Pia wrote:
Hej Drops Jeg kunne godt tænke mig at vide, om Bomull Lin kommer i flere farver? Og om Fabel ikke kan laves i Bomuld, det er så smukt et garn?🍀
31.07.2020 - 10:31DROPS Design answered:
Hej Pia, ikke i øjeblikket. Men vi skriver dit ønske op til fremtiden. God dag!
03.08.2020 - 14:37Lucia Bandirali wrote:
Buondì, vorrei chiedere, nei suggerimenti x le diminuzioni, tra parentesi scrivete maniche, non è corretto, le maniche non hanno diminuzioni, dovreste scrivere (corpo)
28.07.2020 - 14:13DROPS Design answered:
Buongiorno Lucia. Abbiamo tolto l'indicazione tra parentesi. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
28.07.2020 - 19:17Lucia Bandirali wrote:
Ciao,sono arrivata al momento dello sprone e quindi aumenti sul davanti e sul dietro,ok,quindi gli aumenti prima del segno che poi segue la manica, giusto?poi faccio la manica e quindi aumenti dopo il segno ,dopo la manica grazie
19.07.2020 - 16:04DROPS Design answered:
Buongiorno Lucia. Sì è corretto come ha scritto. Buon lavoro!
19.07.2020 - 16:26Lone Sørensen wrote:
Jeg strikker i str. M. I afsnittet ryg og forstykke står der, at man skal tage 2 m ind på hver side af mærketrådene efter 4 cm, samt derefter efter 9 cm 2 gange, men efter 18 cm skal der tages 1 m ud på hver side af mærketrådene? På det tidspunkt vil arb. måle 22 cm. Skal der ikke stå på hver 9 pind 2 gange? istedet for cm.
18.07.2020 - 11:24DROPS Design answered:
Hej Lone, du tager 2 masker ind i hver side når arb måler 4 cm og 13 cm = 140m. Når arb måler 18 cm tager du 2 masker ud i hver side for hver 4.cm ialt 4 gange = 156 masker. God fornøjelse!
31.07.2020 - 08:11Valérie wrote:
Bonjour, De quelle manière sont montées les mailles pour avoir une jolie bordure comme sur la photo (mailles inclinées de l'autre côté par rapport au modèle Cornflower Top) ? "Continuer en rond ainsi jusqu'à ce que les côtes mesurent 3 cm." : sur la photo il y a 6 rangs de côtes mais 6 rangs de côtes ne font pas 3 cm. Les photos sont-elles censées représenter ce qu'on doit obtenir ? Merci de vos réponses.
04.07.2020 - 14:14DROPS Design answered:
Bonjour Valérie, les mailles sont montées à la méthode continentale - en fonction de votre tension en hauteur, il vous faudra peut être un nombre de rangs différent pour les 3 cm de côtes, ce qui compte c'est ici la hauteur, continuez jusqu'à ce que vous ayez ces 3 cm. Bon tricot!
06.07.2020 - 08:30Susanne Birkler wrote:
Hej jeg kan ikke forstå beskrivelsen af : (Sæt 1 mærketråd i hver side, midt i de nye masker som blev slået op under ærmerne (= 3-3-5-5-5-7 nye masker på hver side af mærketråden). Lad mærketrådene følge med i arbejdet, de skal bruges lidt senere når der skal tages ud i siderne.) Skal mærketråden sættes i de første 10 m.? Og hvor Eller på for og bag stk. Hvordan sætter de nye masker ind Kh Susanne
18.06.2020 - 21:27DROPS Design answered:
Hei Susanne. I oppskriften står det under RYG & FORSTYKKE : Sæt 1 mærketråd i hver side, midt i de nye masker som blev slået op under ærmerne (= 3-3-5-5-5-7 nye masker på hver side af mærketråden). Merketråden er satt midt under erme, slik at når det senere skal felles og økes i sidene skal det felles / økes på hver side av disse 2 merketrådene, les også FELLETIPS og ØKETIPS-3 i oppskriften. Gjerne se og les videoen: "Mærketråd (MT)" God Fornøyelse!
