Migrating South |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og með löngum lykkjum. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-44 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Í mynsturteikningu er lykkjum fækkað og fjölgað, lykkjufjöldinn kemur því til með að verða breytilegur á milli 9 og 7 lykkjur í A.1, 12 og 10 lykkjur í A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga / úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 4,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. hverja og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 3. og 4. hver og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, fyrst í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón síðan fram og til baka. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-144-152-164-176-200 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð sé frá röngu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið og fækkið lykkjum jafnt yfir um 28-31-30-33-36-42 lykkjur yfir næstu 130-142-150-164-174-198 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 104-113-122-131-140-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 90-99-108-117-126-144 lykkjur (= 10-11-12-13-14-16 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.2 (= 12 lykkjur) og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir handveg. Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-5-4-6 sinnum = 84-87-90-91-96-102 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en stillið af að það sé minnst 4 lykkjur í sléttprjóni yst í hliðum á stykkinu. Prjónið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru felldar af miðju 36-37-40-39-40-42 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður – stillið mynstrið af þannig að lykkjur sem ekki ganga jafnt í heilli mynstureiningu séu prjónaðar í sléttprjóni og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 132-144-152-164-176-200 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð er frá röngu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið og fækkið lykkjum jafnt yfir 28-31-30-33-36-42 lykkjur yfir næstu 130-142-150-164-174-198 lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 104-113-122-131-140-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 90-99-108-117-126-144 lykkjur (= 10-11-12-13-14-16 mynstureiningar með 9 lykkjum), prjónið A.2 (= 12 lykkjur) og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir handveg. Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 0-0-0-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 2-3-4-5-4-6 sinnum = 84-87-90-91-96-102 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en stillið af að það séu minnst 4 lykkjur í sléttprjóni yst í hliðum á stykki. Prjónið þar til stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru miðju 18-19-22-21-22-24 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur eins og áður – stillið mynstrið af þannig að lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu séu prjónaðar í sléttprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 4 sinnum = 22-23-23-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 56-60-64-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð þar sem prjónaðar eru 2 lykkjur slétt í hverja lykkju (prjónið í fremri og aftari lykkjubogann í hverja lykkju umferðina hringinn (lykkjufjöldinn tvöfaldast) = 112-120-128-136-144-152 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9 cm í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4.-3.-3.-3. hverri umferð alls 16-18-19-20-20-21 sinnum = 80-84-90-96-104-110 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-39-39-38-38-37 cm, aukið út um 16-16-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 96-100-108-114-124-130 lykkjur. Þegar ermin mælist 48-48-48-46-46-45 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Nú er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjón 3 eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 lykkja 4-4-7-10-9-10 sinnum, 2 lykkjur 4-4-3-3-3-4 sinnum og síðan 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið = 48-48-54-54-60-60 lykkjur eftir. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón, prjónið næstu 32-32-36-36-40-40 lykkjur slétt saman 2 og 2 (= 16-16-18-18-20-20 lykkjur færri) og prjónið 8-8-9-9-10-10 lykkjur sléttprjón = 32-32-36-36-40-40 lykkjur eftir. Fellið af. Ermin mælist ca 56-57-58-58-58-58 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið ermar í innan við 1 lykkju – það á að vera aðeins puff efst á ermi þar sem lykkjum var fækkað. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 2,5 og DROPS Alpaca eða DROPS Baby Alpaca Silk. Byrjið á öxl og prjónið upp lykkjur frá réttu þannig: Prjónið upp lykkjur meðfram öllu hálsmálinu á bakstykki, prjónið upp lykkjur fram að lykkjum sem sitja á þræði mitt að framan. Setjið til baka lykkjur á prjóninn og prjónið yfir þessar lykkjur frá byrjun á umferð. Prjónið 1 umferð brugðið og jafnið lykkjufjöldann út til ca 120-120-130-130-140-140 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist ca 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið þráðinn og festið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Alexandra Sofia Oliveira Raposo wrote:
Boa tarde como faço onde no diagrama indica "nenhuma malha"? Nao sei mesmo o que fazer
25.07.2022 - 19:24DROPS Design answered:
Boa dia, Alexandra, basta ignorar estas praças como se não existissem - salte-as e continue com a praça seguinte.
27.07.2022 - 05:46Melissa wrote:
Hei! Jeg forstår ikke fellingsinstruksjonene. Hva menes med når det står du skal felle 3 masker 0 ganger? Det virker som man skal felle en gang. Og det står uklart at man skal felle på begge sider av halsen, mens jeg ser det er skrevet begge sider av ermet. Jeg skjønner ikke om jeg skal felle på ermet både fra retten og vrangen, eller bare retten?
26.02.2022 - 20:45DROPS Design answered:
Hej Melissa, du starter med at felle 4 masker 1 gang, i de 3 mindste størrelser springer du over de 3 maskers felling og feller 2 masker 2-3-4 gange alt efter hvilken størrelse du strikker. God fornøjelse!
02.03.2022 - 11:54Rafaela wrote:
Habe eben schon eine Nachricht geschickt, aber vergessen, ich habe Größe 38 und möchte wahrscheinlich glatt rechts stricken bis auf die Bündchen.
06.10.2021 - 16:52DROPS Design answered:
Liebe Rafaela, diese Lektion wird Ihnen damit helfen, die richtige Größe zu finden. Viel Spaß beim stricken!
07.10.2021 - 08:21Tanja Balling Sørensen wrote:
Take me dancing
14.08.2021 - 15:49Johanna wrote:
Pixie snow
05.08.2021 - 14:46Lisa wrote:
It should be named Misty Morning Dew.
03.08.2021 - 23:59