DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Waiting for Snow

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Karisma með köðlum og áferðamynstri og eyrnaband prjónað fram og til baka með köðlum.

DROPS 195-1
DROPS Design: Mynstur me-152
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Höfuðmál: 56/58 cm í allar stærðir

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-750-800-850-950-1050 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
700-750-850-900-1000-1100 g litur 01, natur

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-700-750-800-900-1000 g litur 01, natur
Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-800-850-950-1050 g litur 01, natur

EYRNABAND:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: 56/58 cm
Hæð: ca 10 cm. Ummál: ca 51 cm.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12012.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Peysa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.5 til A.7.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 240 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 26) = 9,2.
Í þessu dæmi er aukið út eftir ca 9. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum jafnt óðum eru prjónaðar (í þessu dæmi) ca 8. og 9. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er framstykkið prjónað og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna upp að handveg, síðan er ermin prjónuð og axlir fram og til baka. Að lokum eru ermarnar saumaðar í handveg og axlir í fram- og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 214-230-246-266-286-308 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Karisma.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út 26-26-26-30-30-36 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 240-256-272-296-316-344 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun á umferð og eitt á eftir 120-128-136-148-158-172 lykkjum (= í hvora hlið). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið mynstur þannig: * Prjónið 23-27-31-32-37-39 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 22 lykkjur), A.2 (= 10 lykkur) yfir næstu 30-30-30-40-40-50 lykkjur (= 3-3-3-4-4-5 mynstureiningar á breidd), A.3 (= 22 lykkjur), 23-27-31-32-37-39 lykkjur með sléttprjóni, prjónamerki er staðsett hér *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur svona og endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af 6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað nú fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 114-122-130-142-152-166 lykkjur.
Prjónið síðan fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið, JAFNFRAMT eru felldar af lykkjur í byrjun á hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-3-3-3 sinnum = 104-112-114-124-130-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 18-18-18-22-22-25 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.1, A.2 og A.3 = 86-94-96-102-108-115 lykkjur. Fellið af.

FRAMSTYKKI:
= 114-122-130-142-152-166 lykkjur.
Prjónað er fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 104-112-114-124-130-140 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fækkið um 10-10-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir miðju 38-38-46-46-46-46 lykkjur í umferð áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli (= 28-28-34-34-34-34 lykkjur á þræði fyrir hálsmáli) = 33-37-34-39-42-47 lykkjur fyrir öxl. Prjónið síðan hvora öxl til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli eru felldar af 2 lykkjur = 31-35-32-37-40-45 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 4-4-3-5-5-6 lykkjur jafnt yfir lykkjur í mynstri = 27-31-29-32-35-39 lykkjur. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRI ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-50-52-54-56-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 9 cm. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-1-1-1-1-1 lykkju í umferð = 47-49-51-53-55-59 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið mynstur þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 7-8-9-10-11-13 lykkjurnar, prjónið A.4 yfir næstu 32 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.4, 7-8-9-10-11-13 lykkjur í sléttprjóni. Haldið áfram með mynstur upp úr, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-12-11-10 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út í 6.-5.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 16-17-18-19-20-20 sinnum = 79-83-87-91-95-99 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-44-44-42-42-40 cm fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 73-77-81-85-89-93 lykkjur. Prjónið síðan ermi fram og til baka á hringprjón og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 6-8-10-10-12-12 sinnum og 1 lykkja 8-6-4-6-4-6 sinnum = 33 lykkjur eftir í öllum stærðum. Stykkið mælist nú 54-54-54-53-53-52 cm. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með mynstur yfir þær 33 lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 13-15-14-15-17-18 cm. Fellið síðan af í hægri hlið, í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 17 lykkjur, 1 sinni, 2 lykkjur, 1 sinni, 1 lykkja 2 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið síðan yfir þessar 12 lykkjur þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-27 cm. Fellið af. Öll ermin mælist ca 74-76-77-77-79-79 cm.

VINSTRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en fellið af efst í gagnstæðri hlið, þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman ermar við miðju að aftan innan við affellingarkantinn á hvorri ermi. Saumið ermar í við fram- og bakstykki í ystur lykkju þannig: Saumið saum frá handvegi og upp meðfram öxl á bakstykki við miðju að aftan. Endurtakið í hinni hliðinni. Saumið alveg eins frá handvegi og upp meðfram öxl á framstykki upp að hálsmáli. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 94-94-108-108-108-108-108 lykkjur í kringum kant í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 22-22-26-26-26-26-26 lykkjur jafnt yfir = 116-116-134-134-134-134-134 lykkjur. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón. Fellið af. Brjótið kantinn í hálsmáli tvöfaldan og saumið niður að innan verðu, garðaprjón við garðaprjón.

