Lost in the Sky Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-47 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT (ofan frá og niður): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðustu 5 lykkjur eins og áður. Snúið stykkinu, prjónið fyrstu 5 lykkjur eins og áður, prjónið uppsláttinn slétt saman með næstu lykkju þannig að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-7-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 137-137-137-159-159-159 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.1, A.2, A.3 (þessar lykkjur tilheyra vinstra framstykki), prjónið A.4 (setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í A.4), A.2, A.5 (setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í A.5 – lykkjur á milli þessa 2 prjónamerkja tilheyra ermi), A.6, A.2 er prjónað alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, A.3 (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), A.4 (setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju), A.2, A.5 (setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju – lykkjur á milli þessa 2 prjónamerkja tilheyra ermi), A.6, A.2, A.7 (þessar lykkjur tilheyra framstykki). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – þær 4 lykkjur með prjónamerki merkja laskalínu og eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu. Nú eru prjónaðar 2 umferðir fram og til baka, skiptið yfir á stuttan hringprjón 3, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 209-209-209-229-229-229 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka, en 8-8-8-10-10-10 ystu lykkjur í hvorri hlið halda áfram eins og áður (kantar að framan) – að auki er prjónað A.8 mitt á hvorri ermi – lykkja með stjörnu í A.8 á að passa við lykkju með stjörnu í A.2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð alls 16-20-24-27-30-35 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 337-369-401-445-469-509 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-21-23-25-27-30 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram án útaukninga að réttu máli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 54-60-63-70-75-82 lykkjur, setjið næstu 69-73-83-91-93-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-103-109-121-131-147 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 69-73-83-91-93-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 54-60-63-70-75-82 lykkjur eins og áður. Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 215-239-255-283-307-335 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 8-8-8-10-10-10 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 22-21-21-21-21-20 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 22-24-26-28-30-34 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 237-263-281-311-337-369 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður, * 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 9-9-9-11-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður. UMFERÐ 2 (rétta): 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9-9-9-11-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og 8-8-8-10-10-10 lykkjur eins og áður. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 69-73-83-91-93-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-81-93-101-105-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn, en haldið áfram með A.8 mitt á ermi eins og áður. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-1½-1-1-1 cm millibili alls 6-8-10-14-12-14 sinnum = 65-65-73-73-81-81 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 24-22-21-19-17-15 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd áður en kanturinn er prjónaður. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað eru m 1 lykkju mitt undir ermi (á hægri ermi eru 2 síðustu lykkjur í umferð prjónaðar snúnar slétt saman, á vinstri ermi eru 2 fyrstu lykkjur í umferð prjónaðar snúnar slétt saman) = 64-64-72-72-80-80 lykkjur. Prjónið A.9 alls 8-8-9-9-10-10 sinnum hringinn á ermi – A.9 á að passa fallega yfir A.8 mitt á ermi. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Haldið áfram með stroff yfir lykkjur í A.9 með 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkju brugðið. Þegar stroffið mælist 1 cm (mælt eftir A.9), aukið út fjórða hverja 1 lykkju brugðið til 2 lykkjur brugðið (þ.e.a.s. 8. hver lykkja er aukin út til 2 lykkjur brugðið) = 72-72-81-81-90-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm, aukið út alveg eins, en færið útaukninguna til þannig að ekki sé aukið út þar sem nú þegar hefur verið aukið út = 80-80-90-90-100-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3½ cm, aukið út alveg eins, en færið útaukninguna að næstu 1 lykkjur brugðið = 88-88-99-99-110-110 lykkjur og þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út afgang af 1 lykkja brugðið til 2 lykkjur brugðið = 96-96-108-108-120-120 lykkjur. Fellið aðeins laust af þegar stroffið mælist 6 cm. Ermin mælist ca 33-31-30-28-26-24 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Tiziana wrote:
Molto bello
04.02.2022 - 21:26Marisa wrote:
Raffinato
19.01.2022 - 11:11