Natasia wrote:
Hej. Jeg er nået til den nederste rib kant på ryg/forstykket (jeg strikker størrelse small). Opskriften siger at jeg skal have 212 masker, hvilket jeg har. Men den siger også at jeg i ribben skal ende med to retmasker før de fire kantmasker. Men det går ikke op. Jeg forstår ikke helt hvad der går galt for mig
14.07.2023 - 16:04DROPS Design answered:
Hei Natasia Oppskriften er oversendt design avd. slik at de kan kontroll sjekke maskeantallet i den minste størrelsen (maskeantallet går opp i de andre størrelsene). Når du øker 35 masker jevnt fordelt før det byttes til rundpinne 4, kan du istedenfor øke 33 masker, slik at du har 210 masker, da vil vrangborden stemme. mvh DROPS Design
26.07.2023 - 08:34ROSA KIAN wrote:
For this pattern , I am doing size M, I cast 106 sts, but after the rib, in the first row that increases a total of 8 its, if I follow all the diagrams, give me a total of 93 its, that is including the 4 its of the band for each side, so there is a discrepancy, Band 4 its + A1, 10 sts + A2 5 sts + 2 sts+ 8 sts + 2 sts + A3 6 sts + 2 times A1 20 sts + A2 5 sts + 2 sts + 8 sts + 2 sts + A3 6 sts +A4 9 sts + 4 sts band = 93 sts, but I cast 106? what I AM DOING WRONG?
06.09.2022 - 02:02DROPS Design answered:
Hi Rosa, When the rib is finished you decrease 13 sts, leaving 93 sts. This then fits the pattern you describe in your question. Happy knitting!
06.09.2022 - 06:55Miu wrote:
I am back to attempting this pattern again. I need your help again. In the YOKE section, I have done one increase of 8 stitches, please clarify that I PURL the next row? The pattern then says I do increase 23 times ( in L)and only increase every other row in the RS the diagram should have 46 rows, but the diagram only have 20 rows, how do I know where to do the pattern of (knit 2 together and YO for the pattern holes ( not the raglan increase)). Thanks for your help.
20.10.2021 - 17:46DROPS Design answered:
Dear Miu, the 8 sts increased on first row explained are for the raglan, these yarn overs are purled twisted on next row - see RAGLAN - then continue in pattern following diagrams increasing for the raglan a total of 23 times on every RS row (= total 46 rows). When diagrams are done, repeat A.2/A.3 towards raglan sts on front and back pieces and work 1 extra repeat of A.1 before A.2/after A.3 on front and back pieces. Happy knitting!
21.10.2021 - 06:55Catalina wrote:
Hola, una vez acabado el raglán no entiendo la nota que sigue "Tejer la hilera siguiente por el lado revés de la manera siguiente: NOTA: Tejer algunos de los puntos (= 1-1-0-1-1-3 puntos) de las mangas en la aguja para el cuerpo, para que la transición entre el cuerpo y las mangas ya no sea en los hilos marcadores." No se como hacerlo si luego tengo que tejer los primeros 39 y deslizar 44. Me ayuda? Gracias
05.09.2021 - 23:00DROPS Design answered:
Hola Catalina. Tienes que trabajar según el patrón: trabajar primero 39 puntos, deslizar sin trabajar 44 puntos, montar los puntos bajo la manga y etc. La nota es para avisarte que algunos puntos se desplazan de la manga al cuerpo para no tener agujeros en la línea de la transición.
06.09.2021 - 14:00Mona wrote:
Ökningarna för raglan ska de göras på varje rätt varv? Mönstret ska väl också stickas på rätsidan? "Diagrammen visar alla varv i mönstret sett från rätsidan" står det i beskrivningen. När jag tittar på diagrammet så är det hela tiden 2 lika rader ovanpå varandra, motsvarar det ett avigt varv samt ett rätt varv?
22.01.2021 - 16:38DROPS Design answered:
Hej Mona. Ja alla varv (både rätsidan och avigsidan) är med i diagrammet men alla varv visas sett från rätsidan. Mvh DROPS Design
28.01.2021 - 13:56Malene Reinholdt wrote:
Jeg ønsker å strikke denne fine jakke i et annet garn og ser på Drops Alpaca, som er fra garngruppe A. Går det om jeg bruker dobbelt tråd? Hvordan beregner jeg mengden (str L)?
30.09.2020 - 12:20Suzie wrote:
Bonjour, j\'adore ce modèle. Est-ce qu\'il y a des explications à quelques part pour le tricoter de bas en haut ?
