Anna wrote:
Czy kropki wyrabiane są na przodzie i tyle? Nie widać tyłu bluzki.
21.02.2022 - 22:47DROPS Design answered:
Witaj Aniu, ażurowe kropki są zarówno na przodzie jak i na tyle. Oczywiście jeśli chcesz możesz je wykonać tylko na przodzie. Pozdrawiamy!
22.02.2022 - 08:45Clàudia wrote:
En concreto, esto no tiene sentido: RAGLÁN:Aumentar 1 punto a cada lado de 2 puntos derechos en cada transición entre la pieza del frente/espalda y las mangas (= 8 puntos aumentados en la vuelta). No entiendo dónde aumentar. ¿Tengo que seguir el esquema entre * * de A.1 + A. 2 etc.?
08.10.2021 - 13:29DROPS Design answered:
Hola Clàudia, A.1, A.2 y A.3 se trabajan como se indica en los diagramas, los aumentos se trabajan aparte. Los puntos de derecho a cada lado del marcapuntos no entran en los diagramas, van aparte. Hay que aumentar 1 punto antes de los puntos de derecho y después de ellos, por lo que al aumentar en las 4 transiciones se aumentan 8 puntos.
10.10.2021 - 23:13Clàudia wrote:
Hola, llegados a este punto no entiendo cómo continuar: Se ha aumentado 8 puntos para el RAGLÁN – leer explicación arriba. Continuar el patrón en redondo así y aumentar a cada 2 vueltas ¿Dónde tengo que aumentar y cómo? No entiendo, si se aumenta cada dos vueltas, ¿ tengo que tejer todo del derecho y a la siguiente aumentar?
08.10.2021 - 11:26Désirée Delsing wrote:
När oket är klart står det att jag ska sticka från avigsidan. Varför ska jag sticka från avigsidan och hur ska jag bära mig åt för att göra detta?
12.07.2021 - 21:10DROPS Design answered:
Hej Desiree, det stemmer, det behøver du ikke gøre. Vi har taget bort det fra mönsteret. God fornøjelse!
14.07.2021 - 09:37Kristin Bergmann wrote:
Hvor mange masker skal det være på bærestykke mellom raglan fra A2? Skjønner ikkevoppskriften
17.03.2020 - 20:18DROPS Design answered:
Hej Kristin, Du starter midt bagpå med 10 masker inden det antal masker du skal strikke i din størrelse i A.2. Det vil sige at du da får 20 masker imellem A2 både foran og bagpå. God fornøjelse!
19.03.2020 - 14:19Christa wrote:
Ich möchte den Pulli in M stricken. Welches Diagramm wähle ich für das Lochmuster, nachdem ich die 1. R. des Musters wie angegeben gestrickt habe (mit Markierung etc.)? A2 mit 5 M. oder A3 mit 6 M.? Und welche Rolle spielt dann A1? Danke!
08.12.2019 - 16:14DROPS Design answered:
Liebe Christa, A.1 ist dasselbe für alle Grösse, A.2 und A.3 sollen Sie wählen je nach Ihre Grösse, dh S- M gilt für beide ersten Größen. A.1 = Lochmuster zwische A.2 und A.3 ; A.2 und A.3 = Lochmuster mit der Zunahmen für Raglan (= wie man diese Zunahmen strickt im Lochmuster). Viel Spaß bei stricken!
09.12.2019 - 09:31Francesca wrote:
Scusate, era rimasta la mia domanda nel modulo preposto e pensavo che non avesse funzionato l’invio. Se vi è possibile e per non appesantire la navigazione degli altri utenti con messaggi inutili, potreste rimuovere sia questa richiesta che il messaggio doppio che ho inviato? Grazie mille!
