DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1376
DROPS Design: Mynstur w-661
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál: ca 15 cm á hæð og ca 34 cm að ummáli neðst niðri.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 17, natur
50 g litur 32, ljós bláfjólublár
50 g litur 59, ljós bleikfjólublár
50 g litur 60, dökk fjólublár
Afgangur af litnum dökk grár fyrir augu og nef.

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 fastalykkjur og 18 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð og 14 lykkjur mynstur A.3 verði 10 cm á breidd.
FYLGIHLUTIR: Smá vatt fyrir fyllingu.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu lykkju), umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KIND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kindin er hekluð ofan frá og niður. Hekluð eru stykki sem síðan eru saumuð saman við búk jafnóðum. Fyrst er botninn heklaður. Síðan eru eyrun hekluð hvor fyrir sig og höfuð áður en heklað er saman. Að lokum er búkurinn heklaður og fæturnir.

BOTN:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið A.1 alls 6 sinnum hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 48 fastalykkjur í síðustu umferð. Botninn mælist ca 11 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda.

EYRA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum dökk bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur.
UMFERÐ 3-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Brjótið eyrað saman flatt þannig að það verða 4 fastalykkjur á hvorri hlið. Heklið eyrað saman með því að hekla 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin – heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 4 fastalykkjunum = 4 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.
Heklið annað eyra á sama hátt.

HÖFUÐ:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikfjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan A.2 alls 4 sinnum hringinn – Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar A.2 er lokið á hæðina eru 16 fastalykkjur í síðustu umferð. Höfuðið mælist ca 5 cm á hæð.
Skiptið yfir í litinn natur og heklið höfuðið saman með eyrum þannig:

HÖFUÐ OG EYRU HEKLAÐ SAMAN:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjunum, leggið eyrað (= 4 fastalykkjur) niður meðfram höfði og jafnt við 4 næstu fastalykkjum og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum í gegnum bæði lögin, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum (= miðja að framan), leggið hitt eyrað (= 4 fastalykkjur) meðfram höfði og jafnt með 4 næstu fastalykkjum og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 4 fastalykkjum í gegnum bæði lögin, endið með 1 fastalykkju í hverja af 2 síðustu fastalykkjum.
UMFERÐ 2: Heklið fyrstu umferð í A.3 alls 8 sinnum hringinn. Klippið frá og festið enda.
Augu og nef: Saumið út augu og nef með afgang af litnum dökk grár. Klippið frá og festið enda.
Fyllið höfuðið með smá vatti (það á ekki að vera hart, en samt fyllt).
Brjótið höfuðið saman flatt þannig að eyrum verði við miðju á hvorri hlið og það verða 8 fastalykkjur ofan á höfði og 8 fastalykkjur undir höfði. Byrjið á annarri hliðinni og heklið höfuðið saman með litnum natur með því að hekla 1 fastalykkju í gegnum bæði lögin – heklið 1 fastalykkju í hverja af 8 fastalykkjunum = 8 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda.

BÚKUR:
Búkurinn er heklaður ofan frá og niður.
Heklið 4 fastalykkjur með heklunál 4,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan A.4 alls 8 sinnum hringinn – Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar A.4 er lokið á hæðina eru 16 lykkjur í síðustu umferð.

BÚKUR OG HÖFUÐ HEKLAÐ SAMAN:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja af 4 lykkjum, leggið höfuðið (= 8 fastalykkjur) jafnt með 8 næstu fastalykkjum og heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 8 fastalykkjum í gegnum bæði lögin, endið með 1 fastalykkju í hverja og eina af 4 síðustu fastalykkjum = 16 fastalykkjur.

Heklið nú fyrstu umferð í A.3 alls 8 sinnum í umferð. Heklið síðan 2. umferð í A.3 JAFNFRAMT er aukið út um 4 fastalykkjur jafnt yfir í umferð – LESIÐ ÚTAUKNING! = 20 fastalykkjur.

