og aftan í hvora af næstu 2 lykkjum (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 9 lykkjur brugðið og 3 lykkjur slétt = 54 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig í báðum stærðum: 26-29 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 22 lykkjur) og endið með 2-3 lykkjum sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 14-15 cm byrjar útaukning fyrir op fyrir þumal. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við aðra lykkju í umferð (þ.e.a.s. innan í hönd) – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í 3. hverri umferð alls 6-7 sinnum = 13-15 þumallykkjur fyrir op og alls 62-68 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 19-21 cm eru settar 13-15 þumallykkjur + lykkja hvoru megin við þær á þræði (= 15-17 lykkjur á þræði. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur á þræði = 50-54 lykkjur.
Haldið svona áfram í sléttprjón og A.3 eins og áður þar til stykkið mælist 21-22 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 14 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum – lesið ÚTAUKNING-2 (ekki er aukið út yfir 22 lykkjur í A.3) = 64-68 lykkjur. Prjónið síðan A.2 hringinn – ATH: A.4. sýnir hvernig A.2 passar yfir A.3, það eiga að vera 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur kaðlar umferðina hringinn.
Þegar prjónaðar hafa verið 10 umferðir með A.2 mælist öll handstúkan ca 24-25 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri handstúku.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni brugðna

symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðna, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Grey Head Band

jupis, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Marca wrote:

Kan ik het patroon vd polswarmers ook met rondbreinaalden breien ipv naalden zonder knop? En zo ja, kan ik het patroon dan gewoon letterlijk volgen?? En hoe lang moet mijn kabel dan zijn (ik heb 40, 60 en 80)?

28.11.2023 - 18:20

DROPS Design answered:

Dag Marca,

Jazeker dat kan. Kijk even welke lengte voor jou het handigst werkt. Zelf werk ik liever met een wat langere draad in combinatie met de magic loop techiek.

29.11.2023 - 09:31

country flag Amouret wrote:

Ok mais les 14 augmentation vu que c'est écrit ne pas les faire au dessus des 22 mailles du motif je les fait de quelle coté ? coté motif ou coté jersey?

24.04.2023 - 10:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amouret, oups je n'en étais pas au bon niveau... vous devez augmenter ces 14 mailles au-dessus des 40 mailles jersey, pour ne pas toucher aux 22 mailles de A.3. Bon tricot!

24.04.2023 - 10:40

country flag Angélique Amouret wrote:

Bonjour je suis arriver au niv des 14 augmentation , quand vous dite ne pas augmenter au dessus des 22 mailles du motif , et ce que ca veut dire que j'augmente sur le jersey ou j'augmente coté motif, et en regardant la photo du modèle j'ai l'impression que si je continue en motif A2 ca ne continuera pas la suite du motif de A3 car la sur ma mitaine j'ai que 1 cercle de dessiner sur le milieu de la mitaine et pas 2 comme sur le dessin en photo

23.04.2023 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amouret, tout dépend de votre tensionen hauteur; on va mettre les mailles du pouce en attente 10 cm (2ème taille) après avoir commencé A.3, autrement dit après 34 rangs de A.3 (soit 19 rangs de A.3 + les 15 premiers rangs), terminez votre motif A.3 si souhaité avant les côtes de la main - et ajustez en conséquence la hauteur des côtés de A.2. Bon tricot!

24.04.2023 - 10:10

country flag Amouret wrote:

Ok donc j'augmente sur mes 2 mailles du début et je continue le motif comme avant c ca? mais comment si retrouver pour retomber dans le bon sens du motif

21.04.2023 - 13:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amouret, pour la 1ère augmentation du pouce, augmenter 1 m avant + 1 maille après la maille avec le marqueur, la 2ème fois, augmentez avant puis après ces 3 mailles, la 3ème fois, augmentez avant puis après ces 5 mailles etc. J'ai peur de ne pas bien comprendre pas votre question , je suis désolée, le motif A.3 ne sera pas décalé, on rajoute juste des mailles de chaque côté de la maille avec un marqueur, les autres mailles se tricotent comme avant: en jersey endroit et diagramme A.3 sur le dessus de la main (lisez le diagramme de droite à gauche tous les tours car on tricote en rond). Bon tricot!