07.07.2020 - 16:15DROPS Design answered:
Bonjour Suzie, ce modèle existe uniquement en version "top down" - retrouvez dans cette leçon un pas à pas pour un pull tricoté ainsi de haut en bas ou bien consultez nos modèles tricotés de bas en haut ici. Bon tricot!
07.07.2020 - 16:48Cristina Pradas wrote:
La verdad es que no entiendo muy bien el patrón , gracias
16.05.2020 - 14:53Cristina Pradas wrote:
Cómo se hace el dibujo de la chaqueta, no entiendo muy bien, sé que son dos puntos juntos, pero que frecuencia llevan ,y luego cuando se echa la hebra, gracias
16.05.2020 - 14:52DROPS Design answered:
Hola Cristina. Para trabajar el dibujo tienes que seguir los diagramas que tienes bajo el patrón. Si tienes dificultades para entender el diagrama, lee esta lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23
21.11.2020 - 20:35
Awakening Spring Jacket |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-31 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 9) = 10,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.5 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.5, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.5 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 177 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 35) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram-/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á ermum og prjónið inn lykkjur í mynstur á framstykki og bakstykki. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5 næstu hnappagötum með ca 8-8-9-9-9-10 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-106-114-118-126-130 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona þar til stroffið mælist í 2½ cm – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-13-13-17-17-21 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 93-93-101-101-109-109 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (þær 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 10 lykkjur, A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir næstu 5-5-7-7-9-9 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= vinstra framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, A.1 yfir næstu 20 lykkjur (= 2 mynstureiningar), A.2 yfir næstu 5-5-7-7-9-9 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= bakstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-22-23-26-28-30 sinnum = 237-269-285-309-333-349 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins. Þ.e.a.s. mynstur A.2/A.3 er prjónað að laskalínu á framstykki og bakstykki og nú er pláss fyrir 2 mynstureiningar til viðbótar með A.1 á milli A.2 og A.3 á framstykki og bakstykki og nú er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri með A.1 á undan A.2 og á eftir A.3 á framstykki og bakstykki. Ermar halda áfram í sléttprjóni. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður að miðju að framan. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: ATH: Nokkrar af lykkjum (= 1-1-0-1-1-3 lykkjur) á ermum eru prjónaðar inn á prjóninn fyrir fram- og bakstykki, þannig að skiptingin á milli fram- og bakstykkis og erma er ekki lengur við prjónamerkin: Prjónið fyrstu 39-43-45-49-53-57 lykkjur, setjið næstu 44-52-56-60-64-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-79-83-91-99-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-52-56-60-64-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 39-43-45-49-53-57 lykkjur sem eftir eru í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 169-185-197-213-233-253 lykkjur. Prjónið A.5 (= 8 lykkjur) yfir miðju 8 lykkjur undir ermum, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og prjónið eins margar einingar af gatamynstri og er pláss fyrir út að hvorri hlið (mynstrið á að passa yfir mynstur á berustykki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.5 í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 2 sinnum í öllum stærðum = 177-193-205-221-241-261 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 21 cm (stillið af þannig að endað sé eftir eitt gatamynstur á hæðina + nokkrar umferðir í sléttprjóni). Aukið nú út um 33-41-41-45-49-53 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 210-234-246-266-290-314 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer af grófari prjónum þegar fellt er af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 44-52-56-60-64-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum undir ermi = 54-62-68-72-78-80 lykkjur. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og prjónið A.5 yfir miðju 8 lykkjur undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili 5 sinnum og með 4 cm millibili 4 sinnum (= alls 9 úrtökur). Stærð M: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili 6 sinnum og með 3 cm millibili 6 sinnum (= alls 12 úrtökur). Stærð L: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 14 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili 8 sinnum og með 2 cm millibili 8 sinnum (= alls 16 úrtökur). Stærð XXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili 9 sinnum og með 2 cm millibili 9 sinnum (= alls 18 úrtökur). Stærð XXXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili 9 sinnum og með 2 cm millibili 9 sinnum (= alls 18 úrtökur). Þegar öll úrtaka á ermi hefur verið gerð til loka eru 36-38-40-40-42-44 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-34-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Nú eru aukið út um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer af grófari prjónum þegar fellt er af. Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-34 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Hege wrote:
Dette har vært en morsom jakke å strikke for meg som er noe uerfaren. Jeg har hele tiden holdt meg til oppskriften. MEN vrangbordene blir alt for vide hvis jeg skal øke antallet masker før vrangborden. De blir vide nok uten å øke antallet masker. Vrangborden i halsen er også alt for vid. Hva kan jeg gjøre med den? Den er starten på det hele og vanskelig å rekke opp. Bør jeg hekle en rad slik dere viser i videoen om å stramme inn vide vrangborder?
20.08.2021 - 07:45