Spring Harvest |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og 2-lita blaðamynstri í klukkuprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). TVEGGJA LITA BLÖÐ Í KLUKKUPRJÓNI (prjónað í hring): Blaðamynstrið er prjónað í klukkuprjóni eins og mynsturteikning A.3 og A.4 sýnir. Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni með rönguna út, þ.e.a.s. lykkjurnar eru prjónaðar brugðið eins mynsturteikning A.2 sýnir. Til þess að fá tveggja lita áhrifin eru rendurnar prjónaðar til skiptis með 1 umferð með litnum natur og 1 umferð með litnum bleikfjólublár. A.2 og A.4 byrjar í umferð með litnum natur eins og útskýrt er í uppskrift. Í hvert skipti sem annað hvort er aukið út eða lykkjum fækkað í A.3 og A.4, er það gert í umferð með litnum bleikfjólublár. LEIÐBEININGAR: Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er talinn saman sem 1 lykkja. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykki er prjónað í röndum með 2-lita blaðamynstri í klukkuprjóni. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-110-120-120-130-130 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós bleikfjólublár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 11-11-12-12-13-13 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 2-2-2-3-3-3 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan, en endið eftir umferð þar sem sléttar lykkjur eru prjónaðar í lykkjur frá fyrri umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjón 4. Sjá útskýringu fyrir 2-LITA BLAÐAMYNSTUR Í KLUKKUPRJÓNI (þ.e.a.s. allt berustykkið er prjónað í röndum eins og útskýrt er að ofan jafnframt því sem blaðamynstur er prjónað í klukkuprjóni eins og útskýrt er í A.3 og A.4.). Fyrsta umferð er prjónuð með litnum natur og prjónað er þannig: * prjónið A.2 (= 4 lykkjur), prjónið A.3 (= 1 lykkja), prjónið A.2 (= 4 lykkjur), prjónið A.4 (= 1 lykkja) *, prjónið frá *-* alls 11-11-12-12-13-13 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 er lokið á hæðina er haldið áfram með að prjóna þessa lykkju brugðið. Í síðustu umferð í A.2 til A.4 er aukið út um 16-4-4-12-6-4 lykkjur jafnt yfir (aukið út í brugðnu mynstureiningum) = 280-312-340-372-396-420 lykkjur. Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið ca 27-27-27-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Haldið áfram með rendur án blaðamynsturs þar til stykkið mælist 27-27-27-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig (með næsta lit í röndum): Prjónið 42-46-50-55-60-65 lykkjur brugðið (= ½ bakstykki), setjið næstu 56-64-70-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-110-120-130 lykkjur brugðið (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-55-60-65 lykkjur sem eftir eru brugðið (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hvorri hlið. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og haldið áfram með rendur í brugðnum lykkjum til skiptis með 1 umferð með litnum natur og 1 umferð með litnum bleikfjólublár. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu enda rendur. Síðan er prjónað sléttprjón hringinn (þ.e.a.s. slétt í hverri umferð) með litnum natur. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-6-6-6-6 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 200-216-236-256-280-304 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-23-25-26-26-26 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-4-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 204-222-240-258-282-306 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.5 hringinn í ca 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-64-70-76-78-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-86-90-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu – það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með rendur í brugðið til skiptis með 1 umferð með litnum natur og 1 umferð með litnum bleikfjólublár – stillið af að rendurnar passi við berustykki. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu hafa rendurnar verið prjónaðar til loka. Prjónið síðan sléttprjón hringinn (þ.e.a.s. slétt í hverri umferð) með litnum natur. Þegar stykkið mælist 3-4-4-2-4-3 cm frá skipting, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-13-16-18-19-20 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-38-38-37-35-34 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm til loka. ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-1-0-2-1-0 lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-48-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið A.5 hringinn í ca 4 cm (= 14-15-16-16-17-18 mynstureiningar með 3 lykkjum). Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 42-42-42-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Nadine wrote:
Original & joli
17.12.2018 - 01:21Marina wrote:
C’est juste magnifique!!! Je veux commencer à tricoter tout de suite. Peut être plus dans le couleur rouille. Encore merci à toutes les personnes qui nous permettent de crée grâce à models drops
15.12.2018 - 21:20Anne wrote:
Fantastisk, ganske enkelt
15.12.2018 - 15:51Nap4ever wrote:
Beautyful, awesome!!!! Thank you, I can't wait for it to be published!
15.12.2018 - 13:38Riitta wrote:
Kaunis malli
14.12.2018 - 17:43Anneli wrote:
Nii ilus ja teistsugune!
14.12.2018 - 12:13Päivi Veijalainen wrote:
Ihastuttava ja mielenkiintoinen malli, erilainen.
14.12.2018 - 10:13Anita wrote:
Geweldig!
13.12.2018 - 17:48Annieck wrote:
Wat een mooie trui! Net even weer anders dan anders!
13.12.2018 - 11:24Aud wrote:
Alvorlig talt, her synes jeg dere ikke har vært helt heldig med plasseringen av mønsteret. Synes ikke den var særlig fiks. Kun ett dekkende navn: Fikenblad! 😂😂😂 Men med litt bearbeiding blir det en lekker genser!
13.12.2018 - 01:40