21.04.2023 - 14:11

country flag Amouret wrote:

Vu que je fait mes mitaine sur des aiguille circulaire , du coup et ce que je doit faire une augmentation au début et a la fin du travail pour former mon pouce vers la droite ?

19.04.2023 - 14:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amouret, l'avant-dernière maille reste la même maille dans tous les cas, vous devez juste augmenter 2 m à chaque fois: 1 m avant cette maille + 1 maille après cette maille (puis 1 m avant ces mailles et 1 m après ces mailles). Pour la mitaine droite, vous augmenterez de part et d'autre de la 2ème maille du tour. Bon tricot!

19.04.2023 - 15:16

country flag Angélique Amouret wrote:

Bonjour je suis au niveau de l'augmentation pour le gousser du pouce mais j'ai du mal a comprendre comment proceder exactement et surtout a quel moment j'augmente car je vois pas comment faire de chaque coté sur le coté paume et savoir du coup si on continue tjr sur le motif A3 car c pas indiquer cordialement,

19.04.2023 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amouret, vous augmentez d'abord de chaque côté de l'avant-dernière maille du tour (mitaine gauche), autrement dit, avant + après cette maille (= 2 mailles à chaque fois), la fois suivante, vous augmentez avant + après ces 3 mailles et ainsi de suite - cf AUGMENTATIONS-1 (gousset du pouce, mitaines):. Les autres mailles se tricotent exactement comme avant. Bon tricot!

19.04.2023 - 13:10

country flag Amouret wrote:

Bonjour je suis perdu je suis au niv ou je dois commencer le diagramme A3 mais je comprends pas pour les 2 mailles jersey c pas écrit comment les tricoter et vous mettez A3 = 22 maille et 26 maille en Jersey mais ça fait pas 50 mailles du coup comment on tricoté les 2 dernières mailles

09.04.2023 - 09:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Amouret, en taille S/.M, si vous avez bien 50 mailles sur vos aiguilles, tricotez-les ainsi: 2 m jersey (en rond, on tricote ces mailles toujours à l'endroit), puis tricotez les 22 mailles de A.3 et terminez par 26 mailles jersey, soit: 2+22+26=50. Bon tricot!

11.04.2023 - 12:29

country flag Johanna Andersson wrote:

Hej! Jag förstår inte hur jag ska sticka varv 21-24 i diagram A1. Arbetet har 54 maskor men där finns bara beskrivna totalt sett 8 maskor. Hur kommer jag vidare? Jag stickar pannbandet. Tack!

11.03.2021 - 20:14

DROPS Design answered:

Hei Johanna. Når du er ferdig med rad 20 i A.1, begynner du på 1. rad igjen. De 8 maskene du ser på slutten av diagrammet er samme maske som er på 1.- 4. rad i diagrammet. mvh DROPS design

15.03.2021 - 13:02

country flag Sylvie wrote:

Bonjour, Le modèle « Annely » le diagramme A.1 , après les 20 rangs entre les 2 colonnes (marquer en jaune) je fais quoi ??? J’attends impatiemment votre réponse pour faire ce modèle Merci Sylvie

21.02.2021 - 23:17

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, les différents motifs de A.1 se répètent sur un nombre différents de rangs, autrement dit, quand les 20 rangs du diagramme sont terminés, reprenez-le au début sur toutes les mailles sauf sur les 2 torsades de 4 mailles - ces torsades doivent être croisées tous les 6 rangs. Bon tricot!

22.02.2021 - 09:35

country flag Kari Bjerknes wrote:

Prøver å skrive ut mønsteret/oppskriften på pulsvanter. Det står at det er gratismønster og jeg kan ikke ha på mobilen hele tiden....... Kan dere hjelpe meg🥰

28.12.2019 - 15:40

DROPS Design answered:

Hei Kari. Da er det bare å klikke på skriver ikonet, nedenfor bildet eller til høyre. Får du ikke skrevet ut, sjekk dine skriver innstillinger på din printer/telefon/PC. God Fornøyelse!

20.01.2020 - 11:06