Heklið nú búkinn þannig:
UMFERÐ 1: Heklið fyrstu umferð í A.3 umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2. umferð í A.3 og aukið út um 4 fastalykkjur jafnt yfir = 24 lykkjur.
Endurtakið 1. og 2. umferð til viðbótar, endurtakið síðan 1. umferð = 32 lykkjur.

Heklið nú 4 fætur: Heklið á sama hátt og eyrun, nema fæturnir eru heklaðir með litnum ljós bláfjólublár.
Staðsetjið 1 fót hvoru megin við miðju framan á kindinni (með 8 lykkjum á milli fóta). Heklið þá við búkinn með því að hekla í gegnum bæði lögin jafnframt þar sem 2. umferð er hekluð = 36 lykkjur.
Heklið síðan umferð 1 og 2 þrisvar sinnum til viðbótar, heklið nú umferð 1 = 48 lykkjur.

Staðsetjið 1 fót hvoru megin við miðju framan á kindinni (með 16 lykkjur á milli fóta). Heklið þá við búkinn með því að hekla í gegnum bæði lögin jafnframt þar sem 1 fastalykkja er hekluð í hverja fastalykkjur = 48 fastalykkjur. Klippið ekki þráðinn frá!

BÚKUR OG BOTN HEKLAÐ SAMAN:
Leggið botninn (= 48 fastalykkjur í síðustu umferð) með réttu út og heklið hann saman við búkinn (= 48 fastalykkjur) með því að hekla 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin – ATH! Fyllið kindina með vatti (fyllið þannig að hún verði aðeins stíf) jafnóðum. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = Heklið 4 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju – svartur punktur í hring er byrjun á umferð
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuhringinn
symbols = Heklið 2 tvíbrugðna stuða og 1 fastalykkju saman þannig: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla í lykkjuna – en bíðið með að bregða bandi um heklunálina í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju og dragið bandi í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja)
symbols = Sýnir síðustu umferð sem var hekluð – byrjið á næstu umferð!
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1376

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Sylvia wrote:

Bonjour, pour l'assemblage de du corps et de la tête, je ne comprends pas dans quel sens poser la tête . Dois-je mettre la tête à l'avant ou l'arrière de base du corps? Merci beaucoup

07.03.2024 - 17:59

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvia, la tête doit se trouver au milieu du corps, au dernier rang de la tête, vous avez 8 mailles serrées avant de couper le fil. Au dernier rang de A.4, vous avez 16 mailles serrées, les tours commencent au milieu dos; vous crochetez d'abord 4 mailles serrées, puis les 8 mailles serrées suivantes en crochetant en même temps la tête et le corps (= 1 maille serrée dans chacune des mailles suivantes du corps + 1 maille serrée de la tête) et terminez ce tour par 4 mailles serrées = 16 mailles serrées. Bon crochet!

08.03.2024 - 08:16

country flag Ronnie De Gooijer wrote:

Wat betekent het als er achter een T een schuine T staat?

04.09.2022 - 14:12

DROPS Design answered:

Dag Ronnie,

Deze schuine T is ook gewoon een vaste.

09.09.2022 - 12:56

country flag Maj-Lis Jonsson wrote:

Undrar vart beskrivningen på benen tagit vägen i den svenska översättningen. Öron och huvud finns, men inte ben.

25.03.2022 - 09:54

DROPS Design answered:

Hej Maj-Lis. Det finns förklaring på benen under "HOPVIRKNING AV KROPP OCH HUVUD": Nu virkas det 4 ben: Virka på samma sätt som öra, men benen virkas med ljus blålila. Mvh DROPS Design

25.03.2022 - 10:22

country flag Brigid wrote:

There is a mistake in the US terms pattern – see below it reads „working dc in ea st = 48 dc“. This is wrong, it should be single crochet (sc) throughout because the British term pattern calls for double crochet which translates to single crochet in US terms. „Place 1 leg each side of mid front of the sheep (with 16 stitches between the legs). Work them together through both layers while working 1 double crochet in each stitch = 48 double crochets. Do not cut the strand!“

21.03.2022 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Brigid, thanks for your feedback, pattern will be edited asap. Happy crocheting!

