DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Hour Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, v-hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-22
DROPS Design: Mynstur wi-048
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS WISH frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
750-800-900-950-1050-1150 g litur 12, karrý

Eða notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
700-750-850-900-1000-1100 g litur 22, gulur

DROPS TALA NR 501: 4-4-4-5-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Wish
DROPS Wish
50% Alpakka, 33% Bómull, 17% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 20460.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Lykkjum er fækkað innan við 24 lykkjur við miðju að framan. Allar úrtökur eru gerðar frá réttu eins og útskýrt er að neðan:

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 24 lykkjur eins og áður, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 26 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið síðustu 24 lykkjur eins og áður.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat = 2 lykkjur fleiri.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp í stykkjum og frágangur er eins og útskýrt er í uppskrift. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, neðan frá og upp.
Bakstykkið er 4 cm lengra en framstykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 65-69-75-79-85-89 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8.

Prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 49-53-59-63-69-73 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 11-11-13-13-15-15 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 6 lykkjur, 2 lykkjur í garðaprjóni = 54-58-62-66-70-74 lykkjur. Prjónið svona þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.

ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 50-54-58-62-66-70 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af miðju 8-12-12-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-20-22-23-25-27 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm (= 24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi). Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu og mitt að framan: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8.

Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 13-15-17-19-21-23 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni = 32-34-36-38-40-42 lykkjur.

Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina.

Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, fellið af fyrir handvegi, lestu allan kaflann áður en prjónað er áfram.
V-HÁLSMÁL.
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli með 3 cm millibili alls 5-7-7-8-8-8 sinnum – sjá ÚRTAKA.
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá hlið. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.2. Eftir allar úrtökur eru 20-20-22-23-25-27 lykkjur í umferð. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm (= 24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem fellt var af fyrir handveg).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-36-38-40-42-44 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig, og hlið: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8.

Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 13-15-17-19-21-23 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni.

Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 yfir A.1. Endurtakið A.2 á hæðina.

Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, fellið af fyrir handvegi, lestu allan kaflann áður en prjónað er áfram.
V-HÁLSMÁL:
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli með 3 cm millibili alls 5-7-7-8-8-8 sinnum – sjá ÚRTAKA.
HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá hlið. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir kaðal í A.2. Eftir allar úrtökur eru 20-20-22-23-25-27 lykkjur í umferð. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm (= 24-25-26-27-28-29 cm frá þar sem fellt var af fyrir handveg).

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Prjónið stroff í 6 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, jafnframt er aukið út um 4-5-4-5-4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 4 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir síðustu 7-7-9-9-11-11 lykkjur, jafnframt er aukið út um 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina og lykkjur hafa verið auknar út jafnt yfir, eru 43-45-47-49-51-53 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 yfir lykkjur í A.1 og sléttar lykkjur / brugðnar lykkjur eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 9-9-9-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-42-41 cm, prjónið lykkjur í A.2 áfram í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-45-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli.
Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði flatur, en skiljið eftir neðstu 4 cm á framstykki og 8 cm á bakstykki = klauf. Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hálsmáli.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið neðst á hægra framstykki og frá réttu með hringprjón 7, prjónið upp ca 92 til 1058 lykkjur innan við 1 lykkju garðaprjón upp að prjónamerki mitt aftan í hnakka.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kanturinn að framan mælist 3 cm. Nú er fellt af fyrir 4-4-4-5-5-5 hnappagötum. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjur sem felldar voru af – ATH: Það er fallegast ef fellt er af fyrir hnappagötum í einingu með brugðnum lykkjum (séð frá réttu).
Neðsta hnappagatið er staðsett ca 5 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið er ca þar sem V-hálsmálið byrjar.
Haldið áfram með stroff í 4 cm (8 cm alls). Fellið af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið við prjónamerki mitt aftan í hnakka og frá réttu á hringprjón 7, prjónið upp jafn margar lykkjur og í hægri kanti að framan innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.11.2022
Leiðrétting í ÚRTAKA

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag ROSA wrote:

Vorrei fare il cardigan di 2 colori, con le trecce di un secondo colore, come dovrei dividere il filato?

22.11.2023 - 09:08

DROPS Design answered:

Buonasera Rosa, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

22.11.2023 - 17:58

country flag Joana wrote:

There’s a mistake in directions: Second paragraph under “Right front piece”, as well as the “left front piece”, there should be only 2 stitches decreased instead of 6, because 34-2=32

28.01.2023 - 10:34

DROPS Design answered:

Dear Joana, please not that you should increase 4 sts on the first row in diagram A.1, so that in 1st size you have 34 sts, decrease 6 stitches in the stocking stitch section and increase 4 sts in the diagram = 34+4-6=32 sts remain. Happy knitting!

30.01.2023 - 09:59

country flag Emma wrote:

In both the Dutch and English (uk/cm) pattern, there's a part missing in the left front description. The Norsk description does include it. The part that's missing is the second purl 4 after A1 (first good side needle after switch to 8mm). It's a small thing to miss. Videre strikkes det slik – fra retten: 1 maske i rille, strikk rett over de neste 13-15-17-19-21-23 maskene, SAMTIDIG som det felles 6 masker jevnt fordelt over disse maskene, 4 vrang, A.1, 4 vrang, 1 maske i rille.

21.01.2023 - 22:23

DROPS Design answered:

Thanks for noticing Emma, a correction will be added. Happy knitting!

23.01.2023 - 10:46

country flag Isabelle wrote:

Hallo liebes Drops-Team, wird die Halsblende im Nacken zusammen genäht?

11.11.2022 - 17:11

DROPS Design answered:

Liebe Isabelle, ja genau, die Halsbende werden im Nacken zusammen genäht. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2022 - 08:53

country flag Lulu wrote:

Bonjour,\r\n\r\nje suis coincé avec l\'encolure, je ne comprend pas comment il faut diminuer et en même temps faire la torsade.\r\nc\'est 1 m mousse, 4 m envers, A2, 4m envers, les mailles 15 mailles endroits après la diminution de 6m = 9 m endoit, et terminer par 1 m mousse. est-ce que c\'est juste ou pas ??\r\net pour les diminutions comment faire ??\r\n\r\nmerci

31.10.2022 - 14:14

DROPS Design answered:

Bonjour Lulu et merci pour votre retour, il faut en fait diminuer à 24 mailles du bord - la correction a été faite. Bon tricot!

18.11.2022 - 09:37

country flag Heike wrote:

Ich komme mit dem Abnahmetip nicht klar. Wenn ich ihn befolgen nehme ich im links gestrickten teil neben dem zopf ab. auf dem Foto ist aber zu sehen, dass im glatt rechts gestrickten teil an der Seite abgenommen wird. Das hieße für das rechte Vorderteil, dass nach den ersten 24 M abgenommen werden muss. In der Anleitung heißt es aber nach den ersten 20 Maschen. sehe ich das so richtig?

28.10.2022 - 22:52

DROPS Design answered:

Liebe Heike, die Abnahmen für V-Halsausschnitt werden innherhalb die ersten 20 Maschen (= 1 Randmasche, 4 links, 15 Maschen A.1) gestrickt, damit es immer 4 linke Maschen innerhalb der Randmaschen gibt. Dh bei dem rechten Vorderteil nehmen Sie nach A.1 ab (bei den Hinreihen) bzw in den Glatt rechten Maschen, so wird das Zopf nicht abgenommen. Viel Spaß beim stricken!

31.10.2022 - 08:25

country flag Sabine wrote:

Sunray hug

06.08.2022 - 09:46