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan og er saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 30 lykkjur á prjón 4 með Merino Extra Fine eða Karisma. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.5 (= 5 lykkjur í fyrstu umferð) alls 6 sinnum í umferð. Eftir fyrstu umferðina í A.5 hefur verið aukið út um alls 6 lykkjur = 36 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.6 (= 6 lykkjur) yfir hverja mynstureiningu A.5. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26 cm er gerður kaðall á eyrnabandið við miðju að framan þannig: Prjónið fyrstu 18 lykkjur á kaðlaprjóni, prjónið hinar 18 lykkjurnar og síðan 18 lykkjur af kaðlaprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur A.6 fram og til baka þar til stykkið mælist ca 49 cm – stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu af A.6 á hæðina (nú eru eftir ca 3 cm til loka).
Prjónið nú A.7 yfir hverja mynstureiningu af A.6. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru 30 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Saumið eyrnabandið saman við miðju að aftan með því að sauma í lykkjur eina og eina innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið lykkju af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjóni 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Maria wrote:

Buongiorno. Dopo aver posto una domanda 6 giorni fa, speravo di ricevere un cenno di risposta. Così non è stato. Grazie ugualmente.

06.03.2024 - 09:39

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, abbiamo risposto alla sua domanda: deve ripetere i diagrammi fino alla lunghezza indicata. Buon lavoro!

11.03.2024 - 23:50

country flag Maria wrote:

Buongiorno. I diagrammi A1 e A3 hanno 18 righe, mentre il diagramma A2 ne ha 20. Quindi, dopo la riga 18 riprendo dall'inizio A1 e A3, finendo nel contempo il diagramma A2. Ma poi come proseguo? Continuo A1 e A3 con la terza riga e A2 con la prima riga? Ma così facendo, i diagrammi non sono più allineati. Mi spiace, ma non capisco. Potete aiutarmi? Grazie.

29.02.2024 - 22:22

DROPS Design answered:

Buonasera Maria, alla fine di A.2 deve ricominciare dalla 1° riga e lavorare fino alla lunghezza indicata. Buon lavoro!

11.03.2024 - 23:49

country flag Dumont wrote:

Merci de votre réponse rapide. Je vous dois toutes mes excuses. Trop impatiente de voir le motif, je n'avais pas été jusqu'au bout du diagramme...

26.01.2024 - 07:40

country flag Dumont wrote:

Bonjour, Je suis perplexe car mon dessin , fait à partir de vos grilles ne correspond pas à vos photos. Où ai je faux? Je ne vois pas de torsades indiquées sous les losanges comme sur vos photos. Merci

25.01.2024 - 13:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dumont, notez que tous les rangs figurent dans les diagrammes, sur l'endroit, lisez tous les rangs de droite à gauche (sur l'envers, vous les lirez ensuite de gauche à droite). Les torsades avec les losanges (panneau central du pull) correspond au diagramme A.2 que l'on répète 3, 4 ou 5 fois en fonction de la taille, encadré ensuite par les torsades des diagrammes A.1 et A.3. Bon tricot!

26.01.2024 - 07:18

country flag Linda Svensson wrote:

Var hittar jag mönster till A5 och A6?

07.11.2022 - 06:42

DROPS Design answered:

Hei Linda. Diagrammene finner du nederst på oppskriften. Om du ser til venstre for diagram A.3, vil du finne diagram A.5 og A.6, som er i samme diagram som A.7. mvh DROPS Design

07.11.2022 - 14:04

country flag Maree Edmondson wrote:

Hello I'm knitting your Waiting for snow sweater pattern. I'm up to the sleeves but am not sure that I'm reading the pattern correctly? The Graff to me reads that it's a knit or purl pattern only, but when I look at the sleeve, it seems to have a hole pattern. Is there another part to the pattern, or is the sleeve pattern a knit and purl only. I actually can't see the sleeve pattern very well when I look at the picture, hence my question. Thanks Maree.

01.08.2022 - 03:02

DROPS Design answered:

Hi Maree, The sleeves are knit and purl. Happy crafting!

01.08.2022 - 06:49

country flag Maree Edmondson wrote:

Hello I'm knitting the pattern, waiting for snow by Daniela Slovakia from the drops fan gallery. I'm confused in the diagrams of A2 which has 20 rows for the diagram, but the other diagrams of A1 and A3, only have 18 rows. What do I do with the extra rows from A2 please?

06.07.2022 - 06:01

DROPS Design answered:

Hi Maree, When A.1 and A.3 are finished in height, repeat from the bottom and finish the 2 remaining rows in A.2, then repeat this diagram in height. The pattern in A.2 will then correspond to the patterns in A.1 and A.3. Happy knitting!

06.07.2022 - 06:50

country flag Cornelia wrote:

Hallo wordt het telpatroon ook op de rugpand gebreid of in tricot steek. Groetjes cornelia

19.04.2021 - 22:45

DROPS Design answered:

Dag Cornelia,

Ja, het telpatroon wordt ook op het rugpand gebreid.

21.04.2021 - 12:59

country flag Lena Lindholm wrote:

Hej igen, varför har mönster A2 20 varv och A1 18 varv?

25.12.2020 - 20:26

DROPS Design answered:

Hej Lena. Du upprepar bara diagrammen till det mått som uppges i mönstret så det spelar ingen roll om det är olika antal varv i dem. Mvh DROPS Design

05.01.2021 - 12:08

country flag Lena Lindholm wrote:

Hej. när skall jag byta till stickor nr 4 ? efter 4 varv rätsticknig eller...?

22.12.2020 - 14:50

DROPS Design answered:

Hej Lena, efter ökningarna står det: Byt till rundsticka 4 och sticka mönster så här: Lycka till :)

23.12.2020 - 11:29