22.03.2022 - 10:05

country flag Mirte wrote:

Hoi, ik vind dit een heel leuk patroon en het is misschien een stomme vraag, maar ik snap de haaktip niet. 1 losse (vervangt de eerste vaste niet) en eindigen met de halve vaste in de eerste losse. Hoe ik dit ook doe ik eindig met 49 steken(lusjes) ipv 48 en het ziet er heel raar uit. Ik heb het filmpje gekeken, maar die is (voor mij) niet heel duidelijk. Wat doe ik fout?

05.03.2021 - 22:07

DROPS Design answered:

Dag Mirte,

De vaste en de losse aan het begin en eind van de toer tellen niet mee in het aantal steken.

09.03.2021 - 11:17

country flag Madde wrote:

Kan jag få en utförligare förklaring på A4?

21.01.2021 - 19:02

DROPS Design answered:

Hej Madde, titta på vår video: Hur man virkar bubblorna till fåret

27.01.2021 - 14:51

country flag Anna D wrote:

Hi. I had left an earlier comment regarding round 2 on the head and ear. While waiting for the reply i decided to try the body. But I do not get it. I just do not understand the instructions or the the diagram. Even guessing doesn¨t wotk. Help

04.05.2020 - 17:46

country flag Anna D wrote:

I do not under stand A3. Help

03.05.2020 - 05:00

DROPS Design answered:

Dear Anna D, A.3 is worked over 2 sts and 3 rows. Work on row 1: *2 trebles + 1 sc worked tog (see 4th symbol), 1 sc in next sc*, repeat from *-*. Row 2: work 1 sc in each stitch. Happy crocheting!

04.05.2020 - 13:51

country flag Dar wrote:

Do you have any free crochet patters that don't use a chart???? I never could read charts. It would take me too far long to make anything. My grandmother taught when I was five, I will be 65 in September. I love crochet over knitting as I can go faster. ThanksDar

17.04.2019 - 00:29

DROPS Design answered:

Dear Dar, there are some -older- patterns that have the charts written out, but generally, our patterns are charted. It is much easier to see the stitches'places in relation to each other, as well as the shape of the piece. We also have video tutorials, and you can always ask for help in person - for example to make sense of the charts - at the store you bought your DROPS yarn from. It is well wort learning how to decipher a chart, as you will have so many more paterns to choose from. Happy Crafting!

17.04.2019 - 02:24

country flag Carina Sanna wrote:

Förstår inte hur A.4 och A.3 och A.1 och A.2 ska göras. Den film som ni lagt ut gör ju bara första varvet på kroppen. Tacksam för detaljerad beskrivning av detta. Tack på förhand Har även gjort några av dom andra djuren och det är många brister på hur man ska göra. Ni kanske skulle se över beskrivningarna.

10.03.2019 - 09:07

DROPS Design answered:

Hei Carina. Det hekles etter diagram, nettopp fordi det er mer oversiktlig enn å forklare med ord. Etter at du har laget luftmaskeringen hekler du etter A.1. Første omgang av A.1 = 1 fastmaske om ringen. Du gjentar A.1 6 ganger = 6 fastmasker. På 2 omgang hekler du 2 fastmasker i hver fastmaske = 12 fastmasker. 3 omgang hekles slik: 1 fastmaske i den første fastmasken, 2 fastmasker i neste. Gjenta ut omgangen = 18 fastmasker, osv. Du kan se vår nye leksjon hvordan å lese heklediagrammer, her. Håper dette hjelper. God fornøyelse

18.03.2019 - 11:02