22.06.2020 - 11:14Pernille Raun wrote:
Hej. Jeg forstår ikke udregningen vedr. udtag til raglan. Jeg strikker L. Hvis jeg skal øge med 2 masker på hver side af mærketrådene, så øges der da med 16 masker pr. omgang og ikke 8. Tilsvarende når man øger med 1 på hver side af mærketråden, så bliver antallet på en omgang 8. Dette betyder, at jeg, når bærestykket er færdigt, sidder tilbage med 338 masker og ikke 250 masker - hvor er det jeg går galt?
11.06.2020 - 15:45DROPS Design answered:
Hej Pernille, du øger kun til raglan på forstykket og på bagstykket (ikke på ærmerne). Først øger du 2 masker i hver side = 4 masker på forstykket og 4 masker på bagstykket. God fornøjelse!
12.06.2020 - 10:54Mª José wrote:
Hola me llamo Mª José y tengo el canal El punto Inglés donde tengo un Jersey publicado el 25.08.2016 que guarda mucha similitud con este. Me ha sorprendido enormemente!! ya que en mi Instagram punto_ingles me están haciendo preguntas para resolver algunos problemas que están teniendo con las instrucciones que dan de su jersey con los aumentos del ranglan y que casualmente coinciden con los comentarios que les hacen a ustedes en Comentarios/ Preguntas. Saludos.
10.06.2020 - 23:37Elena wrote:
Hola, En el ranglan, ¿en qué vuelta tengo que aumentar 8 puntos, y en qué vuelta tengo que aumentar 4 puntos?? Gracias
10.06.2020 - 17:26DROPS Design answered:
Hola Elena. Primero aumentas 8 puntos en cada 2ª vuelta una vuelta aumentas, en la siguiente no, en la siguiente sí...) el nº de veces según la talla que trabajas, después de completar esta parte aumentas 4 puntos en la vuelta cada 2ª vuelta (una aumentas, la siguiente no, la siguiente sí...) también el nº de veces según la talla.
13.06.2020 - 20:36
Canyon Clay |
|
|
|
Prjónaður toppur með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 9 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LASKALÍNA: Í byrjun er aukið út um 2 lykkjur við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 8 lykkjur fleiri í umferð), síðan er aukið út um 1 lykkju við hverja laskalínu á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerkið situr hér. Aukið út um 2 lykkjur á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, prjónamerki situr hér. Aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-118-126-138-144-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-12-12-12 lykkjur, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), 1 lykkja slétt, (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 33-36-36-42-45-45 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), 1 lykkja slétt, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 8-8-8-8-8-8 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram hringinn þar til stroffið mælist 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að fyrsta prjónamerki og aukið jafnframt út 2-3-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjurnar fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 4-6-5-5-6-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur fram að næsta prjónamerki og aukið jafnframt út 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-11-11-11-11 lykkjurnar og aukið jafnframt út 2-3-2-2-3-4 lykkjur jafnt yfir = 144-156-162-178-188-192 lykkjur. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Það er einungis aukið út á framstykki og bakstykki við hverja laskalínu. Aukið út um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 9-9-8-10-12-13 sinnum, síðan er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð 2-4-6-6-8-8 sinnum = 224-244-250-282-316-328 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 12-13-15-16-18-20 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið tilbúið. Prjónið síðan ystu lykkjuna í hvorri hlið á framstykki og bakstykki inn á ermum. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 30-33-37-41-47-50 lykkjurnar, setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-71-79-92-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-54-54-62-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-10-10-10-14 lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 32-35-34-38-45-48 lykkjur í umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-148-162-178-204-224 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum (= 3-3-5-5-5-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar aukið er út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-7-6-5-4-3 cm millibili alls 2 sinnum = 128-140-154-170-196-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-18-16-14-12-10 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-3. Aukið svona út með ca 3-4-4-5-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-3-3 sinnum = 144-156-170-186-208-228 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm frá skiptingu (nú eru eftir 3 cm að loka máli – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-34-38-40-44 lykkjur = 172-184-204-224-248-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Toppurinn mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 50-54-54-62-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki til baka á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5 og takið upp 1 lykkju hvoru megin við 6-6-10-10-10-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-76-80 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Pia wrote:
Tak, for en rigtig fin bluse☘️
22.07.2020 - 14:42