DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 211-13
DROPS Design: Mynstur w-796
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 62, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu!

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 14,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 13. og 14. hverja lykkju og 14. og 15. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum á eftir A.5 þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan A.4 þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:
-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er fyrst prjónað fram og til baka, neðan frá og upp á hringprjóna hvort fyrir sig þar til klaufin er tilbúin. Síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring upp að V-hálsmáli og handvegi. Síðan skiptast stykkið fyrir bakstykki og hægra og vinstra framstykki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 68-76-80-88-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, stroff * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur yfir næstu 58-66-70-78-86-94 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-6-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, A.2 yfir síðustu 2 lykkjur = 64-70-76-82-90-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka með A.1 og A.2 í hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til allt A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 60-66-72-78-86-96 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endið eftir 1 umferð frá röngu. Framstykkið með klauf hefur nú verið prjónað. Klippið frá og geymið stykkið. Prjónið bakstykki á sama hátt, en klippið ekki frá þráðinn þegar stykkið hefur verið prjónað.

Prjónið nú bæði stykkin saman frá réttu.
Byrjið með að prjóna yfir lykkjur frá bakstykki þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið eitt prjónamerki hér. Prjónið síðan alveg eins yfir lykkjur á framstykki = 116-128-140-152-168-188 lykkjur. Nú er 1 prjónamerki í hvorri hlið á stykki. Látið prjónamerkin í hvorri hlið fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-34 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 58-64-70-76-84-94 lykkjur á bakstykki, 24-27-30-33-37-42 sléttar lykkjur, A.3 yfir miðju 10 lykkjur á framstykki, 24-27-30-33-37-42 lykkjur slétt.
Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum og A.3 yfir miðju 10 lykkjur á framstykki.
Nú eru settar 8-8-8-10-10-12 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið þræði (= 4 þræðir með 8-8-8-10-10-12 lykkjur á hvorum þræði). Setjið 42-48-54-56-64-70 lykkjur á bakstykki á sér þráð. Deilið framstykkinu í tvennt þannig að helmingurinn á lykkjunum (þ.e.a.s. 21-24-27-28-32-35 lykkjur) koma á sitt hvorn þráðinn fyrir hægra og vinstra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með nýrri dokku af Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.4 yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum á þræði), þannig að 5 lykkjur í A.4 eru prjónaðar saman með hægra framstykki, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.4 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.4 eru prjónaðar saman með hægra framstykki, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.4 saman með næstu 2 lykkjur meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.4. Endið umferð frá röngu og prjónið eins og áður yfir 21-24-27-28-32-35 lykkjur af þræði fyrir hægra framstykki (þ.e.a.s. prjónið frá handveg og fram að miðju á kaðli = A.3) = 26-29-32-33-37-40 lykkjur í umferð.
Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og handveg þannig:
Prjónið A.5 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, A.4 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og till baka, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 0-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 13 lykkjur. Prjónið nú A.6 yfir síðustu 13 lykkjur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 8 lykkjur eftir í umferð. Endurtakið síðustu 4 umferðirnar í mynsturteikningu (frá umferð með ör) þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-23 cm frá fyrstu úrtöku fyrir hálsmáli – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og næst síðast umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Toppurinn mælist alls ca 48-50-52-54-56-58 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.5 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum á þræði), þannig að 5 lykkjur í A.5 eru prjónaðar saman með vinstra framstykki, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið A.5 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.5 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.5 eru prjónaðar saman með vinstra framstykki, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.5 saman með næstu 2 lykkjur meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.5. Endið umferð frá röngu.
Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og handveg þannig:
Prjónið A.5 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, A.4 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og till baka, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 0-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 13 lykkjur. Prjónið nú A.7 yfir síðustu 13 lykkjur. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 8 lykkjur eftir í umferð. Endurtakið síðustu 4 umferðir í mynsturteikningu (frá umferð með ör) þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-23 cm frá fyrstu úrtöku fyrir hálsmáli – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og næst síðast umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Toppurinn mælist alls ca 48-50-52-54-56-58 cm.

BAKSTYKKI:
Kantur vinstri handvegur:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með nýrri dokku Paris.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.4 yfir allar lykkjur, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af þeim 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), setjið 5 lykkjur í A.4 saman með bakstykki, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.4 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 4: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki þannig að 5 lykkjur í A.4 eru prjónaðar saman með bakstykki, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.4 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.4. Endið umferð eftir umferð frá röngu.