25.09.2019 - 16:34Francesca wrote:
Salve, sto lavorando la taglia M di questo graziosissimo golf, ma temo che ci sia un errore nella parte finale della descrizione dello sprone. Infatti io non ho 43 maglie nella prima parte del dietro, bensì 39; e il totale con le 79 maglie del davanti + le 40 dell’altra metà dietro più le 20 dei due sottomanica dà un totale di 178, come da voi indicato nella spiegazione relativa al corpo. Quindi credo che siano sbagliate le indicazioni del numero di maglie della prima parte del dietro
25.09.2019 - 16:28Francesca wrote:
Salve, sto lavorando la taglia M di questo graziosissimo golf, ma temo che ci sia un errore nella parte finale della descrizione dello sprone. Infatti io non ho 43 maglie nella prima parte del dietro, bensì 39; e il totale con le 79 maglie del davanti + le 40 dell’altra metà dietro più le 20 dei due sottomanica dà un totale di 178, come da voi indicato nella spiegazione relativa al corpo. Quindi credo che siano sbagliate le indicazioni del numero di maglie della prima parte del dietro
22.09.2019 - 19:09DROPS Design answered:
Buongiorno Francesca. Abbiamo corretto il numero delle maglie nella parte da lei indicata. Per la taglia M, le maglie sono 39. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
22.09.2019 - 22:30
Awakening Spring |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 202-32 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 15,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 14. og 15. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.4 þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.4, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.4, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.4 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 170 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram-/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á ermum og prjónið inn lykkjur í mynstur á framstykki og bakstykki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-104-108-116-120 lykkjur á hringprjón 4 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½ cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-10-10-14-14-18 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 86-86-94-94-102-102 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan, þannig (umferðin byrjar mitt að aftan): * A.1 yfir fyrstu/næstu 10 lykkjur, A.2 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir næstu 5-5-7-7-9-9 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= hálft bakstykki/framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, A.1 yfir næstu 10 lykkjur (= hálft framstykki/bakstykki) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur hringinn í annarri hverri umferð alls 18-22-23-26-28-30 sinnum = 230-262-278-302-326-342 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina heldur mynstrið áfram alveg eins. Þ.e.a.s. mynstur A.2/A.3 er prjónað að laskalínu á framstykki og bakstykki og nú er pláss fyrir 2 mynstureiningar til viðbótar með A.1 á milli A.2 og A.3 á framstykki og bakstykki. Ermar halda áfram í sléttprjóni. Þegar allar útaukningar fyrir laskalínu hafa verið gerðar til loka mælist stykkið ca 21-23-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður að miðju að framan. ATH: Nokkrar af lykkjunum (= 1-1-0-1-1-3 lykkjur) á ermum eru prjónaðar inn á prjóninn fyrir fram- og bakstykki, þannig að skiptingin á milli fram- og bakstykkis og erma er ekki lengur við prjónamerkin: Prjónið fyrstu 35-39-41-45-49-53 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-52-56-60-64-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 71-79-83-91-99-107 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-52-56-60-64-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 36-40-42-46-50-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-246 lykkjur. Prjónið A.4 (= 8 lykkjur) yfir miðju 8 lykkjur undir ermum og prjónið eins margar einingar af gatamynstri og er pláss fyrir út að hvorri hlið (mynstrið á að passa yfir mynstur á berustykki), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 2 sinnum í öllum stærðum = 170-186-198-214-234-254 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 21 cm (stillið af þannig að endað sé eftir eitt gatamynstur á hæðina + nokkrar umferðir í sléttprjóni). Aukið nú út um 34-38-42-46-46-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 204-224-240-260-280-304 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer af grófari prjónum þegar fellt er af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 44-52-56-60-64-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjón 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 lykkjum undir ermi = 54-62-68-72-78-80 lykkjur. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og prjónið A.4 yfir miðju 8 lykkjurnar undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili 5 sinnum og með 4 cm millibili 4 sinnum (= alls 9 úrtökur). Stærð M: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili 6 sinnum og með 3 cm millibili 6 sinnum (= alls 12 úrtökur). Stærð L: Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 14 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili 8 sinnum og með 2 cm millibili 8 sinnum (= alls 16 úrtökur). Stærð XXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili 9 sinnum og með 2 cm millibili 9 sinnum (= alls 18 úrtökur). Stærð XXXL: Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili 10 sinnum og með 2 cm millibili 8 sinnum (= alls 18 úrtökur). Þegar allar úrtökur á ermi hafa verið gerðar til loka eru 36-38-40-40-42-44 lykkjur í umferð. Haldið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-34-32-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Nú eru aukið út um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-2 = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer af grófari prjónum þegar fellt er af. Ermin mælist ca 42-41-39-38-36-34 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Dorte Christensen wrote:
Hej det er den vanskeligste opskrift jeg har fulgt at det skifter mellem A2/og A 3 og tilsodst A1 og at du skriver halve for og bagstykke når man kun er nået til raglanærmerrene . Jeg giver op. Kh Dorte
17.05.2022 - 14:23