DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Canyon Clay

Prjónaður toppur með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-15
DROPS Design: Mynstur w-806
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-350-400-450-500-550 g litur 65, ryð

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 9 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

LASKALÍNA:
Í byrjun er aukið út um 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri í umferð), síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 2 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerkið situr hér.
Aukið út um 2 lykkjur á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki situr hér.
Aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 112-118-126-138-144-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-12-12-12 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8-8-8-8-8-8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 3 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrsta prjónamerki og aukið jafnframt út 2-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjurnar fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 4-6-5-5-6-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-11-11-11-11 lykkjurnar og aukið jafnframt út 2-3-2-2-3-4 lykkjur jafnt yfir = 144-156-162-178-188-192 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat).
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Það er einungis aukið út á framstykki og bakstykki við hverja laskalínu. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls
9-9-8-10-12-13 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð 2-4-6-6-8-8 sinnum = 224-244-250-282-316-328 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 12-13-15-16-18-20 cm frá prjónamerki.
Nú er stykkið tilbúið. Prjónið síðan ystu lykkjuna í hvorri hlið á framstykki og bakstykki inn á ermum.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 30-33-37-41-47-50 lykkjurnar, setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-71-79-92-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 32-35-34-38-45-48 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 136-148-162-178-204-224 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 3-3-5-5-5-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-7-6-5-4-3 cm millibili alls 2 sinnum = 128-140-154-170-196-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-18-16-14-12-10 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með ca 3-4-4-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 144-156-170-186-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu (nú eru eftir 3 cm að loka máli – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-34-38-40-44 lykkjur = 172-184-204-224-248-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Toppurinn mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 50-54-54-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki til baka á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og takið upp 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-76-80 lykkjur.
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.05.2020
ERMI:..Setjið til baka 50-54-54-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki til baka á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og takið upp 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-76-80 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 30.09.2021
Úrtaka á FRAM- OG BAKSTYKKI í stærð M hefur verið leiðrétt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Canyon Clay

@agnes_strikk, Norway

Canyon Clay

Rocío Martínez, Spain

Canyon Clay

Marga Suárez, Spain

Canyon Clay

Ada, Croatia

Canyon Clay

Ina, Netherlands

Canon Clay toppen in Drops Paris

Ellen Kenntoft Hof, Sweden

Canyon Clay, knitted with Paris colour 27

Elise Johansen, Afghanistan

Canyon Clay

Gabriela, Romania

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (162)

country flag Wilma Vrijs wrote:

In het patroon staat na het afronden van de pas: Brei dan in de buitenste steek aan elke kant van het voorpand en het achterpand in op de mouwen. Dat begrijp ik niet, sorry. Wat betekent dat?

10.06.2020 - 07:57

DROPS Design answered:

Dag Wilma,

Het staat er inderdaad een beetje vreemd, maar de buitenste steken van de panden worden nu bij de mouwen gezet. Maar hier hoef je verder niks te doen, het staat er alleen als extra informatie. Je kunt het patroon voortzetten vanaf de volgende zin: 'Brei de volgende naald als volt...' , dan wijst het zich vanzelf.

10.06.2020 - 11:43

country flag Lata wrote:

Buonasera, non capisco gli aumenti del raglan perché se aumento 2 maglie prima del segno e 2 dopo il segno essendo quattro i segni che dividono il davanti e il dietro dalle maniche gli aumenti diventando 16 per giro, cosa sbagliato? Grazie

09.06.2020 - 23:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Lata. Deve aumentare solo sul davanti e sul dietro, non sulle maniche. Quindi aumenta 2 maglie 4 volte sul giro, in tutto 8 maglie. Buon lavoro!

10.06.2020 - 12:01

country flag Lara wrote:

Buongiorno, il mio campione non risulta uguale al vostro ho infatti 22 maglie in larghezza anzichè 17 come il vostro. Non posso usare un ago più grande perchè la trama risulta troppo larga, come posso regolarmi per l'avvio delle maglie? Forse 112 per la taglia S sono troppe poche? Grazie molte!

08.06.2020 - 11:46

DROPS Design answered:

Buongiorno Lara, questo modello e in generale questo filato richiede una tensione di 17 maglie in larghezza, indipendentemente dalla trama. Buon lavoro!

12.06.2020 - 10:13

country flag STURM wrote:

Un grand merci !! je viens de comprendre mon erreur !

03.06.2020 - 17:07

country flag STURM wrote:

Y a-t-il une erreur dans les explications au niveau de l\'empiècement ? je suis après la bordure avec les aig. 5. Dans les explications, je devrais poursuivre partout en côte (soit env, soit end, comme les mailles se présentent). Sur la photo, après la bordure en aig 3,5, le devant et le dos sont en jersey end. alors que les explications poursuivent pendant 15 cm en côtes end/ env partout. Les explications ne font commencer le jersey endroit qu'après l'augmentation pour les manches.

