DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Hour

Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, klauf í hliðum og háum kraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-21
DROPS Design: Mynstur wi-049
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
750-800-900-950-1050-1150 g litur 12, karrý

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-750-850-900-1000-1100 g litur 22, gulur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat = 2 lykkjur fleiri.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og frágangur er gerður eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður upp hár kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-81-85-89-93 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-70-74 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 50-54-58-62-66-70 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af miðju 14-14-16-18-18-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 17-19-20-21-23-24 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm (= 24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi).
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 73-77-81-85-89-93 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8.
Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir næstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 4 lykkjur brugðið, A.1, 3 lykkjur brugðið, A.1, 3 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir næstu 12-14-16-18-20-22 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni = 69-73-77-81-85-89 lykkjur.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir hvert A.1. endurtakið A.2 á hæðina.

Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 næstu umferðum = 65-69-73-77-81-85 cm.
Þegar stykkið mælist 60-62-64-65-67-69 cm, setjið miðju 17-17-19-21-21-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er fellt af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: 1 lykkja 2 sinnum = 22-24-25-26-28-29 lykkjur. Lykkjur í A.1 á öxl er nú prjónað í sléttprjóni, þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-19-20-21-23-24 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm (24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Wish eða DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Prjónið stroff í 6 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, jafnframt er aukið út um 4-5-4-5-4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir síðustu 7-7-9-9-11-11 lykkjur, jafnframt er aukið út um 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina og lykkjur hafa verið auknar út jafnt yfir, eru 43-45-47-49-51-53 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 yfir lykkjur í A.1 og sléttar lykkjur / brugðnar lykkjur eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 9-9-9-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-42-41 cm, prjónið lykkjur í A.2 áfram í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-45-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir neðstu 8 cm = klauf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 7, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 60 til 84 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13-13-14-14-15-15 cm. Fellið af aðeins laust.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag NGO THI wrote:

Bonjour , Je ne comprend pas pour le devant après avoir monter 73 mailles comment on peut avoir 65 mailles apres 2x 8 diminutions . Pouvez vous me dire ou j’ai mal compris svp ? D’avance je vous remercie

13.03.2024 - 06:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Thi, on diminuant 2 x 8 mailles, on tricote en même temps le 1er rang de A.1 et on augmente ainsi 4 mailles à chaque fois, on va donc diminuer 16 m et augmenter 12 mailles pour les torsades, on a bien: 73-16+12=69 mailles. Bon tricot!

13.03.2024 - 08:26

country flag Nathalie wrote:

Bonjour , je tricote ce pull sans emmanchures ( je fais deux rectangles identiques pour le dos et devant) , lorsque je fais les manches en rond , est-ce que les derniers rangs je les tricote quand même en aller/ retour ?

13.02.2024 - 13:52

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, si vous n'avez pas rabattu de mailles pour les emmanchures devant et dos, vous pouvez terminer la manche en rond, car vous n'aurez pas les derniers cm de la manche à monter le long des emmanchures. Bon tricot!

14.02.2024 - 07:23

country flag Nathalie Bernd wrote:

Bonjour, je vais tricoter ce modèle pour une amie ; faut-il absolument utiliser des aiguilles doubles pointes pour les manches ou puis-je utiliser des petites aiguilles circulaires ?

03.01.2024 - 20:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernd, vous pouvez les tricoter en rond sur aiguille circulaire avec la technique du magic loop ou bien en allers et retours, cette leçon vous aidera à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:23

country flag Miroslava wrote:

Hello, For which needle size is originaly meant the knitting tension? 7 or 8? Thank you

21.10.2023 - 08:13

DROPS Design answered:

Hello Miroslava, the knitting tension is always meant for the needles on which the main part is worked, so this time for size 8 (size 7 is just for edges). Happy knitting! Hana

21.10.2023 - 18:54

country flag Stefania wrote:

Buongiorno, per il davanti il tutorial dice \'Lavorare il ferro successivo dal diritto del lavoro come segue: 1 maglia a maglia legaccio, 12-14-16-18-20-22 maglie diritto e diminuire 8 maglie in modo uniforme su queste maglie, \' io sto facendo la taglia M, con 14 maglie, una volta fatte le diminuzioni devono restarne 6. Ma anche lavorando tutte le 14 maglie \'due insieme\' , mi troverei con 7 maglie, non 6. Come devo fare le diminuzioni?\r\nGrazie

17.08.2023 - 15:28

DROPS Design answered:

Buomasera Stefania, può anche lavorare 3 maglie insieme tra le diminuzioni. Buon lavoro!

22.08.2023 - 22:55

country flag Magda wrote:

Witam. „Przerabiać kolejny rząd na prawej stronie robótki następująco: 1 oczko ściegiem francuskim, 12-14-16-18-20-22 oczka prawe, równomiernie zamykając 8 oczek, 4 oczka lewe, A.1, 3 oczka lewe, A.1, 3 oczka lewe, A.1, 4 oczka lewe, 12-14-16-18-20-22 oczka prawe, równomiernie zamykając 8 oczek, 1 oczko ściegiem francuskim = 69-73-77-81-85-89 oczek.”Nie bardzo wiem jak mam zamknąć te 8 oczek? W tych 12 ocz. mam się zamknąć? Proszę o pomoc. Dziękuję

06.08.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Witaj, jeśli wykonujesz najmniejszy rozmiar to zamkniesz 8 oczek ponad 12 oczkami przerabiając 3 oczka razem na prawo 4 razy: z 12 oczek zostanie 4. Pozdrawiamy!

06.08.2023 - 23:10

country flag Grace Day wrote:

Hello, I would love to make this pattern for my son. How do I figure out what size I should make him?

17.07.2023 - 19:19

DROPS Design answered:

Hi Grace, please see the lesson DROPS HERE. Happy knitting!

17.07.2023 - 22:00

country flag Maria Laursen wrote:

Kan denne trøje strikkes rundt på rundpind?

13.07.2023 - 07:57

DROPS Design answered:

Hei Maria. Ja, det kan den. Bare husk å tilpass den vedr. maskeantallet når du ikke skal ha kantmasker. mvh DROPS Design

24.07.2023 - 14:58

country flag Kat wrote:

Bonjour, quand on rabat 2 mailles de chaque côté pour les manches, comment faire pour les torsades (sur 15 mailles) suivantes s'il manque 2 mailles de chaque côté ? Merci :)

22.03.2023 - 08:29

DROPS Design answered:

Bonjour Kat, pour les emmanchures, on ne rabat que 2 mailles de chaque côté, on ne touche pas les torsades - quelle taille tricotez-vous?

22.03.2023 - 09:01

country flag Kat wrote:

Bonjour, quand on rabat 2 mailles de chaque côté pour les manches, comment faire pour les torsades (sur 15 mailles) suivantes s'il manque 2 mailles de chaque côté ? Merci :)

18.03.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Bonjour Kat, quand on rabat 2 m de chaque côté pour les emmanchures, on diminue le nombre de mailles jersey de part et d'autre du devant, on ne diminue pas de mailles dans les 2 torsades de part et d'autre de celle du milieu. Vous tricotez ensuite simplement moins de mailles jersey endroit en début et en fin de rang. Bon tricot!

20.03.2023 - 08:25