Seaside Spirals |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður toppur með köðlum og V-hálsmáli úr DROPS Paris. Stærð XS - XXL.
DROPS 211-13 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu! ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 14,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 13. og 14. hverja lykkju og 14. og 15. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum á eftir A.5 þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan A.4 þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er fyrst prjónað fram og til baka, neðan frá og upp á hringprjóna hvort fyrir sig þar til klaufin er tilbúin. Síðan eru bæði stykkin sett á sama hringprjón og prjónað er í hring upp að V-hálsmáli og handvegi. Síðan skiptast stykkið fyrir bakstykki og hægra og vinstra framstykki og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 68-76-80-88-96-104 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, stroff * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, A.2 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur yfir næstu 58-66-70-78-86-94 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-6-4-6-6-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, A.2 yfir síðustu 2 lykkjur = 64-70-76-82-90-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Haldið áfram fram og til baka með A.1 og A.2 í hlið og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til allt A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 60-66-72-78-86-96 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endið eftir 1 umferð frá röngu. Framstykkið með klauf hefur nú verið prjónað. Klippið frá og geymið stykkið. Prjónið bakstykki á sama hátt, en klippið ekki frá þráðinn þegar stykkið hefur verið prjónað. Prjónið nú bæði stykkin saman frá réttu. Byrjið með að prjóna yfir lykkjur frá bakstykki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið eitt prjónamerki hér. Prjónið síðan alveg eins yfir lykkjur á framstykki = 116-128-140-152-168-188 lykkjur. Nú er 1 prjónamerki í hvorri hlið á stykki. Látið prjónamerkin í hvorri hlið fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-34 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 58-64-70-76-84-94 lykkjur á bakstykki, 24-27-30-33-37-42 sléttar lykkjur, A.3 yfir miðju 10 lykkjur á framstykki, 24-27-30-33-37-42 lykkjur slétt. Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum og A.3 yfir miðju 10 lykkjur á framstykki. Nú eru settar 8-8-8-10-10-12 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið þræði (= 4 þræðir með 8-8-8-10-10-12 lykkjur á hvorum þræði). Setjið 42-48-54-56-64-70 lykkjur á bakstykki á sér þráð. Deilið framstykkinu í tvennt þannig að helmingurinn á lykkjunum (þ.e.a.s. 21-24-27-28-32-35 lykkjur) koma á sitt hvorn þráðinn fyrir hægra og vinstra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með nýrri dokku af Paris. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.4 yfir allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum á þræði), þannig að 5 lykkjur í A.4 eru prjónaðar saman með hægra framstykki, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið A.4 yfir 5 lykkjur, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.4 eru prjónaðar saman með hægra framstykki, snúið. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.4 saman með næstu 2 lykkjur meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.4. Endið umferð frá röngu og prjónið eins og áður yfir 21-24-27-28-32-35 lykkjur af þræði fyrir hægra framstykki (þ.e.a.s. prjónið frá handveg og fram að miðju á kaðli = A.3) = 26-29-32-33-37-40 lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og handveg þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, A.4 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og till baka, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 0-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 13 lykkjur. Prjónið nú A.6 yfir síðustu 13 lykkjur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 8 lykkjur eftir í umferð. Endurtakið síðustu 4 umferðirnar í mynsturteikningu (frá umferð með ör) þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-23 cm frá fyrstu úrtöku fyrir hálsmáli – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og næst síðast umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Toppurinn mælist alls ca 48-50-52-54-56-58 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með Paris. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.5 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af 8-8-8-10-10-12 lykkjum á þræði), þannig að 5 lykkjur í A.5 eru prjónaðar saman með vinstra framstykki, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið A.5 yfir 5 lykkjur, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið A.5 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki, þannig að 5 lykkjur í A.5 eru prjónaðar saman með vinstra framstykki, snúið. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.5 saman með næstu 2 lykkjur meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.5. Endið umferð frá röngu. Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli og handveg þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 5 lykkjur, sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, A.4 yfir síðustu 5 lykkjur. Haldið svona áfram fram og till baka, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir V-hálsmáli og handveg – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir V-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 9-10-11-11-12-13 sinnum og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 0-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 13 lykkjur. Prjónið nú A.7 yfir síðustu 13 lykkjur. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 8 lykkjur eftir í umferð. Endurtakið síðustu 4 umferðir í mynsturteikningu (frá umferð með ör) þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-23 cm frá fyrstu úrtöku fyrir hálsmáli – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og næst síðast umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Toppurinn mælist alls ca 48-50-52-54-56-58 cm. BAKSTYKKI: Kantur vinstri handvegur: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með nýrri dokku Paris. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið A.4 yfir allar lykkjur, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af þeim 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), setjið 5 lykkjur í A.4 saman með bakstykki, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið A.4 yfir 5 lykkjur, snúið. UMFERÐ 4: Prjónið A.4 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju slétt saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki þannig að 5 lykkjur í A.4 eru prjónaðar saman með bakstykki, snúið. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.4 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.4. Endið umferð eftir umferð frá röngu. Kantur hægri handvegur: Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 5,5 með Paris. UMFERÐ 1: Prjónið A.5 yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugðið saman með 1. og 2. lykkju á eftir prjónamerki í hlið (þ.e.a.s. af þeim 8-8-8-10-10-12 lykkjum af þræði), setjið 5 lykkjur í A.5 saman með bakstykki, snúið. UMFERÐ 2: Prjónið A.5 yfir 5 lykkjur, snúið. UMFERÐ 3: Prjónið A.5 til baka yfir fyrstu 4 lykkjur, prjónið síðustu lykkju brugið saman með 3. og 4. lykkju á eftir prjónamerki þannig að 5 lykkjur í A.5 eru prjónaðar saman með bakstykki, snúið. Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna síðustu lykkju í A.5 saman með næstu 2 lykkjum meðfram handveg þar til allar 8-8-8-10-10-12 lykkjur meðfram handveg hafa verið prjónaðar saman með A.5. Endið umferð eftir umferð frá röngu. Prjónið nú lykkjur frá þræði á bakstykki saman með 5 lykkjur við kant meðfram handveg frá réttu þannig: Prjónið A.5 yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir 42-48-54-56-64-70 lykkjur af þræði á bakstykki, prjónið A.4 yfir síðustu 5 lykkjur (= 52-58-64-66-74-80 lykkjur í umferð), jafnframt byrjar úrtaka fyrir handveg – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð 1-2-5-7-12-14 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 4-4-3-2-0-0 sinnum = 42-46-48-48-50-52 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 9-10-11-11-12-14 cm frá fyrstu úrtöku fyrir handveg. Prjónið 1 umferð frá réttu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og aukið út 0-0-2-2-0-2 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið) = 42-46-50-50-50-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð í mynstri til baka frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 2 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, prjónið næst síðustu umferð í A.7 yfir fyrstu 8 lykkjur áður en þessar lykkjur eru settar á þráð (= band á öxl), fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 26-30-34-34-34-38 lykkjur, prjónið næst síðustu umferð í A.6 yfir síðustu 8 lykkjur í umferð (= band á öxl). Skiptið yfir á hringprjóna 5,5. Endurtakið mynstur frá umferð með ör, fram og til baka yfir þessar 8 lykkjur þar til band á öxl mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt þar sem 2 og 2 lykkjur eru prjónaðar brugðið saman. Setjið til baka 8 lykkjur af þræði á hringprjón 5,5 og prjónið síðustu umferð í A.7 (= frá röngu). Endurtakið síðan mynstur frá umferð með ör þar til band á öxl mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm – stillið af að endað sé eftir næst síðustu umferð í mynsturteikningu. Fellið af frá röngu með brugðnum lykkjum, jafnframt eru 2 og 2 lykkjur prjónaðar brugðið saman. FRÁGANGUR: Saumið band á öxl saman með lykkjuspori. Saumið uppfitjunarkantinn í hliðum þar sem fitjaðar voru upp 5 nýjar lykkjur (A.5/ A.4). Saumið með lykkjuspori til að koma í veg fyrir þykkan saum. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (89)
Maria DeLeon wrote:
Cómo hacer sweater o blusa cuello en V con aguja circulares redondo?
11.06.2020 - 14:25DROPS Design answered:
Hola Maria. Marcando la etiqueta "escote en V", que puedes encontrar bajo el nombre del patrón, tienes acceso a varios modelos de jerseis con escote en V.
13.06.2020 - 20:16Maria De Leon wrote:
Buenos días! Gracias por tanta ayuda Excelente!!!
11.06.2020 - 14:23Cannicioni Patricia wrote:
Bonjour , avez vous les explications en français ? merci !
05.06.2020 - 07:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cannicioni, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez simplement sur le menu sous la photo pour changer la langue. Bon tricot!
05.06.2020 - 07:53Eunice Ribeiro 🇵🇹 wrote:
Agradeço a publicação do modelo! Nota 💯 É lindo lindo, vou fazer para a minha filha que estava ansiosa para o ter, 🙏 Adoro os vossos trabalhos, agulhas e acessórios que já compro. Vem haja para vocês que têm mãos de fada. Bjs fiquem bem.
03.06.2020 - 01:56Marion wrote:
Can't wait to knit! When will the instructions be published?
20.05.2020 - 11:17Eunice Ribeiro wrote:
Bom dia este modelo de top é lindíssimo para agora que estamos , no calor gostaria de o fazer , mas ainda nao tem o esquema publicado ..:-( informam of quando esta disponível? obrigada.
18.05.2020 - 11:46Janny wrote:
Mooi model, wacht op het patroon!?
16.05.2020 - 13:58Charlotte wrote:
Meget flot - håber mønstret kommer snart!
14.05.2020 - 08:58Lucrecia wrote:
Precioso. Elegante. Ideal para tardes de verano.
12.05.2020 - 17:26Willy Van Der Veen wrote:
Ik wil graag met dit patroon beginnen te breien maar waarom kan ik niet bij het patroon komen? Het lijkt mij een leuke uitdaging om deze te breien. Vriendelijke groet, Willy van der Veen
11.05.2020 - 23:44