02.06.2020 - 21:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sturm, pas d'erreur à priori, pour l'empiècement, vous tricotez les mailles comme elles se présentent, autrement dit, les mailles jersey tricotées au dernier rang du col (aiguilles 3,5) vont se tricoter à l'endroit, vous aurez ainsi les mailles des manches en côtes et les mailles du devant et celles du dos en jersey. Vérifiez bien le dernier tour du col, c'est là que l'on commence à tricoter du jersey. Bon tricot!

03.06.2020 - 07:25

country flag Irene wrote:

Na het breien van de boord moet het voor- en achterpand in tricot gebreid worden, echter staat er 'Ga verder met recht boven recht en averecht boven averecht tot het werk 12-13-15-16-18-20 cm meet vanaf de markeerdraad. ' Op deze manier houd je de boordsteken aan, die wel nodig zijn op de mouwen, maar niet op het voor- en achterpand. Ook zie ik in de foto's niet de meerderde steken terug in de eerste toer na de boord.

01.06.2020 - 21:33

country flag Elena wrote:

Lo siento, pero no sé cómo combinar las instrucciones del ranglan con las del canesú porque no se específica lo que hay que aumentar de ranglan y de canesú en cada vuelta. Eso no está especificado. Dice: después, después..., pero no habla de vueltas. Y entiendo que en cada vuelta hay que hacer una cosa, y no sé cómo es. Gracias.

31.05.2020 - 21:07

DROPS Design answered:

Hola Elena. El patrón es correcto. En el apartado RAGLÁN se explica cómo trabajar los aumentos del raglán ( es decir, cómo aumentar 2 puntos y cómo aumentar 1 punto a cada lado del marcapuntos). En el apartado CANESÚ se explica cuántas veces se trabajan los aumentos : Aumentar 2 puntos cada 2ª vuelta un total de 9-9-8-10-12-13 veces, después aumentar 1 punto cada 2ª vuelta 2-4-6-6-8-8 veces (el número de veces depende de la talla trabajada).

07.06.2020 - 21:25

country flag Elena González wrote:

Hola! No sé cómo combinar las instrucciones del ranglan y el canesú. No está claro lo que hay que hacer en cada vuelta. ¿Pueden ayudarme? Gracias!

30.05.2020 - 15:15

DROPS Design answered:

Hola Elena. En las explicaciones para el raglán te indican cómo trabajar los puntos y cómo aumentar en la línea del raglán. En las explicaciones del patrón te indican cómo repartir los puntos para el cuerpo y las mangas, y con qué frecuencia y dónde se trabajan los aumentos para el raglán.

31.05.2020 - 20:30

country flag STURM wrote:

Merci pour votre réponse ne m'aide pas : j'ai fait la bordure et quand je lis les explications, je comprends qu'on continue tout l'empiècement en côtes alors que sur la photo on voit du jersey endroit sur le devant après la bordure . Si empiècement = dos/ devant et manches pendant 15cm en côtes cela ne correspond pas à la photo. Le jersey endroit arrive dans les explications quand on aborde la partie avec les mailles des manches sur une aiguille d'arrêt. Ai-je mal compris?

29.05.2020 - 19:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sturm, je regrette de ne pas comprendre votre question, vous tricotez les mailles comme elles se présentent, autrement dit soit en côtes (envers/endroit) soit à l'endroit = quand on tricote du jersey en rond, on tricote les mailles à l'endroit. Peut-être pouvez-vous citer la phrase qui vous pose problème dans les explications afin que l'on arrive à se comprendre. Avez-vous déjà commencé à tricoter? Où en êtes-vous précisément (quelle taille)? Merci!

02.06.2020 - 08:59

country flag STURM wrote:

Bonjour, dans l'empiècement vous indiquez qu'il faut continuer de tricoter les mailles comme elle se présentent (endroit ou envers) mais ça ne correspond pas à la photo, me semble-t-il, où les mailles continuent à être endroit sur endroit et envers sur envers alors que le dos et le devant sont d'ors et déjà en maille jersey. Dans vos explication le jersey n'arriverait qu'après 15 cm après la bordure.... Pourriez-vous m'aider à comprendre si je me trompe ou pas ? Merci

28.05.2020 - 23:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sturm, quand on tricote les mailles comme elles se présentent, on va tricoter les m endroit à l'endroit et les m envers à l'envers, autrement dit, les mailles en côtes comme avant (les m end à l'end et les m env à l'env) et les mailles jersey vont se tricoter à l'endroit. À moins que je ne comprenne pas votre question? À quel niveau précis en êtes vous précisément?

29.05.2020 - 08:20