Migrating South Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og með löngum lykkjum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-43 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Í mynsturteikningu er lykkjum fækkað og fjölgað, lykkjufjöldinn kemur því til með að verða breytilegur á milli 9 og 7 lykkjur í A.1, 12 og 10 lykkjur í A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur) mínus kantlykkjur/ kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga / úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. hverja og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 3. og 4. hver og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu og prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 4, 12, 20, 28 og 36 cm M: 4, 12½, 21, 29½ og 38 cm L: 3, 12, 21, 30 og 39 cm XL: 3½, 11, 18½, 26, 33½ og 41 cm XXL: 4½, 12, 19½, 27, 34½ og 42 cm XXXL: 4, 12, 20, 28, 36 og 44 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, fyrst í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón síðan fram og til baka. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-144-152-164-176-200 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið fram og til baka með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð er frá röngu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið og fækkið lykkjum jafnt yfir um 28-31-30-33-36-42 lykkjur yfir næstu 130-142-150-164-174-198 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 104-113-122-131-140-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 90-99-108-117-126-144 lykkjur (= 10-11-12-13-14-16 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.2 (= 12 lykkjur) og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir handveg. Fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-5-4-6 sinnum = 84-87-90-91-96-102 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en stillið af að það sé minnst 4 lykkjur í sléttprjóni yst í hliðum á stykkinu. Prjónið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru felldar af miðju 36-37-40-39-40-42 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður – stillið mynstrið af þannig að lykkjurnar sem ekki ganga jafnt í heilli mynstureiningu séu prjónaðar í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá hálsi = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 70-78-82-90-94-106 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið fram og til baka með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð er frá röngu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðið og fækkið um 12-16-15-18-18-21 lykkjur jafnt yfir næstu 64-72-76-84-88-100 lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 58-62-67-72-76-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 4-8-4-0-4-4 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 36-36-45-54-54-63 lykkjur (= 4-4-5-6-6-7 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.2 (= 12 lykkjur) og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið svona þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir handveg. Fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-5-4-6 sinnum = 48-49-51-52-54-57 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en stillið af að það sé minnst 4 lykkjur í sléttprjóni við handveg. Prjónið þar til stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Nú á að setja lykkjur á þráð og fella af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið þar til eftir eru 15-15-17-17-17-18 lykkjur í umferð, setjið síðustu 15-15-17-17-17-18 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær. Snúið og prjónið til baka frá röngu. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 70-78-82-90-94-106 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju að framan í garðaprjóni. Prjónið fram og til baka með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð er frá röngu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið og fækkið um 12-16-15-18-18-21 lykkjur jafnt yfir næstu 64-72-76-84-88-100 lykkjur – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 58-62-67-72-76-85 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið eftir mynsturteikningu A.2 og A.3 frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 12 lykkjur), prjónið A.3 yfir Næstu 36-36-45-54-54-63 lykkjur (= 4-4-5-6-6-7 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið 4-8-4-0-4-4 lykkjur sléttprjón og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið svona þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir handveg. Fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-5-4-6 sinnum = 48-49-51-52-54-57 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en stillið af að það sé minnst 4 lykkjur í sléttprjóni við handveg. Prjónið þar til stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm frá uppfitjunarkanti – munið eftir síðasta hnappagatinu sem er gert hér, stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Nú á að setja lykkjur á þráð og fella af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið þar til eftir eru 15-15-17-17-17-18 lykkjur í umferð, setjið síðustu 15-15-17-17-17-18 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær. Snúið og prjónið til baka frá réttu. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 56-60-64-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð þar sem prjónaðar eru 2 lykkjur slétt í hverja lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann í hverja lykkju umferðina hringinn (lykkjufjöldinn tvöfaldast) = 112-120-128-136-144-152 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9 cm í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4.-3.-3.-3. hverri umferð alls 16-18-19-20-20-21 sinnum = 80-84-90-96-104-110 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-39-39-38-38-37 cm, aukið út um 16-16-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 96-100-108-114-124-130 lykkjur. Þegar ermin mælist 48-48-48-46-46-45 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Nú er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjón 3 eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-7-10-9-10 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-3-3-4 sinnum og síðan 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið = 48-48-54-54-60-60 lykkjur eftir. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu 32-32-36-36-40-40 lykkjur slétt saman 2 og 2 (= 16-16-18-18-20-20 lykkjur færri) og prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón = 32-32-36-36-40-40 lykkjur eftir. Fellið af. Ermin mælist ca 56-57-58-58-58-58 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í innan við 1 lykkju – það á að vera aðeins puff efst á ermi þar sem lykkjum var fækkað. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5 og DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Setjið til baka 15-15-17-17-17-20 lykkjur af þræði frá hægra framstykki á prjóninn og prjónið yfir þessar lykkjur, prjónið upp lykkjur í kringum allan kantinn í hálsmáli fram að lykjum á þræði á vinstra framstykki. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið yfir þessar lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og jafnið lykkjufjöldann til 120-120-130-130-140-140 lykkjur (lykkjufjöldinn verðu að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff með byrjun frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (5)
Dania wrote:
I have question please, why all Drops design patterns indicate how many Grams we need for a garment? The length is what makes a difference. For example if i by a yarn that is 100 m per 50g , is it the same as another yarn that has 150m per 50 gram? So we have to calculate the length of yarn we need for garment than search for yarns (if we want to change the yarn indicated) in the pattern. Is this correct? Why don’t you just specify the meters needed ? :)
11.10.2023 - 02:51DROPS Design answered:
Dear Dania, that's the method choosen to give the amount of yarn, but you are right depending on the yarn you will use the amount in grams will be different, you can use our yarn converter to get the new amount for the new yarn choosen. Happy knitting!
11.10.2023 - 08:38Liedeke wrote:
Ik denk dat ik mijn fout heb gevonden na het lezen van het Noorse patroon. “Strikk glattstrikk og fell av til ermetopp på begynnelsen av hver pinne i hver side slik:” Vertaalt niet als “Brei tricotsteek en kant af op het begin van elke naald als volgt:” Maar als “Brei tricotsteek en kant af op het begin en eind van elke naald als volgt:” Aan beide kanten dus. En dan kloppen de cijfers weer. Nogmaals bedankt voor het patroon van dit mooie vestje! Mvg, Liedeke
10.08.2022 - 10:53DROPS Design answered:
Dag Liedeke,
Mooi dat je het gevonden hebt en nu verder kunt. Bedankt voor de terugkoppeling!
10.08.2022 - 17:16Liedeke wrote:
Hallo, bedankt voor dit patroon! Ik kom in de knoop bij de kop van mouw. Op een gegeven moment heb ik inderdaad volgens patroon 108 steken voor maat L op de naald. Als ik daarna de minderingen volg, heb ik 30 steken geminderd, en 78 resterend op de naald en geen 54? vervolgens nog 18 steken minderen door van 32 steken steeds 2 samen te breien levert me dan in totaal 60 steken op waardoor die naald dus echt niet uitkomt volgens oatroon. Ik doe vast iets fout. Met vriendelijke groeten, Liedeke
09.08.2022 - 18:22Liedeke wrote:
Hallo, bedankt voor dit patroon! Ik kom in de knoop bij de kop van mouw. Op een gegeven moment heb ik inderdaad volgens patroon 108 steken voor maat L op de naald. Als ik daarna de minderingen volg, heb ik 30 steken geminderd, en 78 resterend op de naald en geen 54? vervolgens nog 18 steken minderen door van 32 steken steeds 2 samen te breien levert me dan in totaal 60 steken op waardoor die naald dus echt niet uitkomt volgens oatroon. Ik doe vast iets fout. Met vriendelijke groeten, Liedeke
09.08.2022 - 18:21Julie wrote:
Romantic dreams
05.08.2021 - 09:04