Kantur hægri handvegur:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með Paris.
UMFERÐ 1: Prjónið A.5 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af þeim 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), setjið 5 lykkjur í A.5 saman með bakstykki, snúið.
UMFERÐ 2: Prjónið A.5 yfir 5 lykkjur, snúið.
UMFERÐ 3: Prjónið A.5 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugið saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki þannig að 5 lykkjur í A.5 eru prjónaðar saman með bakstykki, snúið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.5 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.5. Endið umferð eftir umferð frá röngu.

Prjónið nú lykkjur frá þræði á bakstykki saman með 5 lykkjur við kant meðfram handveg frá réttu þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 42-48-54-56-64-70 lykkjur af þræði á bakstykki, prjónið A.4 yfir síðustu 5 lykkjur (= 52-58-64-66-74-80 lykkjur í umferð), jafnframt byrjar úrtaka fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 1-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 42-46-48-48-50-52 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 9-10-11-11-12-14 cm frá fyrstu úrtöku fyrir handveg.
Prjónið 1 umferð frá réttu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og aukið út 0-0-2-2-0-2 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið) = 42-46-50-50-50-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð í mynstri til baka frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næst síðustu umferð í A.7 yfir fyrstu 8 lykkjur áður en þessar lykkjur eru settar á þráð (= band á öxl), fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 26-30-34-34-34-38 lykkjur, prjónið næst síðustu umferð í A.6 yfir síðustu 8 lykkjur í umferð (= band á öxl). Skiptið yfir á hringprjóna 5,5.
Endurtakið mynstur frá umferð með ör, fram og til baka yfir þessar 8 lykkjur þar til band á öxl mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Setjið til baka 8 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5 og prjónið síðustu umferð í A.7 (= frá röngu). Endurtakið síðan mynstur frá umferð með ör þar til band á öxl mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt eru 2 og 2 lykkjur prjónaðar brugðið saman.

FRÁGANGUR:
Saumið band á öxl saman með lykkjuspori. Saumið uppfitjunarkantinn í hliðum þar sem fitjaðar voru upp 5 nýjar lykkjur (A.5/ A.4). Saumið með lykkjuspori til að koma í veg fyrir þykkan saum. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.06.2020
Leiðrétting: Einni lykkju var bætt við í FRAM- OG BAKSTYKKI. Búið er að breyta tveimur mynsturteikningum frá A.3 til A.5 undir BAKSTYKKI.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2023
Bönd á öxlum á bakstykki á einnig að prjóna með prjónum 5,5.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = lyftið 2 næstu lykkjum eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið báðum lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri)
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = endurtakið mynstur frá þessari umferð
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri)
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Seaside Spirals

Svetla, Norway

Seaside Spirals

Catarina, Portugal

Seaside Spirals

Ragna Freyja Gisladottir, Iceland

Seaside Spirals

Maria, Germany

Seaside Spirals

Lyckhälls Hantverk, Sweden

Seaside Spirals

Lyckhälls Hantverk, Sweden

Anna

Anna Porsch, Poland

Seaside Spirals

JoeJ5, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (89)

country flag Martina wrote:

Hilfreich wäre auch ein Foto, wie das Top von hinten aussieht :-)

08.05.2020 - 13:05

country flag Åse Andersen wrote:

Håper mønsteret kommer snart👍🏻👍🏻👍🏻👍🏻

07.05.2020 - 22:19

country flag Eunice Santos wrote:

Lindo... a minha filha quer que o faça adorou demais, como, saber se está disponível o esquema Bem haja vocês teem peças lindas. 😍

05.05.2020 - 00:55

country flag Eunice Ribeiro wrote:

Adoro esta a minha filha pediu para a fazer mas não encontro o modelo com o desenho

04.05.2020 - 23:27

country flag Maria Antonia wrote:

Me encanta! Es precioso, me gustaría tenerlo en mi armario.

04.05.2020 - 19:47

country flag Martina wrote:

Sehr schönes Top! Ich freu` mich schon auf die Anleitung :-)

04.05.2020 - 10:05

country flag Manuela wrote:

Can't wait to see it published! 😍

30.04.2020 - 16:59

country flag Eva wrote:

Es precioso, estoy deseando que publiqueis las intrucciones para hacerlo y ponermelo este verano. Enhorabuena por la elección.

30.04.2020 - 16:29

country flag Diana wrote:

Bonjour, ce top est très joli ! Est ce qu'il serait possible d'avoir les instructions svp? Merci d'avance :)

30.04.2020 - 08:35

country flag Weiss Christine wrote:

Comment puis-je obtenir le modèle ? Il est très élégant !

28.04.2020 - 19:25